Fálkinn - 29.11.1940, Qupperneq 11
F Á L K I N N
11
Þrjár jólagjafir.
wmmm
Hnífahylki fyrir sex hnífa.
Efni: Hvítt og rautt bóniullargarn
nr. 10, tveir prjónar nr. 3.
Prjónaaðferð: Fjtjið 50 1. með
rauða garninu og prjónið bn'ui 1:
sex prjónaðir rjettir, siðan er prjón-
að með livíta garninu á, svo er prjón-
aður rjettur prjónn og tvær rjettar
af brugðna prjóninum, og sex brugðn-
ir prjónar og endað með tveirhur
rjettum. Þessi aðferð er notuð alltaf
þegar prjónað er með hvíta garninu.
Þegar komnir eru 16 cm. er aftur
prjónuð brún 2 með rauða garninu:
einn prjónn rjetlur, tveir brugðnir,
einn pr. rjettur, einn pr. brugðinn,
tveir pr. rjettir, einn pr. brugðinn.
Prjónið svo 22 cm. með livíta garninu
og prjónið brún 2, prjónið 5 pr. nieð
hvita earninu og prjónið þá brún 1
og fellið af.
Samansetning: Brjótið hylkið sam-
an um C (mynd 1), og saumið rend-
urnar saman, svo að myndist hólf
fyrir livern hníf (mynd 2). Takið
upp lykkjur frá D til A og prjónið
5 pr. rjetta og fellið af. Eins er farið
með hina liliðina, og brúnirnar eru
síðan brotnar og saumaðar fastar
um A. og D.
Vindlingahylki.
í hylki þetta kemst vindlingapakki
með 20 stykkjum, ef lokið er klipt
ofan af.
Efni: Rjómalitt silkigarn, og grænt
og rautt bródergarn, 5 prjónar nr. 7
og 8 cm. rennilás.
Aðferð: Byrjið á boln'inum. Fitjið
upp 34 1. á pr. 1 með rjómalita garn-
inu og prjónið 10 prjóna rjetta. Tak-
ið svo upp lykkjur meðfram hinum
hliðum stykkisins, sem búið er að
prjóna, 33 1. á löngu hliðinni og 4
1. á þeim skemmri. Það verða í alt
75 lykkjur. Síðan er prjónað í hring,
fyrst 4 umferðir með rjómalita garn-
inu, og siðan byrjað á röndunum,
sem eru prjónaðar þannig: 4 1. með
grænu, og takið eina rjómalita lykkju
lausa og lialdið þannig áfram alla
umferðina. Prjónið 3 prjóna á þenp-
an hátt og svo eina umferð græna,
prjónið eina rjómalita rönd með
löngum grænum lykkjum, eina rauða
rönd með löngum rjómalitum lykkj-
um og eina rjómalita rönd með löng-
um, rauðum lykkjum. Byrjið svo aft-
ur með grænni rönd og lialdið svona
ál'ram þar til komin er 6% cm.
Prjónið svo 4 rjómalitar umferðir,
síðan eina rjetta umferð og eina
brugðna til skiptis: Fyrst tvær rjóma-
litr.r umferðir, síðan tvær rauðar,
tvær rjómalitar, tvær grænar og
þrjár rjómalitar. Fellið siðan fast
að. Hylkið er lagt á rakan, mjúkan
pappír, þar til það er orðið sljett
og rennilásinn saumaður í þegar það
er orðið þurt.
Hjartalöguð budda.
Efni: Dökkrautt og rjómalitt, fjór-
þætt garn, 2 prjónar nr. 12, bómull-
arefni í fóður, stint ljereft og 8 cm.
rennilás.
Aðferð: Annar helmingurinn. Byrj-
að við oddinn. Fitjið 3 lykkjur upp
með dökkrauða garninu og aukið i
á miðlykkjunni á rjetta prjóninum.
Síðan er aukið á tveim lykkjum á
hvorri hlið á hverjum rjettum prjóni,
þar til komnar eru 24 1. Svo er að-
eins einni lykkju aukið i á hverjmn
rjettum pr., þar til komnar eru 30 1.
og svo er haldið áfram án þess að
auka í þangað til kominn er 6xk cm„
og þá eru feldar af 2 1. í miðjunni
og 14 lykkjurnar hvorum megin prjón-
aðar eins. Prjónið tvisvar sinnum
'tvær lykkjur sainan hvorum inegin,
þar til ,6 1. eru eftir, sem þá eru
feldar af. Hinn lielmingur buddunn-
ar er prjónaður alveg eins úr rjóma-
lita garninu. Saumið i dökkrauða
hjartað með rjómalita garninu og i
rjómalita hjarjað með dökkrauða garn
inu eftir mynd 5. Sniðið ljereftið og
fóðrið og saumið siðan budduna sam
an og setjið rennilásinn í.
Nýja Sjáland tíkist íslandi.
Enskir ferðalangar, sem koma til
íslands og hafa verið á Nýja Sjá-
landi áður, láta oft á sjer lieyra hve
þessum tveimur löndum svipi mikið
hvoru til annars. Frjósemi Nýja Sjá-
lands er að vísu meiri en íslands,
þvi að landið —• sem aðallega eru
tvær eyjar, Norðurey og Suðurey,
auk margra smáeyja — liggur miklu
nær miðjarðarlinu en ísland, eða á-
lika langt og Italía. Norðurey er
115 þús. ferkm. og Suðurey 152 þús-
und, en um tveir þriðju allra eyja-
skeggja eða tæp miljón tifa á Norð-
urey.
Eyjarnar eru að mestu leyti hryggj-
ótt hásljetta, kringum 400 metra
yfir sjó en hæstu lindar eru á 4. þús-
und metra (Afrangi eða Mt. Cook
er hæstur: 3768 m.). Þó að forngrýti
sje nokkuð á Norðurey (granit og
gneis) er mikill hluti eyjanna þó
með ununerkjum eldgosa og þar kem-
ur fram ættarmólið á Nýja Sjálandi
og íslandi. Þar eru hraunflákar og
mikið af eldfjöllum, sumum starfandi,
þar eru laugar, goshverir, brenni-
steinshverir og leirhverir. Og þar
eru lika jöklar með stórum skriðjökl-
mu, sem falla furðu langt niður, þrátl
fyrir liitann — tungubroddurinn á
Tasmanbreðanum, sem er um 30 km.
langur, kemst t; d. niður i 125 metra
hæð yfir sjó. Og þarna eru berg-
myndanir, sem svipar mjög til ís-
lands, skriður á fjallshliðum, stand-
berg i sjó fram, múlar, eggjar og
sundurjetnir tindar eins og i Öxna-
dalnum. Eyjaskeggjar eru orðlagðir
fyrir hve þolnir og fimir jieir eru
í fjallgöngum, þeir þjálfast eigi livað
síst í smalamenskunum. Fjöllin eru
þó ekki versti farartálmi ferðamanna
lieldur eru það auravötnin, jökulárn-
ar, sem bylta sjer sitt á hvað eins og
á söndunum lijer sunnanlands og
það þykir góður kostur á fylgdar-
manni á Nýja Sjálandi að hann sje
góður vatnamaður.
. Flest eldfjöllin á Nýja Sjálandi eru
þakin snjó eins og hjer, en þó ekki
meiri en svo, að hann hverfur að
kalla á sumrin. Svo er t. d. um Eg-
mont, Ruapeha og Ngauruhoe — liið
síðastnefnda hefir að visu verið snjó-
laust síðustu árin af því að það hefir
verið sigjósandi og rauður bjarmi
yfir gljáandi hrauninu þegar myrkva
tekur. En það skilur á líkindin við
ísland, að á Nýja Sjálandi eru fjöll
skógi vaxin upp undir snælínu eða
í 1000 metra liæð. Að því leyti svipar
landinu til Noregs.
Það var Hollendingurinn Abel Tas-
man, sem fann eyjarnar árið 1642
og gaf þeim nafn. En Cook, sem kom
þangað 1769 (ásamt Josepli Banks)
var sá fyrsti, sem kannaði þær að
nokkru ráði. Nam liann þar land í
nafni ensku stjórnarinnar en hún
þáði ekki. Það var ekki fyr en 1840
að Breíar lýstu yfirráðum sínum yfir
New Zealand og stofnuðu þar ný-
lendu. Þá voru um 2000 hvitir menn
alls á eyjunum og fóru þeir fram
með hryðjuverkum og ofbeldi gegn
innfæddum mönnum, Mairimönnum,
næstu 30 árin, svo að þeim fækkaði
mjög. Nú er friður koinin fyrir löngu
og skipun fjelagsmála á New Zea-
land er i flestu fremri því sem gerist
í öðrum löndum. Þar hefir til dæmis
verið komið á almennum eftirlaun-
um fyrir alla frá 65 ára aldri.
Kvikfjárrækt er aðal atvinnuvegur
New Zealands og það rná segja, að
framfarir þjóðarinnar hefjist þegar
hún fór að eignast frystihús og kæli-
skip. Frá Nýja Sjálandi kemur nefni-
lega besta sauðaketið i veröldinni og
auk þess framleiða Ný-Sjálendingar
nautakjöt, smjör og osta til útflutn-
ings. Þessi útflutningur er liáður því,
að frys’tihús sjeu til á öllum úl-
flulningshöfnum og að nóg sje af
kæliskipum til að koma afurðunum
á markaðinn, sem eigi síst er i Eng-
landi. Áður en frystihúsin komu gátu
landsbúar ekki flutt út annað en ull,
tólg og timbur. En 1882 komu fyrstu
frystiliúsin og síðan liefir útflutn-
ingsverslunin farið sívaxandi.
Það er mikið gert að því að hæna
skemtiferðamenn til Nýja Sjálands
og bæði Englendingar og Ameríku-
menn ferðast þangað mikið þó leiðin
sje nálægt hálfri umferð linattarins.
Hjá flestum er ferðinni lieitið til
Rotorua, en þar eru kynstur af hver-
um, heitum tjörnum og sjóðandi ám,
lcirhverirnir eru notaðir lil heilsu-
bótar gigtveikum og hafa risið þar
upp heilsuliæli. Skamt frá Rotorua
eru einnig hinir svonefndu Waaito-
mo-hellar, sem eru mjög frægir.
Ný-Siálendingar eru miklir Breta-
vinir. í heimsstyrjöldinni sendu þeir
100.000 manna her tit Evrópu og af
honum fjellu 58.000.
Boulder-stíflan
i Bandaríkjunum er mesta vatnsvirki
í lieimi og tekur langt fram Assuan-
stiflunni, sem Bretar settu forðum i
Nil. Þessi stífla í Colorado-fljótinu
var fyrst og fremst gerð í þvi mark-
miði að konia upp áveitum meðfram
fljótinu og einnig til þess að fá vatn
til Angeles og famleiða rafmagn til
stórra landsvæða i vesíurfylkjunum.
Sex ár var verið að byggja stifluna
og er hún 218 metra há, 360 metra
löng og 15.2 metra þykk. Aflstöðin
framleiðir 1355 miljón kllóvatt. En
lónið, sem myndaðist við stiflulileðsl-
una er 185 Kílómetra langt og 13
kilómetra breitt, 59.000 hektarar að
flatarmáli og rúmar 36 miljard ten-
ingsmetra af vatni.
Egils ávaxtadrykkir
/