Fálkinn


Fálkinn - 15.01.1943, Blaðsíða 3

Fálkinn - 15.01.1943, Blaðsíða 3
F Á L K I N N 3 / VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6 BlaðiS kemur út hvern föstudag Allar áskriftir greiðist fyrirfram HERBERTS prent. Skraððaraþankar. „íslendingar viljum vjer allir vera!“ segjum við bæði í tíma og ótíma. Við göngum með nasirnar og túlann úttroðið af blessaðri þjóðrækni, svo nð ókunnir gætu haldið, að við vær- um einstök fyrirmyndarþjóð. En hvar er framkvæmdin á öllu þessu mikla þjóðræknisskrafi og ættjarðar- ástarmasi? Það er full ástæða til að spyrja um þetta, og jafnvel aug- lýsa eftir henni undir „Tapað— fundið" í blöðum og útvarpi. Flestar þjóðir heimsins sýna' þegn- skap og þjóðhollustu þessi árin. Þær eru að berjast fyrir frelsi og framtíð ættjarðar sinnar, þær leggja alt í sölurnar: öll þægindi, ábata- von og jafnvel lífið sjálft. Útlendir sjómenn sigla um höfin fyrir lítið kaup og áhættuþóknunarlaust, úl- lent kvenfólk starfar i verksmiðjum og að stritvinnu, og spyr ekki um, hvort nokkuð sje i aðra hönd. Aðrar þjóðir strita fyrir lífinu. En hvað gerum við? Við látuin eins og striðið komi okkur ekkert við, eins og liagur annara þjóða i heiminum komi okkur ekkert við, eins og þau lögmál, sem ráða í striði og friði komi okkur ekkert við. Við græðum fje á stríðinu, og við not- um það til þess að gera okkur að fíflum. Við ökum í bifreiðum og metum mannvirðingar einstaklings- ins eftir því hve hann eignast marg- ar og dýrar bifreiðar, við kaupum hjegóma og látum okkur standa á sama um hvers virði hann er, bara ef hann er seldur nógu dýrt. En við eigum ekki húsnæði yfir fólkið i Reykjavík. í staðinn byggjum við loflvarnarbyrgi úr sandpokum, til þess að prýða bæinn. Við heimtum og heimtum. Við þykjumst geta krafist alls, en minn- umst ekki einu orði á, að við liöf- um skyldur við þjóðfjelagið, sem við teljumst til. Við högum okkur eins og illa vandir eftirlætiskrakk- ar, eins og ofaldir kálfar. Við þykj- umst vera vitrir en erum flón, þykj- umst vera ættjarðarvinir en erum ættjarðarníðingar, sem fyrirgerum áliti allra siðaðra þjóða á okkur og verðufn til athlægis, eða rjettara sagt erum orðnir það. — Ef islensk þjóð og íslenskt sjálfstæði á ekki að líða undir lok, þá verður alger sið- bót að gerast í hugsunarhætti og breytni þjóðarinnar. Henni væri hollara, að taka þessar birgðir af ættjarðarást, sem hún gengur með í nösunum, og koma þeim fjTÍr á íslenska studentafjelagið í Kanpmannahðfn fimtngt. í fljótu bragði kemur það undarlega 'fyrir sjónir að „Fje- lag íslenskra stúdenta í Kaup- mannahöfn“ skuli ekki vera miklu eldra en það er. Því að íslenskir studentar hafa sóll háskólamentun til Kaupmanna- hafnar öldum saman og lengst- um var Khöfn eina meiitahorg- in, sem stúdentar hjeðan sóttu, og átti Garðstyrkurinn cða ,JKommúnitetið“ drýgstan þátt í því. En styrkur þessi gerði fjöldamörgum stúdentum fært að stunda háskólanám erlendis, sem ella hefðu orðið að sitja heima og hætta að loknu stúd- entsnámi eða hverfa að því em- bættisnámi, sem liægt var að stunda hjer. Latínuskólastúd- entar gátu orðið prestar áður en prestaskóli var settur á stofn fyrir tæpum 100 árum, læknar gátu ekki mentast lijer fyr en eftir stofnun læknaskólans fyr- ir tæpum 60 árum, þegar und- an er skilið, að konungsúr- skurður var gefinn út um það, árið 1862, að landlæknir gæti kent læknaefnum. Og loks laga- skólinn árið 1907. Þannig var ástatt um hinar æðri mentastofn- anir í landinu þegar Háskóli ís- lands tók til starfa, 1911. En íslenskir stúdentar hjeldu áfram að sigla til Hafnar til menta, einkum í þeim fræðum, sem þá voru elcki kend í Há- skólanum, svo sem málfræði erlenda náttúrufræði og maim- virkjafræði. Og þó að Háskól- inn hjer tæki við fleiri stúd- entum en sjerskólarnir þrír höfðu gert áður, þá er þess að gæta, að stúdentum frá Menta- skólanum fjölgaði, svo að ekki dró úr tölu þeirra stúdenta, sem fóru til Hafnar. Það er fyrst eftir samþykt sambandslaganna frá 1918, að fækka tekur ís- lenslcum stúdentum í Kaup- mannahöfn og var orsökin til þess vitanlega sú, að þá var Garð- styrkurinn afnuminn. Stjórnin þótti siðferðislega skyld til þess að bæta stúdentum upp styrk- missirinn, en batt vitanlega ekki styrkveitingu hins opinbera við ákveðinn erlendan háskóla. Þessvegna fóru íslenskir stúd- entar eftir 1918 að dreifast um ýms lönd, auk Danmerkur, einkum til Þýskalands, en sum- ir til Noregs, Svíþjóðar, Eng- lands og Frakklands. Síðan ó- einhvern stað, þar sem þær geta börið betri ávöxt, t. d. í sjálfri með- vitundinni. Við erum ekki enn bún- ir að læra, hvað til þess þarf að bera þjóðarnafnið með rentu. friðurinn hófst hafa stúdentar hjeðan einkum farið til amerik- anskra háskóla. Af þessu leiðir, að Kaup- mannahöfn er ekki lengur sú miðstöð íslensks stúdenlalífs sem áður var. En þó er talið, að um 100 íslenskir stúdentar og lcandídatar sjeu í Danmörku — langflestir í Kaupmarmahöfn Og að því er virðist starfar stúdentafjelagið þar af miklu kappi hin síðustu ár. Það licfir fundið hjá sjer hvöt til þess að halda uppi þjóðræknisstarfseini ytra, síðan sambandið lokaðist að mestu við ættjörðina og held- ur þar i heiðri gamalli erfð, því að svo var löngum, að íslenskir stúdentar i Kaupmannahöfn voru vökumenn íslenskrar þjóð- ar og frömuðir í íslenskri sjálf- stæðisbaráttu. Nægir að minn- ast Baldvins Einarssonar, Fjöln- ismanna og Jóns Sigurðssonar þessu til sönnunar. Þessir menn hjeldu uppi ýmiskonar fjelags- skap meðal fslendinga í Kaup- mannahöfn, gáfu út rit og störf- uðu af kappi að heill þjóðar- innar og þróun íslensks sjálf- stæðis. Og svo var enn á síðustu árum baráttunnar, fyrir 1918, að íslenskir stúdentar í Höfn voru jafnan vel valcandi í sjálf- stæðismálinu. Nú stai'far Stúdentafjelagið í Höfn að því, að halda uppi ís- lensku menningarstarfi. bæði með því að halda kvöldvökur aðra hverja viku, þar sem allir fslendingar i Höfn bæði stúd- entar og aðrir hefðu ókeypis aðgang, og með því að halda úti ársfjórðungsriti, sem nefnisl „Frón“ og fjallar um íslensk menningarmál og flytur frjettir að heiman, eftir því sem því verður við komið. Aðal for- göngumennirnir fyrir þessu eru þeir próf. Jón Helgason og Jakob Benediktsson cand. mag. og annast þeir kvöldvökurnar og útgáfu ritsins. Báðir starfa þeir endurgjaldslaust. En starf- semi þessi kostar mikið fje, enda er tilætlunin, að ritið bei’- ist til sem flestra íslendinga á meginlandi Evrópu, livort sem þeir greiða áskriftargjald eða ekki. Rikisstjóx-nin hefir veitt nokkurn styi'k til þessarar starf- semi. Rjett fyrir nýjárið hóf Lud- vig Guðmundsson skólastjóri máls á því í útvai'pinu, að vel væri viðeigandi, í tilefni af 50 ái-a afmæli Fjelags íslenskra stxxdenta í Kliöfn, að reynt væi'i að safna nokkurri fúfgu lijer á landi til þessarar starfsemi. Nefnd sú, sem veitir forstöðu væntanlegu hátíðahaldi í til- efni af afmælinu, hefir fallist á þetta, en í þessai'i nefnd eru: Guðm. Guðmundsson ti-ygginga- fræðingur (foi'maður), dr. Björn Þórðarson forsætisi'áðherra, dr. Bjöi-n K. Þói'ólfsson, dr. Einar Ól. Sveinsson, Jón Siguiðsson ski'ifstofustjói-i Alþingis, Magn- ús Gislason skrifstofustjóri og Klemens Ti’yggvason hagfræð- ingur (gjaldkeri). Nefnd þessi hefir nú snúið sjer til útvarps og blaða með tilmæli um að þau veiti viðtöku næstu viku tillögum almennings til styrktar þjóði'æknismálefni því, sem Fjelag islenskra stúd- enta í Kaupmannahöfn hefir með höndum. Tilmælum þess- um er ekki einungis beint til stúdenta heldur og til allra annara, sjer í lagi þeii’ra, sem £iga ættingja í Evi'ópu. Því að stgi'fsemi þessari er ætlað að ná til sem flestra. Þannig verð- ur i’itið „Frón“ sent til allra ts- lendinga, sem til næst á megin- landi Evrópu, án tillits til þess Frh. á bts. n. Á Garði hittust islenskir stúdentar oftast í Kaupmannahöfn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.