Fálkinn - 22.10.1938, Side 16
16
F Á L K I N N
Við tryggjum okkur í
DANMARK
F' " 1
Ný bókaverslun.
Bókaverslun Isafoldarprentsmiöju
Austurstræti 8
var opnuð í vikunni. Þar fást allar íslenskar bækur, eldri og yngri.
Ennfremur nokkurt úrval af ritföngum og pappírsvörum fyrir skrif-
stofur og skóla. Samtímis koma út 6 nýjar bækur:
1. íslensk úrvalsljóð V. (Benedikt Gröndal).Úrvalsljóðin eru þegar orðin svo vinsæl, að óþarft er að mæla með
þeim, en auk þess hafa ljóðmæli Benedikts Sveinbjarnarsonar Gröndals verið ófáanleg um margra ára skeið.
2. Nero keisari, eftir Arthur Weigall. Þýtt hefir Magnús Magnússon ritstjóri. Þetta er söguleg skáldsaga og lal-
in afbragðsverk í sinni röð.
Gegnum lystigarðinn, ný skáldsaga eftir Guðmund Daníelsson frá Guttormshaga. Guðmundur hefir hlotið
svo lofsamleg ummæli fyrir fyrri bækur sinar, að búast má við að margur sije forvitinn að sjá l>essa bók hans.
4. Og árin líða, þrjár sögur eftir Sigurð Helgasón.
5. Ástalíf, eftir Pjetur Sigurðsson erindreka. Allir íslendingar kannast við hreinskilni og bersögli Pjeturs Sig-
urðssonar, og mun þvi margan fýsa að lievra hvað hann hefir að segja um þau málefni, er hann tekur fvrir í
þessari bók sinni.
(i. Bombi Bitt og jeg, þýtt hefir Helgi Hjörvar. — Allir, ungir og gamlir, muna eftir sögunni af Bombi Bitt,
sem Helgi Hjörvar las í útvarpið á síðastliðnum vetri. Unglingar um land alt hafa óskað eftir að bókin yrði
prentuð, og er því fullvíst að henni verður vel tekið.
Komið rakleitt í
Bókaverslun ísafoldarprentsmiðju
Sími 4527 Austurstrœti 8 - Sími 4527