Fálkinn - 08.11.1940, Blaðsíða 6
6
F Á L K I N N
í KAFFIHÚSINU •
Smásaga eftir Christian Dethlefsen.
AÐ var gamaldags kaffihús,
og aðalsalnum var sldft í
inargar stúkur eða bása með
skilrúmum. Þessar stúkur voru
einkar vel fallnar til stefnumóta,
enda var það venjulegt, að elsk-
endur hittust þar til þess að
drekka kaffi, í friði fyrir úm-
heiminum, nema þá gamla þjón-
inum, sem tifaði um á inniskón-
um sínum, blíður og föðurlegur.
Hann var bara kallaður Jakob.
Á daginn var þetta mikið sótt
kaffihús, en á kvöldin mátti lieita
að það væri tómt. Þá voru þar
einungis hinir föstu gestir, eða
þeir sem skoðuðu sig sem fasta
gesti á þeim grundvelli, að þegar
þeir voru þar, voru þeir einir
um liituna. Það voru aðallega
rosknir piparsveinar, sem lögðu
frá sjer regnhlif og skóhlífar,
settu gleraugun á nefið og fengu
sjer sæti við sitt venjulega borð
og söktu sjer straks niður í dag-
blaðabunkann, sem þegar lá til
reiðu fyrir framan þá.
Klukkan var að verða ellefu.
Jakob gamli trítlaði að borði
barónsins í liorninu, og var að
hugsa um það hvort hann ætti
ekki að taka(blöðin. Allir fasta-
gestirnir voru farnir og barón-
inn kæmi sjálfsagt ekki hjeðan
af. Hann kom aldrei seinna en
klukkan hálf tiu.
Hann var ennþá í þessum bug-
leiðingum þegar hurðin opnaðist
og baróninn kom inn.
Jakob flýtti sjer á móti líonum
til þess að taka við yfirhöfninni.
Hann ætlaði varla að þekkja
baróninn. Nýr, svartur hattur, og
dökkur yfirfrakki. Og þegar bann
var kominn úr bonum, þá kom
í ljós, að hann var í kjólfötum.
— Þjer horfið á mig, Jakob.
Já, það er ekki að undra!
— Baróninn er ákaflega glæsi-
legur i kvöld.
Jakob var annars vanastur því
að sjá baróninn í gömlum, grá-
um jakkafötum, sem voru 'slitin
á ermunum og með hnje í bux-
unum.
— Ný kjólföt — eftir nýjustu
tísku, sagði baróninn hlæjandi.
— Systir mín vildi ekki sjá mig
í gamla kjólnum lengur, sagði
hún. Og hvað er þá að gera?
bætti hann við næstum afsak-
andi.
— Það er afmælisdagur etats-
ráðsfrúarinnar í dag? datt Jakob
skyndilega í hifg. — Til ham-
ingju!
— Sjötíu ára, Jakob. Stór-
veisla. Ostrur og kampavín. Og
hvað ætli sumir fái svo þegar
þeir eru sjötugir? Ætli maður fái
ekki bara að koma hingað og
borða kjötkássuna sína eins og
venjulega. Ætli ekki það!
— Jeg skal setja blóm á borð-
ið, sagði Jakob. En það er nú
langt þangað til.
— Átta ár, Jakob. Kallið þjer
það langt? Ne-i, ekki te í kvöld
Jakob. Whisky! Whisky og sóda-
vatn.
— Whisky! sagði Jakob gamli.
Slíkt orð hafði hann aldrei heyrt
áður af vörum barónsins.
Baróninn settisl við sitt gamla
borð og þreifaði í vösum sínum
eftir gleraugunum til þess að
liefja kvöldlesturinn. Þá mundi
bann alt í einu eftir, að það var
einglyrni í kvöld. Einnig skipun
frá etatsráðsfrúnni.
— Þú lítur ákaflega tiginmann
lega út með þetta einglyrni,
Erik, hafði bún sagt eftir borð-
haldið, þegar liún var að slá
honum gulhamra fyrir ræðuna
bans. Hún bafði sagt honum að
kaupa einglyrnið fyrir liennar
reikning, ásamt kjólfötunum.
Baróninn setti upp einglyrnið
og leit í stóra spegilinn á veggn-
mm beint á móti. O, júu, jú —
o, jú — það leyndi sjer ekki.
Ættarmótið var auðsætt. Barón-
inn brosti til sjálfs sín í spegl-
inum. Hann var að hugsa um
ræðuna, sem liann liafði haldið.
Fyndin og alls ekki laus við and-
ríki. Ungu stúlkurnar liöfðu bros-
að til hans með aðdáun og hann
hafði endurgoldið brosið, með
dálítið örvandi glampa í augum
.... baróninn brosti ósjálfrátt
aftur. En þá tók ’liann alt í einu
eftir tveim ísmeygilegum kven-
mannsaugum, sem horfðu á
bann í speglinum,. og hlógu til
lians úr einum básnum.
Honum lá við að missa ein-
glymið, en stemningin frá mið-
degisveislunni hafði ennþá yfir-
böndina, og baróninn gerði það,
sem honum mundi aldrei hafa
dottið í hug allsgáðum: Hann
kinkaði kolli til baka og brosti
örlítið. Og hann gat ekki betur
sjeð en að konan kinkaði kolli
líka.
Alt í einu var eitthvað rjálað
við borðið hans og hann leit
framan í Jakob, sem virtist vera
eitthvað hissa. Baróninn flýtti
sjer að snúa sjer aftur að whisky
inu.
— Mjer sýndist jeg þekkja
þessa konu, sagði hann eins og
til útskýringar.
— Fyrirgefið, sagði Jakob. —
Hvaða konu á haróninn við?
— Nú, jeg hjelt, að þjer hefðuð
sjeð, að jeg var að heilsa henni.
Baróninn hló. — Jeg meina bara
— jeg held að jeg hafi hitt þessa
konu áður.
— Mikil ósköp. Jakob gamli
rak tappann í flöskuna.
Jakob gamh dró sig i hlje.
Hann hafði fengið dálítið að
hugsa um.
Konan þarna inn i stúlcu nr.
tvö, hafði verið honum þyrnir í
augum alt kvöldið. Honum hafði
oft dottið i hug hvað mundi ske,
ef skilrúmið að na^tu stúku
fyrir framan hyrfi skyndilega og
fulltrúinn sæi konuna sína og
liún sæi hann — með annari
konu. Hann var feginn þessu þili.
Hann hafði tekið svo sárt til
frúarinnar.
Hún virtist vera svo einmana
yfir súkkulaðibollanum sínum.
Af sjónaukanum, sem lá á borð-
inu hjá lienni mátti ráða, að hún
hefði verið í leikhúsinu. Hún
hafði lika komið mjög seint, og
sem betur fór hafði hún ekki
sjeð hverjir sátu í næstu stúku
fyrir innan. Jakob gamli hafði
áhyggjur út af því hvort þeirra
mundi fara fyr. Hann vonaði, að
það yrði frúin. Hin hefðu orðið
að fara fram hjá henni. Hún
heyrði ekki málróminn. Kvöld-
kyrðin í kaffihúsinu kom fólki
ósjálfrátt til þess að tala mjög
lágt, næstum því hvíslandi.
Það var langt siðan, að hann
hafði sjeð fulltrúann og konuna
lians. Áður fyr komu þau þar
oft. Fyrst á meðan þau voru trú-
lofuð. Seinna þegar þau voru
nýgift. Það voru líka ein þrjú
ár síðan hann hafði sjeð þau
síðast og það kom við hann að
sjá þau aftur — þannig. Hana
aleina, og hann með annari konu.
Hún viðhafði enga hæversku,
konan sem hann var með. Kaffi
með líkör og konjaki. Siðan
whiski og portvín — alt i einni
hunu. Og svo sat konan hans við
hliðina á þeim með súkkulaðið
sitt. Hún hafði altaf drukkið
súkkulaði frá því fyrsta. Sjálf-
sagt hefur hún farið hingað af
því að henni hefur fundist ein-
manalegt heima, veslingnum.
Bara að hún færi nú á undan
hinum.
Jakob gamli herti upp hugann
og tifaði til hennar þar sem hún
sat.
— Jeg er hræddur um, að hann
ætli að fara að rigna, sagði hann
eins og í trúnaði. — Jeg held
það væri best fyrir frúna að
reyna að komast heim áður en
hann dynur á.
— Þakka yður kærlega fyrir,
sagði hún dálítið vandræðaleg og
brosti. Jeg hefi enga regnhlíf
með.
— Nei, jeg sá það, laug Jakob.
Hann tók kápuna hennar ofan af
snaganum, eins og í hugsunar-
leysi.
— Já, þá verð jeg víst að fara,
fyrst þjer heinlínis rekið mig
út, sagði hún brosandi.
Uin leið og Jakob hjálpaði
henni í kápuna, sneri liann sjer
þannig, að hún gat ekki sjeð
yfir í næstu stúku.
Jakob ljetti mikið þegar hún
var komin út úr dyrunum, og
hann fór nú að líta eftir barón-
inum, til þess að sjá livort hann
vantaði nokkuð, og sá liann þá
að baróninn brosti til einlivers í
speglinum.
Nú, svo það var þessi kona,
sem baróninn þekti! Hm!
1 næstu stúku var byrjuð
orðasenna. Þegar fólk kemst í
æsing, talar það hátt, og sumum
er alveg sama hver heyrir til.
Fulltrúinn sagði: —
— .... þótt þú kærir þig ekk-
ert um mig, þarftu liklega ekki
að sitja og senda öðrum hýr
augu, þegar jeg er við. Jeg vil
ekki hafa mig að fifli. Þú vilt
kanske heldur þennan karlfausk,
sem þú ert að skjóta á í spegl-
inum.
— Kanske, sagði konan.
— Gott og vel. Fulltrúinn stóð
upp. — Þá er alt búið milli okk-
ar. Þetta er ekki í fyrsta sinn,
sem þú gerir mig að bjálfa. Jeg
þoli það ekki.
— Það finst mjer heldur ekki
að þú ættir að gera.
— Gjörið þjer svo vel, kallaði
fulltrúinn til Jakobs, sem hafði
reikninginn tilbúinn. Siðan greip
liann hatt sirtfí og frakka og
skálmaði út.
— Frúin —? stamaði Jakob,
og leit í áttina til kápu hennar.
— Jeg ætla ekki að fara strax,
sagði hún með fiskbrosi.
Baróninn var að fara. Eftir að
liafa borgað reikninginn og lítið
í spegilinn í 'síðasta sinn, gekk
hann út að dyrunum og bauð
góða nótt.
Jakob lieyrði útidyrahurðina
skella. Þegar hann var að taka
til á horði barónsins, tók hann
eftir nafnspjaldi á gólfinu. Bar-
óninn hlaut að hafa mist það.
Jú, jú: Erik Holtenstein, kóróna
og svo heimilisfangið.
Jakob horfði á það nokkra
stund, og án þess eiginlega að
gera sjer grein fyrir því, þá leit
hann í spegilinn. Konan var þar
ekki. Stúkan var auð. En hún
gat þó ekki verið farin — kápan
hennar hjekk þar ennþá.
Jakob hugsaði til litlu fulltrúa-
frúarinnar og beit á vörina. Hann
leit aftur í spegilinn, og gekk svo
að borðinu í stúku nr. 2. Þar
lagði hann nafnspjald borónsins,
eftir að hafa brotið upp á eitt
hornið, og flýtti sjer svo fram
aftur. Hann hjelt áfram að
Frh. á bls. 11.