Fálkinn - 08.11.1940, Blaðsíða 15
F Á L K I N N
15
Uppruni reikningslistarinnar.
Hjá flestum líður varla svo dag-
ur, aS hann þurfi ekki á reiknings-
kunnáttu aS halda. Menn draga frá
og leggja saman, margfalda og deiia,
gera áætlanir og reikninga, og töl-
urnar eru sistarfandi þjónar. En
reikningslistin á sína þróunarsögu
og er máske einn mikilsverSasti
þáttur mannlegs skynjunarþroska.
Sennilega er hún jafngömul meSvit-
undinni um eignarrjettinn. þegar
maSurinn þurfti í fyrsta sinn aS
skifta gæSum lífsins milli sín og
sinna, stakk reikningslistin upp
höfSinu. Ef ÁstralíumaSur á aS
skifta hrúgu af kokoshnotum milli
sjö fjelaga sinna þarf hann alls
ekki aS þekkja töluna sjö. Hann geng
ur á röSina og gefur hverjum eina
linot í einu. En þegar hann tekur
eftir, aS fjelagarnir eru jafn margir
og allir fingurnir á annari hendi
hans aS viSbættum tveim fingrum á
hinni hendinni, er hann farinn aö
reikna. Fingur annarar liandar tákna
töluna 5.
ÞaS er auSsjeS, aS tölur hafa ver-
iS miSaSar viS limi á líkamanum, í
upphafi, því aS flestar þjóSir nota
tölurnar 5, 10 og 20 sem grundvall-
artölur. Menn hafa reiknaS á fingr-
um sjer og talan tíu hefir orSiS
grundvallartalan. Fólk, sem hefir
gengiS berfætt hefir jafnframt notaS
töluna 20 — taliS á tám sjer líka.
Sumir Indiánaflokkar reikna á þessa
leiS: Ein hönd, tvær hendur, tvær
hendur og fótur og lieill maSur =
20. Rómversku tölurnar eru gott
dæmi þess, aS tugakerfiS er bygt á
fingrafjöldanum. I táknar fingur, II
tvo fingur, V er mynd af hendi meS
þumalfingrinum spertum út á hliS.
Talan tíu hefir veriö skrifuS meS
tveimur V, sem snúa oddunum sam-
an = X.
Þegar tugirnir náSu ekki til
bjuggu menn sier til eininguna 100
og næsta stökkiS var upp i 10x100
= 1000. Hærri tölur höfSu frum-
þjóSirnar enga þörf fyrir, og þaS
IeiS meira aS segja á löngu áSur en
þær fóru aS nota svo háar tölur.
Snemma hafa menn fariÖ aS nota
fleiri tæki en fingurnar viS reikn-
ing, einkum til aö muna útkomur.
Reikningsspjöld og, kúlurammar, sem
notaS er í barnaskólunum er æfa-
gamalt. HafSi hver eining sinn lit.
Ýins önnur tæki gerSu menn sjer til
aS ljetta reikninginn, svo sem töl-
ur meS miskonar lögun og stærS.
Næst fara menn aS nota tölureikn-
ing. Fyrstu tölurnar voru aSeins
strik og var skástrikaS yfir þegar
komnar voru svo margar, eins og
nú er gert þegar taliS er saman viS
atkvæöagreiSslur. Hjer hefir áSur
veriS minst á rómversku tölurnar.
Grikkir notuSu bókstafina fyrir töl-
ur ■—- a varS = h = 2 o. s. frv.
Tíundi bókstafurinn varS 10, sá 11.
táknaSi 20. Þetta var ekki fljótleg
aSferS en þó mun betri en hjá Róm-
verjum. ÞaS er erfitt aS skrifa háar
tölur meS rómverskum stöfum.
Af gömlum áletrunum má fá ýmsa
fræSslu um reikningskunnáttu forn-
þjóöanna. Egyptar voru snemma á-
gætir landmælingamenn. Þegar Níl
fjaraSi eftir flóöin varö aS mæla
landiS í hvert sinn, svo aS hver
fengi sína skák rjetta, eftir flóSiS.
Eyggingar Egypta sýna og, aS þeir
voru mætavel aS sjer í reikningi.
ÞaÖ er til kenslubók í reikningi frá
nál. 2000 árum f. Kr., er sýnir live
miklir reikningsmenn Egyptar voru.
En Babýlóníumenn voru þeim þó
fremri. Þeir skiftu m. a. hringnum
í 360 gráöur og virSast hafa notaS
töluna 60 sem grunntölu, en 360
daga töldu þeir í árinu.
Grikkir bygSu reikningsvísindi
sín á grundvelli Egypta og Babylon-
íumanna. Þeir eru höfundar þeirrar
flatarmálsfræSi, sem er í fullu gildi
enn í dag. Nefndu þeir hana geo-
metri, sem eiginlega þýSir kmd-
mæling.
Indverjar og síöan Arabar urSu
meistarar í reikningi og notuSu
talnakerfi þaS, sem enn er notaS
viS allan reikning. ÞaS voru Ind-
verjar sem fundu upp margföldun-
araSferSina og aS nota núllin I
reikningi.
lV(V(V/VíV
NÝJA BÍÓ. Frh. af bls. 2.
vonda menn hafa sig að hand-
bendi. Nú kemur lika dugleg og
kraftmikil slúlka inn í leikinn
og hjálpar Jeff til að berjast
hinni góðu baráttu. Hún lieitir
Clarissa Saunders.
Helstu lilutverkin eru þannig
skipuð:
Clarissa Saunders . Jean Arthur
Jefferson Smith James Stewart
Joseph Paine .... Claude Rains
Jim Taylor .... Edward Arnold
Hopper, ríkisstj. . . Guy Kibbee
Diz Moore, bl.m. Thomas Mitchell
Myndin er frá Columbia. Leik-
stjóri er Frank Cabra.
STUART
BÁTAMÓTORAR.
l/z, 4 og 8 ha.
Þektir um alt Bretland
2 vikna afgreiðslutími.
GIsli Halldórsson
verkfr.
Austurstræti 14.
Ðtbreiðið Fðlkann.
Gefjunar fot!
Fylgjum ávalt nýjustu tísku í karl-
mannafatnaði.
Ný fataefni koma vikulega frá verk-
smiðjunni á Akureyri.
V erksmið juútsalan
Gefjun - Iðunn
Aðalstræti.
Klæðaverzlun - Saumastofa - Skóverzlun.
Linoleum
í fjölbreyttu úrvali.
Á. BÝÍaiarson Fimk
Tryggvagötu 28. Reykjavík. Sími 3982.
Karlmannaskóhlifar
Kvenskóhlifar
Barnaskóhlífar
Mikið úrval
Skóverslun Þórðar Péturssonar
í veitingahúsinu.
Gesturinn: „Þetta er lítill matar-
skamtur! ÞaS var miklu meira, sem
þjer IjetuS mig fá í gær.“
Þjónninn: ,„Hvar sátuS þjer þá?“
Gesturinn: „Út viS gluggann
þarna.“
Þjónninn: „Ójá, þaS hefir veriS
skamturinn til þess aS stilla út i
gluggann.
Frú Filippía hefir eignast hund
og kemur nú inn i húS og biöur
um drykkjarskál handa hundinum.
BúSarmaSurinn spyr, livort þaS eigi
aS vera skál, sem á sje letraS:
„Handa seppa“.
„l>aö er mjer sama um“, svaraði
frú Filippía. „Manmnum mínum
dettur aldrei i hug aS drekka vatn
og hundurinn kann ekki aS lesa.“
Best er að auglýsa í Fálkanum
* Allt ineð íslenskum skipuni!