Fálkinn - 08.11.1940, Page 3
F Á L K I N N
3
!
BRAGI ferst - 10 drukna
Sigurmann Eiríksson. Gúðmundur Einarsson. Ingvar J. Guðmundsson.
Þorbjörn Björnsson.
Lárus Guðnason Sveinbjörn Guðmundss.
Elías Loftsson.
Ing'imar Kristinsson. Ingimar Sölvason.
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar: Skúli Skúlason,
Ragnar Jóhannesson.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Aðalskrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Simi 2210
Opin virlca doga kl. 10-12 og 1-0.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjötsgade 14.
BlaSið kemur út hvern föstudag.
kr. 6.00 á ársfj. og 24 kr. árg.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglúsingaverð: 20 aura millim.
HERBERTSprent.
Skraddaraþankar.
Um þetta leyti árs þykir mjer lang:
skemtilegast að ganga um Austur-
stræti og aðrar aðalgötur höfuðstað-
arins. Hversvegna? munu menn
spyrja. Núna, þegar skammdegið er
að falla yfir, laufin að falla af trján-
um og fannir að koma í Esjuna?
Rjett er það, hin yrti náttúra er
engan vegin í sínu besta gengi um
þetta leyti, ekki i höfuðstaðnum
fremur en annarsstaðar. Errda sjer
maður furðu lítið af henni í Austur-
stræti, nema helst blessaða sólina um
hásumarið. — En hvað er þá?
Það er fólkið, maður, fólkið. Að
vísu sjest eitthvert fólk i Reykjavik-
urbæ allan ársins hring, en á haustin
er skemtilegasta fólkið á göngu á
strætum borgarinnar. Þá kemur skóla
fólkið nefnilega í bæinn, og þar mcð
er jeg kotninn að viðfangsefninu.
Skólafólkið, sem kemur hingað á
haustin, einkum það, sem bætist al-
veg við, þykir mjer skemtilegasta
fólkið, sem gengur um götur Reykja-
víkur á haustin.
Komdu með mjer út í kvöld, og
taktu vel eflir.-Taklu t. d. eftir
þessum unga pilti þarna! Ilann geng-
ur hægt, starir forvitnum undrunar-
augum á alt, sem fyrir augu ber. Það
er ekki margt, sem fer fram hjá at-
hygli lians. Hann er með spáriýja
skólahúfu á höfðinu, hún fer honum
fremur illa, stendur eins og strókur
beint upp af höfðinu, hann hefir
ennþá ekki lært að halla lienni snið-
uglega á ská eins og þeir eldri gera.
Buxurnar eru ekki rjett vel press-
aðar, en það fær ekkert á hann, hann
hefir ennþá ekki lært hispur og
snyrtimensku borgarbúans. En hann
er látlaus og einlægur og er kominn
hingað til þess að læra fleira en
skólalærdóni, hann er líka kominn
til þess að læra að þekkja á lífið.
Austurstræti veitir honum fyrstu
kenslustundina.
Ef þú heldur, að mjer þyki svona
gaman að horfa á þennan pilt vegna
þess, að jeg sje að draga dár að hon-
um, þá skjátlast þjer hrapalega. Þetta
er þvert á móti. Jeg sje ekkert hlægi-
legt við þennan dreng. En mjer þykir
vænt um hann. Jeg sje í honum
spegilmynd okkar margra. Svona lit-
um við út, þegar við vorum að leggja
út í lífið, fullir eftirvæntingar og út-
þrár, og áttum eftir að hlaupa af
okkur hornin. Þessvegna ber jeg lika
hlýjan hug í brjósti til þessa drengs
og óska þess, að honum vegni vel.
Fyrsta stórslysið, sem íslenslca
þjóðin hefir orðið fyrir af völdum
ófriðarins, varð aðfaranótt miðviku-
dagsins 30. okt. er enska skipið
,,Dnke of York“ sigldi á togarann
„Braga“ á innsiglingunni til Fleet-
wood, en þangað hafði togarinn
komið daginn áður og beðið eftir
afgreiðslu utan hafnar, ásamt fleiri
skipum með almyrkvuð Ijós eins
og öll skip verða að gera í land-
helgi ófriðarþjóðanna.
Við áreksturinn hvolfdi „Braga“
sem næst á svipstundu. Aðeins þrír
menn komust af: Þórður Sigúrðsson,
2. stýrimaður og Stefán Olsen, kynd-
ari, sem báðir voru á stjórnpalli, og
Stefán Einarsson kyndari, sem með
óskiljanlegum hætti komst upp úr
hásetaklefanum aftur á og komst á
kjöl á skipinu, er því hvolfdi. Þriðji
maður var nýkominn upp' á brúna,
en mun liafa skolað út þegar. Það
var skipstjórinn, Ingvar Á. Bjarna-
son. Alls fórust tíu menn .af áhöfn-
inni, nfl. þessir:
Ingvar Ágúst Djarnason, skipstjóri,
Öldugötu 4. Hann var 48 ára, giftur
og sex barna faðir.
Sigurmann Eiriksson, 1. slýrimað-
ur, Barónsstíg 43. Lætur eftir sig
ekkju og 2 börn.
Gnðmundiir Einarsson, 1. vjel-
stjóri, Bergþórugötu 53, 37 árn, var
kvæntur maður og átti 3 börn.
Ingvar Július Guðmuridsson, 2.
vjelstjóri, Spítalastíg 5; 42 ára. Gifl-
ur og faðir fimni kornungra barna.
Þ orbjörn Björnsson matsveinn,
Laugavegi 20B, 38 ára. Giflur og
tveggja ungra barna faðir.
Lárus Guðnason háseti, Kárastíg
II. 45 ára. Giftur og átti 2 börn.
Sveinbjörn Guðrnundsson háseti,
Njálsgötu 50, 39 ára. Lætur eftir sig
konu og eitt barn.
Elias Loftsson háseti, Skólavörðu-
stig 35. Lætur eftir sig konu og citt
barn.
Ingimar Kristinsson háseti, Hafn-
arfirði, 40 ára.
Ingimar Sölvason loftskeytamað-
ur, Njálsgötu 84, 30 ára. Lætur eftir
sig konu og eitt harn.-------
„Bragi“ var 22 ára gamalt skip,
321 smálest. Framan af var hann
eign Færeyinga og hjet þá „Grímur
Kamban", en árið 1928 keypti Geir
Thorsteinsson skipið og hefir átt
það siðan. Við eigendaskiftin fjekk
það Braganafnið.
Tveir af þeim þrernur, sem björg-
uðust, Þórður Sigurðsson og Stefán
Olsen,, komu heim sl. þriðjudag á
hotnvörpungnum „Haukanes“. Með
skipinu kom ennfremur lík skip-
stjórans, Ingimars Bjarnasonar, en
önnur lík skipsmanna liöfðu ekki
fundist, þegar „Haukanes“ fór frá
Fleetwood. Þriðji maðurinn, sem
lifði af slysið, Stefán Einarsson,
var lagður á sjúkrahús eftir volkið
og hafði ekki náð sjer að fullu, þeg-
ar „Haukanes" fór.
Níu ekkjur og 23 ung börn hafa
mist heimilisstoðina við liið hörmu-
lega slys.
Skýrsla Bálíarafjelagsins.
1939—40 er nýlega komin út. Eins
og kunnugt er, vinnur fjelagið kapp-
samlega að ]>ví, að komið verði upp
bálstofu hjer i höfuðstaðnum og er
málið koniið á svo góðan rekspöl,
að fest hafa verið kaup á lóð, teikn-
ing gerð af bálstofunni dg 31 þúsund
krónur liafa sáfnast í byggingarsjóð
fjelagsins. Væntir fjelagið styrks frá
ríki og bæjarfjelagi seni fýrst, þann-
ig að hægt verði að ráðast í bygg-
inguna á næsta ári, en jafnframt
væntir fjelagið þess, að sem flestir
einstakir menn, sem hlyntir eru
hreyfingunni, láti ekki lengi drag-
ast að eignast bálfararskirteini og
ganga í fjelagið. Innritunargjald í
fjelagið er 10 krónur, en árgjald
ekkert. Og bálfararskírteinin kosta
100 kr. (sem hægt er að greiða í
tvennu eða fernu lagi) og telst fyrir-
framgreiðsla á útfararkostnaði. —
í ský-rslunni eru ennfremur tvö fróð-
leg erindi um bálstofur og kosti
þeirra eftir pr'óf. Gunnlaug Claes-
sen og Björn Ólafsson stórkaup-
mann. Er hinn fyrri formaður fje-
lagsins og sá síðarnefndi fjehirðir
jiess, en auk þeirra silja í stjórn-
inni Ben. Gröndal verkfræðingur,
Gunnar Einarsson prentsmiðjustjóri
og Ágúst Jósefsson heilbr.fulltrúi. —
Átta íslendingar hafa verið bálsettir
crlendis á síðustu tveimur árum,
fyrir milligöngu Bálfarafjelagsins.
Páll Halldórsson, fijrv. skólastj.,
verður 70 ára i!t. þ,- m.
Ingvar Ágúst Bjarnason.