Fálkinn


Fálkinn - 15.01.1943, Blaðsíða 10

Fálkinn - 15.01.1943, Blaðsíða 10
10 FALKtNN VHCWYV U/SNMIRHIR Lan i olani. „Þetta var þjer að kenna, Ásgeir. Þú hefir getað haft gát á honum Svip!“ „Af hverju hafðir jni ekki gát á hvítu raúsinni þinni? Ef þú hefðir látið hana vera kyrra í búrinu, þá hefði hann Svipur aldrei bitið hana,“ sagði Ásgeir. Garðar tök músina upp og selti liana í lófann á sjer. Þarna var ekki neitt hægt að gera, músin var slein- dauð. Ásgeir tók i hálsbandið á Svip og dró hann að sjer; hann vildi nefnilega ná í músina aftur, l>ví að hann var nú ekki greindari en þetta. Hvernig átti hann að vita, að það væri nokkur munur á venju- legum rottum og músum og á hvítu músinni hans Garðars? „Hvað varstu að vilja með hund- garminn þinn inn í viðarskúrinn okkar?“ hjelt Garðar áfram að nöldra. „Hann Svipur er enginn garmur,“ svaraði Ásgeir reiður. „Og þú liefir sjálfur sagt, að jeg ætti að hafa hann með mjer þegar jeg kem að heim- sækja þig. En þú vill kanske helst Josna við að sjá mig lika?“ „Ef þú og hundurinn þinn hefðuð ckki komið, þá væri músin mín lif- andi ennþá!“ sagði Garðar liöslugur. „Jeg vildi óska, að jeg licfði aldrei sjeð ykkur!“ Ásgeir svaraði ekki einu einasta orði en sneri sjer snúðugt frá og riksaði heim og drö Svip á eftir sjer. Þetta varð nú byrjun á ó- vináttunni miklu milli drengjanna tveggja, sem fram að þessu höfðu verið bestu vinir. — Þetta gerðist seinasta daginn í jólaleyfinu, og þegar þeir komu í skólann aftur forðuðust þeir hvor annan eins og þeir gátu. Þeir urðu aldrei samferða í skólann eða úr honum, þó að þeir ættu heima rjett hvor lijá öðrum, þeir töluðu aldrei sanian, og hin hörnin tóku fljótt eftir hinni þöglu óvináttu þeirra og fóru að erta þá með þessu, þó að eklcert barnanna vissi um áslæðuna til jiess, að þeir höfðu orðið óvinir. 1 febrúarmánuði kom frænka Garð- ars úr fjarlægri sveit i lieimsókn til hans. Hún lijet Helga og var Ijóm- andi skemlileg telpa og besti fjelagi. Hún var dugleg i margskonar íþrótt- um en full fífldjörf, af stúlku að vera, og Garðar varð slundum að hafa gát á, að lnin færi sjer ekki að voða. Veðrið liafði lengi verið blítt og með úrkomu, en einn morg- uninii þegar þau vöknuðu voru gluggarnir alhrímaðir. „Hæ, hæ! Nú er víst besl að fara að athuga skautana!“ sagði Ilelga glöð, þegar hún kom niður í borð- stofuna til að borða inorgungraul- inn. „Ef frost verður í tvo daga þá liugsa jeg að tjörnin verði held,“ sagði Garðar. „Mundu, að áin rennur út í tjörn- ina,“ sagði faðir hans,“ og vötn sem ár renna í, eru altaf lengur að frjósa en stöðupollarnir.11 Þegar Garðar kom heim úr skói- anum og hafði fengið miðdegismat- inn sinn, fór hann með Helgu nið- ur að tjörninni til þess að athug'a live slerkur ísinn væri. Tjörnin var svo sem stundarfjórðungs gang fyrir útaij bæinn og það var altaf fögnuð- ur hjá börnunum þegar ís kom á liana. Þarna voru komin ýms önn- ur börn og ísinn var næfurþunnur og stór vök i iniðri tjörninni. „Iíf frostið heldur áfram þá verð- ur kominn skautais á sunnudaginn,“ sagði mamma Garðars þegar hann kom heitn. „Á sunnudaginn! Það eru meira en þrír dagar þangað til á sunnu- daginn!“ sagði Helga ergileg. „Jeg er viss um að tjörnin Iieldur á morg- un.“ En þegar Helga kom út að tjörn- inni á föstudag var enn opin vök í miðjunni. Það var næjðingskuldi og ísinn var orðinn þykkur við löndin, og þar voru krakkar að bruna sjer fótskriðu. Helga hugsaði með sjálfri sjer, að hún skyldi fara á skautum daginn eftir, og áður en Garðar kom heim úr skólanum lauinaðist hún að heiman með skautana sína. — Þegar Garðar kom heim varð hann -þess var, að Helga var farin, og lionum varð undireins órótt inn- anbrjósts. „Jeg ætla ekki að borða slrax,“ liugsaði hann, „jeg ætla að fara og líta eftir henni.“ Svo tólc hann skautana sína og labbaði á burt. Þegar hann nálgaðisl tjörnina heyrðist honum ekki betur en að einhver væri að kalla. Hann flýtti sjer nær, og nú heyrði hann greini- lega að einhver hrópaði: „Hjálp! Hjálp!“ „Jeg kem!“ kallaði liann á móti og hljóp eins og fætur toguðu. Úti í tjörninni sá liann einhvern sem harðist við að halda sjer uppi — það hlaut að vera Helga. En liann var enn of langt undan til þess að geta hjálpað henni og nú sú hann að einhver annar hljóp út á ísinn og sökk niður úr honum. Þetta vai; drengur. Hann livarf ofan í vökina, en náði von bráðar í telpuna, sem var í þann veginn að renna undir vakarbarminn. Nú var Garðar kom- inn svo nærri, að.hann þekti dreng- inn — þetta var Ásgeir! Hann hafði náð í Helgu og braust nú með hana áfram i áttina til lands. „Jeg hotna hjerna,“ sagði hann og tennurnar glömruðu i munninum á honum, „hjálpaðu mjer til að brjóta ísinn, svo að jeg komist áfram — mjer er ómögulegt að komast upp á vakar- barininn." Garðar tók skautana sína og íór að liöggva ísinn sundur með þeim en Ásgeir hjelt dauðahaldi um Helgu, sem hafði fallið í öngvit af hræðslu, og smámjakaðist með hana nær landi. Loks voru þau öll komin á þurt; og nú raknaði Helga við sjer Adams'on er sterknr. — Nú múttu ekki kikja; þaö cr ekkert varið í aö fú jólagjöf, þegar maöur veit hver hún er! — Nú er liann hættur aö rigna, svo aö þiö getiö farið, herrar mínir! Drekkið Egils-ðl og þeir tóku hana og leiddu hana á milli sin, Garðar og Asgeir, og þau hlupu öll heim eins og fætur loguðu. Þau voru háttúð upp í rúift og fengu sjóðheitt blóðbergste að drekka og daginn eftir kendu þáú sjer einskis meins. En óvinátta þeirra Garðars og Áegeirs hafði víst drukn- að þarna í kalda baðinu í tjörninni, þvi að eftir þetta hlupu þeir á skautuin og brunuðu sjer á sleða með Helgu, og undir vorið voru þeir orðnir hetri vinir, en jieir höfðu verið nokkurntíma áður. Svo að ólán Helgu varð að vissu leyti lán í óláni.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.