Fálkinn - 08.11.1940, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
- GAMLA BÍÓ -
James Ililton er enskur rithöf-
undur, sem vann sjer gifurlega
frægð og skjóta með bók sinni
„Goodbye, Mr. Chips“. — Bók
þessi er ekki stór, má kallast
kver, en innihaldið er því snjall-
ara og rikara.
Sagan fjallar um kennara
nokkurn við enskan mentaskóla.
Kennarinn heitir Chips, og segir
þarna frá æfi hans allri og er lýs-
ingin á þessum hókaormi og
staglsama kennara afbragðs góð,
ekki hvað síst þegar ellin fer að
færast yfir hann.
Cliips kemur að Brookfield
skólanum árið 1870, er þá ungur
maður, sem hefir traust á sjer.
Ilann starfar síðan alla æfi við
Brookfield. Einu sinni fer liann
í sumarleyfi sínu til Tyrol og fer
þar í fjallgöngur. 1 þessu prili
kynnist hann ungri, indælli slúlku
og takast ástir með þeim. Þau
eigast og setja bú saman í Brook-
field. Konan flytur ljós og yl inn
í líf þessa dula og innilokaða
kennara og ann hann henni
mjög. Hún skilur skólapiltana
mjög vel og tekur altaf málstað
þeirra.
En samhúð þeirra verður því
miður stutt. Hún fellur frá í
blóma aldurs síns. Það er auð-
vitað ægilegt áfall fyrir Chips,
en síðan er eins og ást hans á
konunni snúist upp í ást á skól-
anum og nemendunum. Hann
verður imynd hins góða og vin-
sæla kennara, iiann verður hluti
af Brookfieldskóla.
Þetta er aðalefni í þessari
bók. Það er e. t. v. ekki stórir
atburðir og óvenjulegir, sem þar
gerast.en lýsingarnar eru góðar
og lifandi.
Nú liefir þessi fræga saga ver-
ið kvikmynduð og verður sú
kvikmynd sýnd bráðlega i Gamla
Bió, og lieitir: „Verið þjer sælir,
Mr. Chips.“
Aðalhlutverkið, Clnps sjálfan,
leikur Robert Donat, sem margir
kannast við af leik hans í „Borg-
arvirkjum“ í vetur. Er hann á-
reiðanlega vaxinn þessu hlut-
verki þvi að liann er snjall leikari
Kona Chips, Katherine. er
leikin af Greer Garson.
Merkilegt er það, að sami
drengurinn, Terry Kilburn, leik-
ur fimm menn, Colley-feðgana,
sem ganga í Brookfield skóla,
hver eftir annan.
Gullbrúðkaup áttu 5. þ. m. hjónin Auðbjörg Guðmunds-
dóttir og Ólafur Bjarnason, Vitastíg 7.
Frá Sigríður Jónsdóttir að Hofi
í Vestmannaeyjum, verður 60
ára í dag (8. nóv.).
ÞÝSK FLUGVJEL
YFIR REYKJAVÍK.
Síðastliðinn sunnudagsmorgun, um
það leyti, sem flestir voru að nudda
stýrurnar úr augunum, lieyrðist á-
köf skothríð hjer í námunda við
borgina. Þeir, sem litu út, sáu flug-
vjel eina á sveimi hjer fast við bæ-
inn og loftvarnabyssur Breta vera
að skjóta á gripinn. Hvarf flugvjelin
von bráðar og hefir ekki sjest til
hennar síðan, svo frjett sje.
Þennan sama morgun var Agnar
Koefoed-Hansen lögreglustjóri á leið
upp á Sandskeiö. Þar flaug vjelin
lágt yfir, svo að lögreglustjóri sá
glögt hverrar tegundar hún var. Var
þetta tveggja hreyfla Heinkel sprengju
vjel (He 111), sem kom i sunnudags-
heimsóknina, eflaust í þeim friðsam-
legu erindum að njósna um stöðvar
breska setuliðsins, en ekki til að
varpa sprengjum, þvi að til þeirra
hluta er þessi vjelategund of lítil,
þegar fara þarf langa leið með vítis-
vjelafarma. Loftvarnahljóðmerki voru
þvi engin gefin og vakti það óá-
nægju hjá sumum, að það var ekki
gert.
FORSÍÐUMYNDIN
TJALDSTAÐUR I LANGADAL
Langidalur er vestasti dalurinn,
sem skerst inn i Þórsmörk sunnan-
verða og má heita samhangandi við
Húsadal í norðanverðri Mörkinni. í
Langadal liggja þeir oft við, sem eru
að liirða um skóginn, og hafa þeir
tekið ástfóstri við þennan fagra dal,
sem auk fegurðarinnar hefir það til
síns ágætis, að þar eru ágætir hagar
og gott vatnsból, þó að ekki sje
eins mikið um graslendið og í Húsa-
dal, enda var þar siðast bygð í Þórs-
mörk. — Á myndinni á forsíðunni
sjer yfir Krossáraura yfir til undir-
fjalla Eyjafjallajökuls og á jökulinn
sjálfan.
Húsfrú Þuríður Sumarliðadóttir
Helgustöðum í Fljótum, Skaga-
fjarðarsýslu, varð 80 ára 7. þ.m.
Magnús Magnússon, netamaður,
Vestmannabraut 76, Vestm.eyj-
um, varð 50 ára 4. þ. m.
- NÝJA BÍÓ -
„Mr. Smith gerist þingmaður“
heitir næsta mynd í Nýja Bíó.
Sýnir hún að stundum getur ver-
ið erfitt að vera heiðarlegur og
sannleikanum samkvæmur, þeg-
ar stjórnmálin eru annars vegar.
Jefferson Smith, er maður
nefndur. Hann er hugsjónamað-
ur mikill og vill herjast fyrir
góð málefni og gefur sig því all-
mikið að opinberum málum.
Hann er formaður fyrir einskon-
ar skátafjelagsskap og honum er
mikið áhugamál, að hið opinbera
komi upp dvalarskálum fyrir
drengi víðsvegar út um sveitir.
En Smith fær brátt tækifæri
til að koma málum sínum áleið-
is á æðri stöðum. Annar af þing-
mönnum fylkis hans deyr, og er
Jeff þá útnefndur öldungadeild-
arfulltrúi í hans stað. Það er
rikisstjórinn, Hopper, að nafni,
sem velur hann í þessa virðing-
arstöðu og býst Hopper þessi
sjálfsagt við því, að liinn ungi
maður verði sjer þægur ljár í
þúfu, ef hann þarf að koma
fram einhverjum málum, sem
honum leikur hugur á að hrinda í
framkvæmd. Enda liefir Hopper
einmitt eitt slíkt mál í pokahorn-
inu. Helstu ráðamenn flokksins,
auk Hoppers, eru þeir Jim Tayl-
or, sem er mikill blaða- og
bókaútgefandi, og svo Joseph
Paine, öldungadeildarfulltrúi,
eða senator, eins og Ameríku-
menn nefna það. Þessir þrír stór-
laxar liafa bruggað það með sjer
að koma i gegnum þingið laga-
frumvarpi um geysimikla stíflu-
byggingu. Fyrirtæki þetta er ger-
samlega óþarft og engum að
gagni, nema flutningsmönnun-
um, Hopper, Taylor og Paine,
sem sjá sjer leik á horði að
græða á þessu umfangsmikla
verki stórfje, því að þeir eiga
landið, þar sem hún á að verða.
En þeir þurfa að fá einhvern
þægan þingmann til að hrinda
þessu fram með sjer. Hugsa þeir
sjer Smith í það lepphlutverk. En
sá ungi maður er ófús að láta
Frh. á bls. 15.