Fálkinn - 29.11.1940, Page 2
2
F Á L K I N N
- GAMLA BÍÓ -
Einmanalegt hus, rökkur og skugg-
ar, skógurinn þögull og dimmur, einu
fuglarnir sem láta til sín heyra, eru
uglurnar, — fuglar næturinnar, fugl-
ar húmsins og galdranna,
Þorir nokkurt ykkar að ganga inn
i slikt hús? Þar sveima svipir lið-
inna kynslóða yfir vötnunum, þar er
æ’ttardraugurinn alltaf á næstu grös-
um.
Það er ekki algengt, að íslendingar
fái siíka landareign í sin hlut þegar
erfðabúum er skipt. En við höfum
hinsvegar oft haft fregnir af slíku.
Það er eimnitt þeita, sem gerist í
kvikmyndinni „Kötturinn og kanarí-
fuglinn", sem Gamla Bíó sýnir innan
skamms.
Það er gamlasagan um gamlan
sjervitran mann, sem ekki vill gera
erfingjunum það til geð að selja þeim
strax í hendur öll völd yfir pening-
um, sem þeir hafa ekki haft fyrir
að afla.
Til þess að erfðaskrá hans verði
enn áhrifameiri og láti ef.ir sig þau
merki, sem höfundurinn óskar, á-
kveður hann, að erfðaskráin sje les-
in upp í gamla húsinu, þar sem allir
draugarnir og vofur ættarinnar geta
hlustað á. Eina lifandi veran, sem
lifað hefir í þessu ömurlega húsi er
ráðskonan, Miss Lu, sem ekki lætur
á sig fá dauða og tómleik. Hún er
leikin af Gale Sonderland, og er það
hlutverk, sem áhorfendur ætlu sist
að gleyma þegar þeir liorfa á þessa
kvikmynd.
Við íslendingar höfum altaf verið
hneigðir fyrir dulræn fyrirbrigði,
hví ættum við að vera það síður nú?
Hjer er draugamynd, sem jafnast
fyllilega á við gömlu draugasögurn-
ar okkar. Og ekki ætti það að spilla
fyrir, að þau Paulelte Goddard og
Bob Hope leika aðallilutverkin.
Þið verðið áreiðanlega myrkfælin
fyrst, þegar þjer horfið á þessa
mynd. En fyrst og fremst er hún
spennandi.
«v/ /V<V/V(V/V/V/V/V/V(V<V/V/V/V/N/ (VIVIV (V /V/V /V/W ÍV
- NÝJA BÍÓ -
Suður-Ameríka er eitt af æfintýra-
löndum þessa heims. Þar eru þjettir
skógar, erfiðir yfirferðar, fullir af
villidýrum og ægilegustu hæ.tum.
Þar eru vatnsmestu fljót veraldar,
þar eru Indíánar. Alt það sem lokkar
unga æfintýramenn og þeir sjá i
hillingum dramna sinna, birtist þeim
í Suður-Ameríku. Og á þessum slóðum
finnast menjar hinnar elstu menning-
ai' Vesturálfu. Allir sem lært hafa
eittlivað í landafræði og sögu kann-
ast við ríki Inkanna í Peru, sem
lifðu sjálfstæðu menningarlífi áður
en Evrópumenn lögðu þessi lönd und-
ir járnhæl sinn með grimd og skiln-
ingsskorti — oftast nær. En menjar
um forna frægð má enn sjá í Perú.
Þar eru jafnvel heilar borgir, geysi-
miklar rústir, sem segja frá löngu
liðnum öldum, horfnum kynþætti.
Ipn í öll þessi æfintýri leiðir
kvikinyndin, sem næst verður sýnd
í Nýja Bíó okkur. Hún heitir Græna
vítið (Green Hell), amerísk kvik-
mynd frá Universal Film.
Myndin hefst i Tabatinga í Bras-
ilíu. Þar er verið að búa út leið-
angur, sem hefir það markmið að
leita uppi musteri Inkanna í Perú.
En þar búast leiðangursmenn við að
finna dýra fjársjóðu. Annar aðal-
maðurinn í leiðangri þessum er
Keith Brandon, ungur æfintýramað-
ur, þaulvanur hitabeltisferðalögum.
En leiðangursmenn lenda í liinum
mestu æfintýrum og hættum. í skóg-
unum leynast Indíánar, sem leggja
fæð á ferðamennina og gera þeim
alt til bölvunar, sem verða má. Um
síðir finna þeir þó musterisrústir og
taka til óspiltra málanna. En Indí-
ánarnir eru enn á hnotskóg eftir
þeim og tekst þeim að særa einn
leiðangursmanna, Richordson að
nafni, lil ólifis. Ekki reynist gerlegt
að bjarga lífi hans og deyr liann. En
ekkja hans, Stephanie, kemur nú á
vettvang og þá hefst annar þáttur
leiksins. Leiðangurmennirnir hafa
ekki sjeð kvenmann í langan tíma og
getur ekki hjá því farið, að eiithvað
af þeim verði skotið í heiini. Þar á
meðal er sjálfur Brondon, annar for-
ystumaðurinn.
Nú er ástandið ekki gott, leiðangur
í hættulegu umhverfi og leiðangurs-
menn skotnir í einni, ungri ag fall-
egri ekkju, en ekki verður meira
rakið lijer úr myndinni.
Brandon, liinn unga fullhuga, leik-
ur Douqlas Fairbanks yngri, sem er
góður og skemtilegur leikari eins og
liann á kyn til. Einkum læ'.ur honum
vel að leika æfintýramenn, sem mik-
ið reynir á og komast í liann krapp-
an.
Stephanie Richardson, hin unga
ekkja, er leikin af hinni frægu leik-
konu Joan Bennett.
Leikstjóri er James Whale.
Fjaðrafok.
W31
1
Egill Vilhjálmsson tilkynnir:
KOMINN HEIM FRÁ AMERÍKU.
Hefir nú fengið mikið úrval af varahlutum í flestar tegundir bíla, til dæmis:
Kveikjuhluta.
Fram- og afturfjaðrir.
Stimpla og hringa.
Bremsuborða.
Spindilbolta.
Þurkarate'na og blöð.
Bolta og rær allsk.
Rafgeyma.
Rafleiðslur.
Fóðringar allsk.
„Dýnamóa“.
Dýnamóbursta.
L
Þetta er aðeins lítið sýnishorn, komið eða hringið í síma og spyrjist fyrir um verð.
Dtvega einnig flestar tegnndir varahluta.
Alt á §ama §tað.
EGILL VILHJÁLMSSON H.F. LAUGAV. 118 sími un
Jk
Slagæð fullorðinna slær að meðal-
tali 72—76 slög á minútu, en ný-
fæddra barna 130—140 slög.
Hárið vex nálægt 12 millimetra á
mánuði, og er 1/16 úr millimetra i
þvermál.
Hárið er endingarbest allra hluta
mannlegs líkama, en „lifir“ þó ekki
nema eitt til fjögur missiri. Þá delt-
ur það af, en nýtt hár kemur i stað-
inn.
Þýskir fallhlífarhermenn hafa fjaðr
ir neðan á stigvjelahælunum til þess
að koma betur niður, þar sem hart
er undir.
Mesta dýpi sem kafbátur getur kaf-
að — og komist upp úr aftur — er
rúm fjögur hundruð fet.
Tuttugu og átta miljón hænur þarf
til þess að sjá íbúum Lundúnaborgar
fyrir eggjum.
Fæturnir vinna meira starf en
nokkur annar hlut likamans — og
eru að jafnaði verst hirtir.
llottan eyðileggur verðmæti fyrir
12—13 krónur á ári. Og i heiminum
eru helmingi fleiri roltur en menn.
Silkiormurinn spinnur um kílómet-
ei af þræði á þremur dögum.
Giftust á landamærunum.
Við Kornsjö, á landamærum Noregs
og Svíþjóðar, fór einkennileg hjóna-
vígsla fram i vor. Sænskur pillur átli
unnustu í Noregi og vildi fá hana
heim til sin eftir að styrjöldin var
skollin á i Noregi. En sem norskur
þegn fjekk hún ekki vegabrjef yfir
landamærin. Þau mæltu sjer því mót
við landamærin i Kornsjö og Sviinn
hafði með sjer prest, sem gaf þau
saman á landamæralínunni. Síðan fór
nýja frúin yfir landamærin, sem
sænskur ríkisborgari.
Zogu og loðkápurnar.
Fulllrúi loðskinnaverslunarinnar
„Horowits“ í Wien kom lil Paris í
vor og stefndi Zogu Albaníukonungi
fyrir skuld. Hann hafði keypt loð-
kápur handa systrum sínum og Ger-
aldínu drotningu í Wien í fyrra fyrir
20.000 sterlingspund og látið „skrifa"
þær. Engin sætt varð í málinu og
það fór til dómstólannn. En mála-
flutningsmnður Zogu hefir mótmælt
málshöfðuninni með þeim rökum, að
konungum verði ekki stefnt fyrir
dómstóla og að Zogu sje enn kon-
ungur. Nú verður franski dómstóll-
inn að skera úr málinu og þar með
er kveðinn um lagaúrskurður um
hvort Zogu Albaníukonungur lialdi
enn rjetti sinum. Frakkar liafa ekki
enn viðurkent yfirráð ílala yfir
Albaníu, og getur farið svo, að Zogu
græði 20.000 pundin á þessu.
/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W/W
Geymdi líkið í sjö ár.
Það hefir orðið uppvíst um enska
stúlku,Violet Rita Howard, að hún
liefir geymt lík móður sinnar í húsi
sinu í sjö ár, fyrst í kassa og síðan
í poka. Þegar það komst upp var
ekki eflir nema beinagrindin. Dótt-
irin sagði lögreglunni að inóðir sín
liefði dáið 10. október 1933, 84 ára
gömul, en hún hafi ekki „timt að
sjá af líkinu.“ Nú liefir líkið verið
jarðað en Violet sett á geðveikraspit-
ala.