Fálkinn - 29.03.1940, Síða 2
r
F A L Ií I N N
- GAMLA BÍÓ -
Þegar Honululu og Hawaii ber á
góma, dettur okkur í hug vaggandi
pálma — kóralrif ljettklæddar
fegurðardrottningar — ukulele og
Hula-Huta. Því að alt þelta er þar
til. Það er því sist að furða, þótt
kvikmyndaleikarinn Brooks Mason
(Robert Young) leiki við hvern sinn
fingur og syngi:
„Hæ, jeg hlakka til,
jeg hoppa og syngja vil,
þvi jeg er á leið til Honolulu,
þar kvöldin líða löng
við ljettan dans og söng,
já, ganga skal það glatt í Honolulu.'1
Þetta er byrjunin á einum söng-
tcxta hans (I’m on my merry way)
i kvikmyndinni Ilonolulu, sem Gamla
Bíó sýnir á næstunni.
Brooks Mason er, eins og áðan gat,
kvikmyndaleikari, mjög frægur og
vinsæll. Hann er þreyttur og að-
þrengdur og þarfnast einskis fremur
en að fá frí frá störfum um tíma.
En það vilja húsbændur hans, kvik-
myndafjelögin, ómögulega veita hon-
um, heldur heimta, að hann fari til
New York og láti þar hytia sig af
aðdáendum sínum, kvikmyndahúsa-
gestunum. En hann veit, að slíkt
„personal appearance“ gengur ekki
hljóðalaust fyrir sig. Hann minnisl
þess, að við slik tækifæri hafa að-
dáendur hans stundum algerlega
Aliað að sála honum með fagnað-
arlátum, handtökum og faðmlögum
og rithandarsöfnun. En þá legsi
honum j>að til, að hann rekst á
ívígengil sinn, Georg Smith frá
Hawaii og það verður úr, að þeir
hafa hlutverkaskifti, Smith þessi fer
tiJ New York sem Brook Mason, en
leikarinn heldur glaður og reifur til
Honolulu. , En svona hlutverkaskifti
eru oft glannalegt atferli, eins og
þið kanske hafið heyrt. Og svo verð-
ur einnig hjer.
Stúlkuna, sem Brook Mason verður
hrifinn af, leikur Eleanor Powell,
sem kölluð hefir verið „besta step-
dansmær heimsins,“ og t>ykir hún
láta liað ásannast í þessari mynd.
Og ekki eru áhorfendur sviknir
um Hula-Hula dansinn í myndinni.
Hann dansa yndislegar meyjar með
Kealoha Holt i broddi fylkingar, en
hún vann samkepni meðal Hula-
dansmeyjanna á Hawaii-eyjum. Og
hin frægasta allra Hawaii-hljóm-
sveita, ,,Andy Iona’s Islanders“ leika
undir.
Myndin hefir nóg að bjóða upp
á, söng, dans, fegurð og fjör. Mörg-
um áhorfendum bregðast því eflaust
ekki vonir, þegar þeir syngja með
Brook Mason:
„Ó, uppfyll mínar óskir, Honolulu.
My Honolulu bythe coral sea“.
? - HVER ER MAÐURINN - ?
Hjer birtist siðasta myndin í þessari vinsælu getraun
Fálkans, og er henni þar með lokið. Fyrir rjettustu ráðn-
ingarnar veitir Fálkinn þrenn verðlaun:
I. verðlaun: Kr. 100.00 — sitt hundrað krónur.
II. verðlaun: Kr. 50.00 — fimtíu krónur.
III. verðlaun: Kr. 25.00 — tuttugu og fimm krónur.
Fyrstu verðlaun verða j)ó því aðeins veitt, að öll nöfnin
sjeu rjett. Ef fleiri lausnir eru rjettar, ræður hlut-
kesti.
Þar sem flestir lesendur Fálkans halda blaðinu saman
og vilja því siður skemma blöðin með því að klippa
svarmyndirnar úr, þá hefir blaðið látið prenta sjerstök
svar-eyðublöð, sem lesendur geta fengið á afgreiðslu
Fálkans, Bankastræti 3, Rvík, og' bjá útsölumönnum úti
á landi. Einnig verða skrifuð svör tekin til greina, þótt
ekki sjeu útfylt á bin prentuðu eyðublöð.
Svörin verða að vera komin lil blaðsins fyrir 1. inaí,
eigi þau að verða tekin til greina.
Hver verður mannglöggastur?
! - NÝJA BÍÓ -
Shirley Temple skókar flestum
kvikmyndastjörnum, sem eldri eru
en hún, um frægð og vinsældir.
Ailsstaðar þar sem kvikmyndir eru
sýndar er hún eflirlætisgoð barn-
anna, og jafnvel í sveitum, þar sem
börnin hafa aldrei sjeð kvikmynd,
er jiessi unga leikkona þekt, myndir
af henni eru á hverju strái. Shirley
Temple-bækur, ævisaga hennar og
leiksögur, hafa orðið býsna fjöl-
lesnar nú á siðustu árum, jafnvel
hjér á íslandi. En það eru fleiri en
börnin, sem dá listakonuna korn-
ungu. Sbirley Temple er eftirlætis-
goð margra fullorðinna, sem yndi
hafa af börnum og sem hrifist hafa
af leik liennar. Enda er hún ein-
stæður ieikari, hýr, innileg og
skemtileg, altaf barnsleg, þrátt fyrir
iirðug hlutverk og mikinn vanda.
Nr. 25
Maðurinn er
Frú Giumhildur Bjarnadóttir,
Skálholti í liafnarfirði, varð
sjötug 27. þ. m.
INDÍÁNARNIR HEIMTUÐU HÆRRA
KAUP.
í myndinni „Kyrrahafshraðlestin",
sem Cecil de Mille tók fyrir Para-
mount, leikur Barbara Stanwyck
unga stúlku, sem verst Indíánum er
þeir gera atlögu að járnbrautarvagni
sem hún er í. Meðal vopna hennar
er kústur og leikstjóranum þótti hún
ekki nota hann nógu eftirminnilega,
og sagði Barböru, að hún ætti ekki
að dangla heldur berja. Atriðið var
tekið upp aftur og nú notaði Barbara
kústinn svo eftirmininilega að allir
Indíánarnir lögðu niður vinnu og
neituðu að lijálpa til nema þeir fengi
10 dollurum hærra kaup á mann, fyr-
ir að Iáta Barböru berja sig.
Svala í geddumaga.
Það er ekki óalgengt, að fuglar
veiði fisk, en hitt er sjaldgæfara, að
fiskar veiði fugla. Það þykir því
tíðindum sæta, að i maga á 9 kg.
þungri geddu, sem veiddist í Ljusnan
í Svi])jóð nýlega, fanst svala. Hún
hafði verið að veiða flugur yfir
vatnsborðinu en geddan náð í hana
og gleypt. Geddan er hið mesta rán-
dýr og eru dæmi til þess, að hún
hafi jetið mýs.
Öllum Shirley Temple-dáendum
hlýlur að vera það mikið fagnaðar-
efni, að bráðlega sýnir Nýja Bíó til-
komumestu myndina, sem Shirley
Temple hefir leikið í. Það er Litla
prinsessan, sem tekin er með »eðli-
legum litum.
Myndin gerist í Englandi á þeim
tímum er Búastríðið stóð yfir.
Crewc kapteinn er einn þeirra lier-
manna, sem verða að kveðja heim-
ili sín og fjölskyldur og halda til
vígstöðvanna. Hann er ekkjumaður,
en á litla dóttur, Söjru. Hann á
einskis annars kost , en að koma
henni fyrir i heimavistarskóla fyrir
telpur. Forstöðukona skólans er Miss
Minchin, nískur kvenmaður og fje-
gráðugur. sem gælir við Söru og
lætur alt eftir henni meðan hún
fær vel borgaðan dvalarkostnað
hennar, en snýr algerlega við blað-
inu, þegar bobbi kemur í bátinn.
En Sara litla eignast allsstaðar vini,
sem gera henni lífið bjartara og
betra og að lokum rætist fram úr
vandræðunum.
í myndinni sjáum við í draum-
heim litlu stúlkunnar og kynnumst
daglegum háttum hennar og hugs-
unum.
Auðvitað eru ástaræfintýri fljetl-
uð inn í myndina. Sara litla er þar
milligöngumaður elskenda, sem á að
stía sundur.
Ruslið er ekki verðiaust.
Það er ótrúlegt, hve tuskukörlun-
um í París verður mikið úr ruslinu,
sem þeir tína saman á götum heirns-
borgarinnar. Á hverjum degi safna
þeir rusli fyrir 35.000 krónur. Það
er flokkað og selt tii ýmsra þarfa.
Allar tuskur fara ýmist í pappirs-
myllurnar eða klæðaverksmiðjur,
glerbrol og flöskubrot eru mulin i
salla og notuð i smergilpappa, úr
beinum er malað beinamjöl eða þau
eru notuð í hnifasköft og þvium-
líkt, ef þau eru nógu stór til þess.
Hárið, sem til fellur á rakarastofun-
um er notað sírópssíur.