Fálkinn - 24.09.1938, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
Við frönsku landamærastöðvarnar Pont du Plan og Riemajou i
Pyrenaf jöllum flýr fólk frá Spáni til Frakklands, en í staðinn
eru nautgripir sendir suður, handa fólkinu að eta. Hjer er
verið að lileypa nautahóp yfir landamærin.
Hjer á myndinni sjást tvær af frægustu konum Bandaríkj-
anna. Önnur er frú Roosevelt, „Americas First Lady“ í heim-
sókn í Hollywood. Er hún að tala við „First Lady“ þess stað-
ar: Shirley Temple, sem þó {lítil sje, er miklu frægari en
f orsetaf rúii\.
Vestur-Danir koma á hverju sumri í stórum hóp til Danmerk-
ur til þess að heimsækja ættingjana og eru þá jafnan hátíða-
höld í Danmörku. Myndin er af móttökuhátíð sem þeim var
þaldin í ríkisþinginu og að ofan sjest Stauning í ræðstólnum.
1 dýragarðinum í Edinburgh eru tvær skepnur, sem gestum
þykir meira gaman að sjá en nokkrar aðrar þar í garðinum.
Það eru tveir antilópar, sem eru meðal annars frægir fyrir það
hvað þeir geta stokkið hátt og langt. Myndin gefur hugmynd
um þetta.