Fálkinn - 06.09.1940, Page 2
2
F A L K. I N N
Friðmundur Heronímusson, skip Gíslína Erlendsdóttir frói Eyr- korsteinn Sigurðsson, Dölum,
stjóri, Keftavík, verður 40 ára arbakka, Hringbraut 190, verð- Vestmannaeyjum, verðum 80
8. þ. m. ui' 00 ára 12. þ. m. ára 6. þ. m. (í dag).
- GAMLA BÍÓ -
Edgar Wallace er mikill meist-
ari í að semja glæpasögur, enda
hefir hann æfinguna, karlinn sá.
Standi nafn hans á einhverri
skáldsögu þykir það örugg trygg-
ing fyrir æsandi frásögn og ægi-
legum atburðum.
Næsta mynd, sem Gamla Bíó
sýnir, verður „Skuggahlið Lund-
únaborgar“ (Dark Eyes of Lond-
on), og er hún bygð yfir skáld-
sögu eftir Edgar Wallace, og
þykir sú sag'a ein hin snjallasta
eftir þann höfund og kalla Eng-
lendingar hana „The Thriller of
Thrillers.“ Ekki dregur það lir
gildi myndarinnar, að aðalldut-
verk leikur fíela Lugosi, sem er
þektur að snildarleik í hlutverk-
um glæpamanna. Hann getur
breytt sjer í óhugnanlegar mann-
persónur, svo að loftið umhverf-
is hann virðist þrungið æsingi og
óhugnaði. Hjer leikur Bela Lug-
osi Dr. Orloff, fífldjarfan og
kaldrifjaðan stórglæpamann, sem
ekki horfir í morð, ef hann telur
sig geta hagnast á þvi. A yfir-
borðinu virðist hann mesti heið-
ursmaður, sem sýnir mikinn á-
huga fyrir góðgerðastarfsemi.
En í raun og veru vakir ekkerl
fvrir honum annað en ])að, að
auðgast fljótt og með hvaða ráð-
um, sem vera skal.
Helsti andstæðingur lians er
llolt, inspector á Scotland Yard,
sem með óþrevtandi elju vinnur
að því að gera þennán hættulega
glæpamann óvirkan. Holt cr
leikinn af Hugh Willigms.
Aðalhlutverkið er Diana Stu-
art, ung stúlka, sem er dóttir
manns, sem myrtur hefir verið
á svívirðilegan hátt. Hana leik-
ur Greta Gynt.
f myndinni sjáum vjer vel inn
í skuggahverfi Lundúnaborgar,
eins og nafnið gefur hugmynd
um. Og leikur Bela Lugosi er
meistaralega góður i gervi hins
samviskulausa doktors.
SSSTÍS: KVENNAFRÆÐARINN
er ónii§Maii(li á lirer|n lieimili!
Kvennafræðarinn geí'ur meðal annars leiðbeiningar um:
Umgengni í búri og eldhúsi. Um suðu á mat. Um undirbúning til mat-
reiðslu. Soúða í súpur. Ávexti og saft. Útálát. Spónamat. Fiskmat.
Grænmeti. Kjötmat. Viðmeti. Sósur. Ýmsa smárjetti. Ýmislegt á kalt
borð. Egg. BrauS. Búðinga og fleiri eftirmata. Ýmislegt viðvíkj-
andi kökutilbúningi. Kökur. Drykki. Framreiðslu á mat og kaffi.
Mjólk, smjör, ost og skyr o. fl. — Sláturstörf, súrsun, reyking, m. m.
Niðursuðu. Næringarefnin og samsetning þeirra. Um loftið. Um |
klæðnaðinn. Um þvott og meðferð á fatnaði. Um þvott og liirðing
á lierbergjum o. fl.
Kvennafræðarinn er 252 blaðsíður, en kostar samt ekki ne.ma 4 kr.
heftur, en 6. kr. í bandi.
Hin óvenjuleg'a mikla útbreiðsla þessarar bókar sannar best ágæti
hennar, enda er upplag hennar senn þrotið.
Kvennafræðarinn fæst lijá bóksölmn, en aðalútsölu liefir Bókaverslun
Sigurðar Kristjánssonar, Bankastræti 3. Simi 3635.
Best er að auglýsa í Fálkanum
Myndin sýnir franskun Rauða kross vagn, sem skotið var
á í orustunum í Norður-Frakklandi.
- NÝJA BÍÓ -
Það verða að vera röskir pilt-
ar, sem stjórna ameríkönskum
blöðum, svo að eittlivert lag sje
á. Ameríkumenn vilja fá stórar og
áhrifamiklar frjettir og gifurleg-
ar fyrirsagnir, annars kaupa þeir
ekki blöðin.
f kvikmyndinni „Fjórmenn-
ingarnir“, sem sýnd verður á
Nýja Bíó, áður en um langt lið-
ur, fáum vjer að skygnast inn
í blaðamannaheiminn amerik-
anska. Þar sjáum við fyrst og
fremst fíob Lansford, sem á
duggarabandsárum sínum hefir
verið ritstjóri og staðið prýðilega
í þeirri stöðu. En nú er hann
hættur ritmensku og sestur í
feitt embætli og þar er hann
engu síður atkvæðamikill en í
fyrra starfinu. Nú er nefndur lil
sögunnar ríkisbubbi nokkur,
Patterson Buckley að nafni.
Hann á stórt blað, en liefir geng-
ið illa með að láta það bera sig
og er hann jafnvel að hugsa um
að liætta við all saman og láta
blaðið liætta við að koma út.
Jean Christy heitir ung og
fögur stúlka, sem er blaðamaður.
Hún vill ómögulega, að Patterson
stöðvi útgáfuna og stappar í hann
stálinu. Segir hún, að eina ráðið
til að fá blaðið til að bera sig
vel, sje að fá Bob Lánsford til
að taka við ritstjórninni.
Þetta gerir Patterson og hon-
um lekst að fá Lansford aftur
inn i blaðamenskuria. En honum
verður þegar ljóst, að eigi blaðið
að ganga vel, verður hann að ná
i frjettir með stórum fyrirsögn-
um. Hann finnur upp á því að
ráðast harkalega í blaðinu á John
nokkurn P. Dillingwell, illræmd
an miljónamæring, — en hann
er afi Lorry Dillingwell, en liún
er hálf-trúlofuð Patterson blaða
eiganda.
Errol Flynn leikur Bob Lans-
ford, Olivia de Havilland Lorry
Dillingwell, Rosalind Russelt
Jean Christy.