Fálkinn - 29.11.1940, Side 3
F Á L K I N N
3
Skradðarabankar.
„Lofaðu svo eian, að þú lastir ekki
annan.“ Þvi að mannkynið er ekki
svo gæðasnautt, að nauðsynlegt sje
að stela lieiðri af einum til að auka
hróður annars. það þykir ekki heið-
arlegt að stela til að verða ríkur og
það gildir jafnt hvort sem það er
fjemæti eða mannorð, sem stolið er.
Og má það lieita enn lakara að stela
mannorðinu, því að flestir telja sjer
það meira virði en fje.
En alt er afstöðunni háð. Fjallið,
sem stendur á hálendi, innan uin
marga tinda, sýnist ekki eins stórt og
hitt, sem skagar fram í sjó, þó það
sje í rauninni iniklu hærra. I>að er
lika svo, að minna ber á höfðingj-
anum, sem býr innan um afreksmenn
en hinum', sem er einn í sveit með
amlóðum. Hið raunverulega mann-
gildi þeirra tveggja verður ekki mælt
nje metið af lunhverfinu heldur af
þeim sjálfum, á sama liá’tt og hæð
fjallsins yfir sjávarmál, en ekki yfir
hálendið, sem það stendur á.
En dóinar um menn eru að jafnaði
mannjafnaðardómar. þessi er meiri en
liinn eða minni en hinn. Og til þess
að gera þennan sem mestan er hinn
gerður sem minstur. En það er sama
aðferðin og rífa niður Súlur til að
gera Kerlingu hærri eða grafa Kjöl
niður í sjávarmál til að hækka Hofs-
jökul. Mannjöfnuður þessi er þvi eng-
inn mælikvarði, hann er í eðti sínu
neikvæður. Til þess að lýsa manni,
svo að gagn sje að, verður að gera
sjer grein fyrir hvaða meðaltal megi
leggja á fjöldann, og athuga síðan
að hverju leyti liver einstaklingur
fari fram úr því meðallagi, alveg á
sama hát’t og menn miða vaxtarlag
manna við meðalhæð.
Mannlýsingar islenskra fornbók-
menta mættu vel vera til fyrirmyndar
enn i dag. Þær eru stuttorðar og
kjarnyrtar og þar felst i einu orði
eða stuttri setningu betri mynd af
andlegum og likamlegum eiginleik-
um en venja er að fyrirfinna í nú-
tíma-bókmentum. Það er nú að visu
svo, að þegar mannlýsingar eru rit-
aðar nú á dögum — það er aðaltega
um eftirmæli að ræða, þá er tæki-
færið ekki notað til að rýra aðra. En
i munnlegum dægurdómum er það títt
að gera samanburð á ákveðnum
mönnum og hossa einum en niða
annan. Þessi aðferð er tiðust á
stjórnmálasviðinu en liefir gripið
viða um sig og ruglað mat fjöldans
•á einstaklingum og athöfnmn þeirra.
Konungur Knattspyrnumaður.
Áhugamenn um knattspyrnu í Jugo-
slavíu bíða þess með eftirvæntingu,
að konungur þeirra, Pjetur annar,
verði myndugur. Þá hefir hann nefni-
lega lofað að taka þátt í opnberum
knattspyrnumótum, en nú fær hann
ekki Ieyfi til þess fyrir ríkisstjóran-
um, Páli frænda sínum. En liann er
eldheitur af áhuga fyrir knattspyrnu
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Aðalskrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6.
Blaðið kemur út hvern föstudag.
kr. 6.00 á ársfj. og 24 kr. árg.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura inillim.
HERBERTSprent.
Leikhúsið:
ÖLDIJB
Leíkrit i 3 þáttum eftir séra Jakob Jónsson frá Hrauni.
Gullbrúðkaup áttu 23. þ. m. hjónin Narfi Jóhannesson fyrrum
stýrimaður og Sigríður þórðardóttir, Austurg. 43, Hafnarfirði.
Brynjólfur Jóhannesson sem Ásmuintur og Gunnþórunn Ilalldórsdóttir'
sem Hildur kona hans.
Leikfjelag Rcykjavíkur sýndi i
fyrsta sinn á föstudaginn var leikrit
þetta. Þó er þetta ekki i fyrsta sinn,
sem það kemur á leiksvið, þvi það
mun hafa verið sýnt áður vestan-
hafs, og er samið þar, því að höf-
undurinn hefir dvalið meðal íslend-
inga í Kanada undanfarin sex ár.
Fjekk leikurinn hinar bestu viðtök-
ur á frumsýningunni, enda mátti
meðferð leikenda heita góð og á
köflum ágæt og verður þar eftir-
minnilegastur Brynjólfur Jóhannes-
son í hlutverki Ásmundar gamla for-
manns. Önnur hlutverk ljeku þau
Gunnþórunn Halídórsdóttir, Alda
Möller, Valur Gíslason, Þóra Borg og
Alfred Andrjesson. Fálkinn birtir
hjer tvær myndir úr leiknum.
T. h. Þóra Borg sem Erla.
-
Haltgrímur Valdimarsson af-
greiðslumaður, Akureyri, varð 65 ára
á mánudaginn var. Eins og landfrægt
er orðið hefir Hallgrímur gerl
manna mest að þvi, -að cfla leiklist
og vinna lienni gagn í höfuðstað
Norðurlands, og mun hans lengi
verða minst fyrir það. Fálkinn ósk-
ar honum til hamingju með afmælið
og árangurinn af því starfi sem
minst var á.
Guðmundur Gamalíelsson, bók-
sali, varð 70 ára 25. þ. m.
Steinþór Guðrnundsson, kenn-
ari, Ásvallagötu 2, verður 50
ára i. desember.
og æfir sig af kappi og er miðfram-
herji í fjelagi sínu og lætur sig ekki
vanta á nokkra œfingu, þó að liann
fái ekki að leika i opinberum kapp-
leikum. Þá verður liann að sitja
heima og hlusta á viðureiginina í út-
varpinu. og svo les hann alt um
knattspyrnu, sem liann kemst yfir.
Pjetur er sonur Alexanders konungs,
sem myrtur var í Marseille af kró-
atiskum fhigumönnum fyrir nokkrum
árum.