Fálkinn - 22.10.1938, Síða 5
F Á L K I N N
5
hafður til hliðsjónar þegar hin
nýja stjórnarskrá var samin.
hin þó hefur liún áreiðanlega
mótast meira af brjefi, er páf-
inn sendi úl 1932. Þetta brjef
fekk latneskt lieiti „Quadrages-
imo anno“ og liefir ekki aðeins
inni að halda glögt yfirlit um
ástandið i lýðstjórnarlöndunum
lieldur tillögur og hendingar
um nýtt þjóðskipulag. Páfinn
kemst að þeirri niðurstöðu i
brjefinu að þjóðfjelögin, sem
áður voru blóinleg sjeu gerspilt
orðin. Nú er aðeins tekið tillit
til einstaklingsins og ríkisins,
en þetta hefir óheppilegar af-
leiðingar fyrir hið kristna sam-
fjelag. Ríkið verður að snúa
sjer aftur að sínu upprunalega
hlutverki og setja verður liöml-
ur við vaxandi hneigð þess til
að gína yfir öllu. Og hömlurn-
ar eiga að korna frá hinum
ýmsu stjettum atvinnulífsins.
Stjettirnar eiga að vera „limirn-
ir“ í þjóðfjelagslíkamanum.
Ríkið á ekki að eiga frumkvæð-
ið að þeim, iieldur eiga þær að
vera frjáls samtök verkafólks
og vinnuveitenda. Þær eiga að
byggjast upp og það á að lilynna
að þeim, svo að þær verði nógu
öflugar og' geti tekist á hendur
ýms opinber störf og sýslanir,
sem ríkið annast nú að meslu
leyti. Það liefur feikn mikla
þýðingu að sósíöl vandamál
sjeu leyst af stjettunum sjálf-
um. Ólífrænar risastofnanir
eiga að þoka fyrir lifandi stjetta
myndun, sem byggist á frjáls-
um vilja þeira manna, er stjett-
irnar skapa. Þá mun hlómlegt
þjóðlíf rísa upp á ný. Brjefinu
lýkur með tilmælum um, að
„sjerhvert land, að vísu hvert á
sinn liátt, kappkosti eftir megni
að koma í framkvæmd hinni
korporativu hugsjón.“ — Ivat-
ólskar stjettalireyfingar eru frá-
brugðnar stjettahreyfingum ann
ara landa fyrir hina skilyrðis-
lausu lilýðni við settar reglur.
Jafnvel í hinum svokölluðu ein-
ræðisrikjum eins og Þýskalandi
og' Italíu, verðum við ekki vör
við svo algera hlýðni við gefnar
kenningar og reglur. Það fyrir-
komulag, sem páfahrjefið vill
koma á á sennilega aðeins við
kaþólsk lönd.
í þessum löndum mun þvi
líka framkvæmd hinnar kat-
ólsku stjettarhugsjónar verða
líkust og samhandið var milli
rikis og' kirkju á miðöldunum.
Portúgalskt atvinnulíf saman-
stendur af mörgum fjelögum
(korporationum). Hin frjálsu
störf eru flokkuð niður í ýms-
ar „reglur“. Við lilið korparat-
ionanna er þó þjóðþing með 90
þingmönnum. Sumir þeirra eru
valdir sem fulltrúar ýmsra at-
vinnugreina, og aðrir eru til
nefndir af stjórn landsins. For-
setinn er valinn til sjö ára, og
skipar hann stjórnina og víkur
henni frá völdum. Þjóðþingið
Styttan uf dr. Salazav.
getur þannig ekki felt hana. Að
sjálfsögðu verður stjórnin mjög
sterk með þessu móti.
Portúgal á mjög erfiða að-
stöðu eins og' stendur vegna
hinnar hlóðugu styrjaldar á
Spáni. Portúgalar eru hræddir
um, að land þeirra verði inn-
limað í „Randaríki íberiska
sovjetlýðveldisins“, ef stjórnar-
lierinn sigrar. Þessvegna' óska
Porlúgalar þess að Franco verði
ofan á í borgaraslyrjöldinni. 1
opinberu portúgölsku tímariti,
sem gefið er út af hinni þjóð-
legu úlhreiðslumálaskrifstofu
ríkisins, er komist þannig að
orði: „Við eigum sjerstakra
hagsmuna að gæta á skaganum
og eigum meira í hættu en önn-
ur ríki. Við álitum að skoðanir
fólks í ýmsurn löndum, og þá
einkum i', Englandi og Frakk-
landi sjeu mótaðar af vanþekk-
ingu á því, sem er að gerast í
þessu landi. Sumar þjóðir hafa
ekki skilning fyrir hættu kom-
múnismans. Við þekkjum liana
aftur á móti og sjáum hættuna
og erum hræddir um að með
þegjandi samþykki annara
þjöða fái kommúnisminn fest
rætur á Spáni og geri að engu
sjerhverja von um stjórnmála-
lega festu og skipulag þar í
landi. Þjóðfrelsi eða frjálsræði
er ekki að finna í ríki, sem að
meira eða minna leyti er stjórn-
að af alþjóðastefnum."
Sumir halda því fram, að að-
staða Portúgals i borgarastyrj-
öldinni hafi bundið enda á
margra alda gamla vináttu við
Englendinga, sem altaf hefir átt
sjer djúpar rætur. I tímaritinu,
sem getið er um hjer að ofan
er þó lesandinn fullvissaður um
það, „að þessi vinátta muni
ekki fara út um þúfur fvrir þá
atburði, sem gersl hafa í hinni
hörðu hugsjónalegu og efna-
hagslegu haráttu, er nú gangi
yfir heiminn.
Fyrir bandalagið og hollustu-
tengslin við England heldur
Portúgal áfram sinni gömlu
stjórnmálastefnu, knýtt enn
sterkari böndum við þetta land,
fyrir sameiginleg áliugamál en
nokkru sinni fyr. En enda þótt
vináttan sje mjög náin við Eng-
land, þá gleymir það ekki
einkaliagsmunum sínum á skag-
anum.“ England vill einnig
halda við hinni arfgengu banda-
lagspólitík. Og þessu til sönn-
unar heimsóttu tvö glæsilegustu
herskip Breta með mörgu stór-
menni flotans, Lissahon, nýlega.
Um sama leyti heimsótti hreski
sendiherrann í Portúgal Asso-
ciacao Comercial de Lisboa,
sem er stærsta verslunarfjelagið
í öllu landinu. Hann gaf full-
vissu um það, við þetta tæki-
færi, að vináttan milli hinna
tveggja ríkja stendur ennþá
föstum fótum og mun gera í
náinni framtið. Sendiherrann
hylti einnig doktor Salazar fyrir
liina frábæru foruslu lians í
portúgalskri pólitík. Hann lof-
aði fjármála snilli hans og vit-
urlega festu í öllum stjórnar-
störfum, sem skapað hefði frið
og ró í þessu áður óróafulla
ríki.
Oliveira Salazar hefur tekist
að skapa sterkt ríki. Þegar liann
hyrjaði á því verki höfðu fæst-
ir trú á að það væri mögulegt.
En þrátt fyrir það hepnaðist
Salasar viðreisnarstarfið. Að
vísu með því að slyðjast við
einræði. En Salasar er ekki ein-
læðisherra í venjulegri merk-
ingu þess orðs. Hann lieldur
mjög sjaldan ræður og lætur
ekki múginn hylla sig með nein-
um ofsafengnum ópum eða
fagnaðarlátum. Hann starfar í
mestu kyrþey og lætur verkin
lala.
Nýlega voru þessir tveir menn i
úheyrn lijá konungi Englands og í
sömu búningunum og þeir eru í á
myndinni. Flestir múnu sjá, að ann-
ar maðurinn er frá Skotlandi, en
hinn þekkja menii síður. Hann er
frá Ceylon.
— Jeg sá að þjer grjetuð þegar
hún dóttir min söng ítölsku aríuna.
Með leyfi: eruð þjer italskur?
— Nei, jeg er söngkennari.
Um víða verold.
MINSTA BARN HEIMSINS
fæddist í vor í London á fæðingar-
stofnun þar. Það var drengur, sem
skírður var Gerald, og vóg ekki
nema 280 grömm nýfæddur. Lækn-
unum tókst að halda lifinu í snáða
þá lítill væri — reifuðu hann i vatti
og hituðu vögguna upp með raf-
magni.
TROTSKI LÍFHRÆDDUR?
Það er talið, að rússneska leyni-
lögreglan hafi gert út flugumenn til
Mexico til þess að freista að ráða
Leon Trotski af dögum eða lielst að
ná í hann tifandi. Hefir liúsið sem
hann býr í, í Coyocan i Mexico þvi
verið rannnlega víggirt og þjettur
vörður seltur um það. ÖJl nálæg trje
hafa verið höggin og flutt á burt,
svo að ekki sje hægt fyrir flugumenn
að leynast þar. Og alt vinnufólkið á
heimilinu er vopnað.
STÆRÐ ÍSLANDS OG ANNARA
LANDA £ EVRÓPU.
Þó að islenska þjóðin sje meðal
fámennustu þjóða, þá er landið ekki
svo titið, enda eru af þrjútiu ríkjum
í Evrópu, 14 stærri en það, og 14
minni. Af löndunum sem eru stærri en
•ísland, er Rússland um (>0 sinnum
stærra, Frakkland, Spánn og Þýska-
land um 5 sinnum stærra, Svíþjóð
4% sinnum stærri, Finnland, Polland
og Noregur i'rani undir það 4 sinn-
um stærri, Bretland og Italia og
Rúmenía 3 sinnuin stærri, Júgósla-
vía 2% sinnum stærri og loks
Tékkoslóvakia og Grikkland þriðj-
ungi stærri. Búlgaría er jafnstór
íslandi.
Ungverjaland Portúgal, Austurríki
og írland eru lítið eitt minni en
ísland. Lettland, Lithauen og Estland
eru helmingi minni en það, Dan-
mörk og Sviss tæpur helmingur,
Holland og Belgía um þriðji liluti
og Albanía og Tyrkland, (sá hluti,
sem er i Evrópu) um fjórði hluti á
horð við ísland. Þá er ótalin Luxem-
burg, sem er eins og ein af minni
sýslunum á íslandi, eða 1/40 hluti
þess.
Við þessi þrjátíu ríki í Evrópu má
bæta kotríkjunum fjórum: Andorra
(milli Frakklands og Spánar), Licht-
enstein (inilli Austurrikis og Sviss),
San Marínó (á Ítalíu), og Mónakó
(við suðurströnd Frakklands). Hið
fyrsttalda af þessum ríkjum er eins
og stór lireppur á íslandi, hin tvö
næsttöldu eins og meðal lireppur og
hið síðasta, Mónakó, heldur minna
unnnáls, en Reykjavík innan liring-
brautar. Ó. F.
Stjórnarhermenn á Austur-Spáni
að uppskeruvinnu.