Fálkinn - 22.10.1938, Síða 10
10
F Á L K 1 N N
*3 v
Klæðilegt sportvexti með rúskitmi að framanverðu.
Efni:
í þetta vesti ))arf 200 gr. dökkbrúnl
ullargarn og prjóna, sem samsvara
garninu. Bak og erinar er prjónaö
og kraginn lieklaður. Báðir boðang-
arnir eru sniðnir úr rúskinni og
festir saman með rennilás.
Snið og mál:
Boðangana iátið þið leðursalann út-
búa fyrir ykkur. Svo klippið þið
snið úr grófum pappír að bakinu
og ermunum svo það samsvari boð-
öngunum. Málin sem hjer eru gefin
upp samsvara stærð nr. 44.
Prjónið:
Bak og critiar er prjónað þannig:
í. prjónn: (Rjettan). 1 1. rjett, 1 1.
snúin til skiftis. 2. prjónn: (Ran'g-
an). 1 1. r., 1 I. sn.; en gæta verður
þess að sú lykkja sem var prjónuð
rjett á rjettunni sje líka prjónuð
rjett á röngunni og að snúna lykkj-
an sje líka snúin hjer. Ef prjónn-
inn endar á sn. 1. þá á næsti prjónn
að byrja á sn. J. Þetta er hið svo-
kallaða perluprjón. Þessir 2 prjón-
ar eru altaf endurteknir.
PRJÓNAAÐFERÐ:
Bakið:
(Mynd I.) Lykkjufjöldann sem fitja
á upp finnur maður með því að
hekla loftlykkjuröð jafn langa neðsta
kanti sniðsins. Teljið loftlykkjurnar
og jafnmargar lykkjur eru svo fitj-
aðar upp. Prjónið svo eftir áður-
nefndri aðferð og takið úr í hvorri
hlið með vissu millibili eftir snið-
inu. Þegar mittinu er náð er aukið
út báðu megin eins og sniðið sýnir,
þangað til upprunalega lykkjufjöld-
anum er náð. Til þess að mynda
handveginn eru feldar af 0 1. í
hvorri hlið. Þvi næst er feld af 1
1. í hvorri lilið í byrjun Jivers prjóns
liangað til búið er að fella af 10 1.
i hv. hlið. Prjónið svo áfram að
öxlinni; lijer er lykkjunum skift í
þrent. Mt livoru megin eru axlirnar
og % í miðjunni er hálsmálið. Axl-
irnar eru feldar af i þrennu lagi;
en hálsmálið í einu.
Ermarnar:
(Mynd II.) Prjónið fyrst 3 cm.
brugðinn kant (1 1. r., 1 1. sn.)
Aukið svo út báðu megin eftir snið-
inu, þangað til ermin er orðin 18
cm. Þá byrjar úrtakan. Felþð fyrst
af 7 I. í hvorri hlið og takið svo úr
eftir sniðinu. Prjónið 12 cm. og eiga
þá að vera 20 I. eftir á prjónunum,
sem eru feldar af i einu lagi.
Kraginn:
(Mynd III.) Kraginn er heklaður
af eintómum fastalykkjum. Hann er
37 cm. langur og 4 cm. breiður.
Samsetning:
Þegar búið er að prjóna öll stykk-
in eru þau vætt og strengd yfir
sniðin og best er að láta leður-
«4^*—77—*—H—*—77 —*-•£>
28
saumara sauina það saman fyrir
ykkur.
Húfa.
(Mynd C.) Þessi húfa samsvarar
vestinu. Hún er búin til úr 6 þrí-
hyrningum og eru 3 úr rúskinni og
3 prjónaðir með perluprjóni. Prjón-
uðu þríhyrningarnir eiga að vera
heldur minni en hinir, af því það
teygist á þeim. Látið leðursaumar-
ann sníða húfuna og sauma hana
siinian.
Frúin: — Ekki skil jeg livernig
stóð á manninum mínum i morgun.
Hann söng og blístraði þegar liann
fór á skrifstofuna.
— Vinnukonan: — Það er víst
mjer að kenna frú. Jeg sauð í ógáti
grautinn úr kanarífuglafræum í stað-
inn fyrir úr hafragrjónum.
Móðirin tók eftir að dóttir hennar
var að fela brauðskorpu undir rönd-
inni á diskinum sínum. — Dóra,
sagði hún ávitandi, — gerðu ekki
petta. Hver veit nema þú yrðir ein-
hverntím,a á æfinni fegin svona
hrauðskorpu.
— Já, jeg veit það, mamma, svaraði
telpan. — Og þessvegna ætlaði jeg
að geyma skorpuna þangað til.
Læknirinn: — Reykið þjer?
Sjúklingurinn: Já, þakka yður
fyrir.
Fróðleikur um kvenfólkið.
HVERNIG SKYLDI ÁSTANDIÐ
VERA HJÁ OKKUR?
Blaðið ber enga ábyrgð á skýrsl-
unni sem gerð er í Frakklandi og
birt er lijer á eftir en hún segir þó
ýmislegt um konur í öðrum lönd-
um, m. a. hvað þær kaupa að meðal-
tali af fötum. Hvernig mundi slík
skýrsla, ef til væri, lita út hjer á
íslandi?
í Englandi
eru 109 konur móti hverjum 100
karlmönnum. 52% enskra kvenna
giftast. 1 af hverjúm 80 skilur við
mann sinn. 30 af 100 hafa atvinnu.
I stórborgunum í Englandi fer kon-
an í leikhús þriðja hvern mánuð og
i kvikmyndahús þriðju hverja viku.
Á einu ári kaupir hún að jalnaði:
Tvo kjóla.
Eina kápu.
Tvo hatta.
Tvenna skó.
Hún notar þrjár krónur á ári i
fc-grunarmeðul.
í Frakklandi
eru 107 konur móti 100 karlmönn-
um. 1 af 30 giftir sig. 37 af 100 liafa
atvinnu. í stórbæjunum fer konan
í leikhúsið að jafnaði einu sinni
annan hvern mánuð og í kvik-
myndahús einu sinni á mánuði. Á
einu ári kaupir hún:
Þrjá kjóla.
Eina kápu.
Þrjá hatta.
Tvenna skó.
Hún notar 22 krónur í fegrunar-
meðul.
í Þýskalandi
gifta sig 55 konur af 100. 1 af hverj-
um 200 skilur. 35 af 100 hafa at-
vinnu. í stórborgunum fer konan i
leikhús að jafnaði sjöttu hverja viku
og í kvikmyndahús 1 sinni annan
hvern mánuð.
Á einu ári kaupir hún:
Einn kjól.
Einn hatt.
Eina skó.
Hún notar þrjár krónur á ári i
fegrunarmeðul.
I Japan
eru 99 konur móti 100 karlmönnum.
09 af 100 konum gifta sig. 1 af
hverjum 1300 skilur. 35 af 100 hafa
atvinnu. Stórborgakonurnar fara að
jafnaði einu sinni í mánuði i leik-
hús og álika oft i kvikmyndahús.
Á einu ári kaupir hún:
Einn kjól.
Eina skó.
Engan hatt.
Til fegrunarlyfa notar hún sjö
krónur.
I Ameríku
eru 98 konur móti 100 karlmönnum.
01 af 100 giftir sig. 1 af hverj-
um 8 skilur. 22 af 100 hafa atvinnu.
í stórbæjunum fer konan í leikhús
að jafnaði einu sinni í hálfum mán-
uði og i kvikmyndahúsið einu sinni
á viku.
Um árið kaupir hún:
Fjóra kjóla.
Tvær kápur.
Fjóra hatta.
Ferna skó.
í fegrunarmeðul eyðir hún — og
láttu ekki líða yfir þig — 165 krón-
um.
Ella: — Á jeg að segja þjer nokk-
uð. í gær hitti jeg mann í skemti-
garðinum, sem ætlaði að kyssa mig.
Magga: — Og livað gerðirðu þá?
Ella: — Jeg hljóp eins og fætur
toguðu.
Magga: — Og náðirðu þá í mann-
inn?