Fálkinn - 20.10.1939, Qupperneq 1
42
Reykjavík, föstudag-inn 20. október 1939.
XII.
FRA GRINDAVIK
Grindavík er heiti verslunarstaðarins sunnan á Reykjanesi, en í rauninni eru Grindavíkurnar margar og þó einkum þrjár, sem
bygðin er við, nfl. Hraunsvík með bygðinni Þorkötlustaðahverfi, Járngerðastaðavík með samnefndu hverfi, sem er þunga-
miðja verslunarstaðarins og Arfadalsvík með Staðarhverfi. Allar liggja vikur þessar fyrir opnu hafi, en þó er sjósóknin aðal
atvinnuvegur staðarins og aflaföng að jafnaði mikil, þegar gæftir eru góðar, en þær vilja bregðast. Uppland Grindavíkur er
ófrjótt, en þó eru talsverð tún við verslunarstaðinn, enda fellur þar til mikið af áburði. — Hér á myndinni sjer yfir Járngerðar-
staðahverfið og sjest fjallið Þorbjörn í baksýn til hægri. Bygging er myndarleg í Grindavík og fyrir nokkrum árum er komin
þar góð bryggja fyrir vjelbáta. Myndina tók Einar Einarsson, Krosshúsum.