Fálkinn - 12.02.1943, Blaðsíða 14
14
F Á L K I N N
SKOTASÖGUR.
Frh. af bls. 3.
vel með fje að fara. En það kann
nirfillinn aldrei — ekki freinur en
flottræfillinn, svo að jeg noti ann-
að ágætt nýyrði, og þó eldra. Sá
einn kann vel með fjármuni að
fara, sem bæði er sparsamur og
nýtinn, en þó laus við þann löst,
sem Byron taldi einkenni þræla,
að dýrka fjeð. Nýtni, sparsemi og
örlæti eru kostir, sem Skotar eru
—■ alment talað — ríkulega búnir,
og einn vottur örlætis þeirra er sú
hin frábæra og alúðlega gestrisni,
sem allir þeir liafa kynst, er eitt-
bvað liafa á Skotlandi dvalið.
Aðeins eitt er við þær vinsæld-
ir að athuga, sem Skotasögur hafa
náð á íslandi. En það er, að hinir
fávisari kunni að lokum að fá þá
hugmynd inn i sig, að smásálar-
slcapurinn sje i rauninni þáttur í
eðlisfari skosku þjóðarinnar. Það
væri hörmulegt, ef jafnvel liiuir fá-
fróðari á meðal íslendinga fengju
svo fráleitan skilning á þessari
grannþjóð okkar. Um hina betur
mentuðu er ekki að óttast i þessu
efni.
Ósviknar ‘ Skotasögur geta ekki
aðrir búið til en Skotar sjálfir. Hjá
öðrum verða þær bragðdaufar. Og
engan liefi jeg heyrt segja þær veru-
lega vel nema Skota sjálfa, enda
þarf oft að kunna til þess skoskan
framburð til hlítar. Meginþorra
þeirra er ekki viðlit að þýða, og
jafnvel þær, sem þýddar verða,
tapa sjer nálega altaf. Eigi að síð-
ur getur þó svo mikið orðið eftir
að vel sje. Það sanna ótvírætt liin-
ar miklu vinsældir þeirra i íslensku
gerfi.
Þessar línur eru fyrir þá sök
skrifaðar, að jeg varð þess eitt sinn
var, að ritstjóri Fálkans óttaðist að
Skotasögur gætu valdið lijer nokkr-
um misskilningi á grannþjóðinni.
Sá misskilningur mundi að visu al-
drei fara út yfir þau takmörk, er
að ofan greinir; en eigi að síður
er allur varinn góður.
Sn. J.
Fjelao íslenskra iðnrekenda
átti tíu ára afmæli 6. þ. m. Byrjaði
starfsemi sína með 12 fjelagsmönn-
um, en það er til marks um þróun
íslensks iðnaðar síðan, að nú eru 71
iðnrekendur í fjelaginu og fram-
leiðslan að sama skapi fjölbreytt.
Meðal þeirrar iðnvöru, sem fram-
leidd er nú lijer á landi, má nefna:
Fatnað allskonar, ytri og innri, og
efni í hann, skó, olíuföt, fiskilínur,
öngultauma, botnvörpur, hreinlætis-
og snyrtivörur, stáltunnur, fiskmjöl,
niðursoðið fiskmeti og ketmat, sæl-
gæti, öl, gosdrykki, málningu og
lakkvörur og umbúðir úr pappa og
trje.
Um 1300 manns starfa nú hjá
meðlimum fjelagsins og giæiddi það
laun til þessa fólks, árið 1941, sem
námu um fjórum miljónum króna,
en í skatta og útsvör greiddu þessir
iðnrekendur um 1.2 miljón króna
það ár. Hjer er því um að ræða all-
verulega byrjun að íslenskum iðn-
aði, i venjulegri merkingu þess orðs,
og telur fjelagið það vitanlega fyrsta
hlutverk sitt að hlúa að honum og
gæta hagsmuna iðnrekenda þannig
að íslenskur iðnaður fái þrifist og
staðist samkepni við útlendan. í lög-
um fjelagsins er tilgangur þess tal-
inn sá:
1. Að reyna að hafa áhrif á lög-
gjöf þjóðarinar og gera tillögur um
þau málefni, er snerta innlendan
iðnað og vera ávalt viðbúið að
svara fyrirspurnum, er þvi kynnu
að berast viðvíkjandi allskonar iðn-
aði, og á þann hátt tryggja iðnrek-
endum, að rjettur þeirra sje ekki
fyrir borð borinn, hvorki af lög-
gjafarþingi þjóðarinnar nje öðrum.
2. að vinna að þvi að koma á sam-
ræmi meðal iðnrekenda, er starfa
á likum grundvelli.
3. Að standa saman um það, að
innlend framleiðsla verði látin ganga
fyrir um notkun, sjerstaklega þeg-
ar hið opinbera, rikisstjórn eða
stofnanir þær, sem styrktar eru af
rikinu, gera innkaup sin. Sama gild-
ir um bæjarfjelög og þær stofnan-
ir, sefh styrktar eru af þeim.
4. Að fylgjast með þeim breyting-
um, er verða á iðnaðarlöggjöf ann-
ara þjóða, er kynnu að hafa áhrif
á islenskan iðnað.
5. Að vinna að því að auka þekk-
ingu íslendinga á innlendum iðnaði,
t. d. með vörusýningum.
6. Að vinna að því að tryggja
sem best vinnufrið í öllum iðnaði í
landinu o. fl.
-----Fjelagið stefnir að þvi tak-
marki, að sem flestar vörutegundir
verði framleiddar hjer á landi, og
að iðnaðurinn aukist í rjettu hlut-
falli við aðrar atvinnugreinir, svo
og þvi, að sem best verði vandað
til allrar innlendrar iðnframleiðslu.
Ennfremur að því, að landsmenn
sjái hag og sóma sinn í því, að
kaupa fremur innlenda framleiðslu
en erlenda.
Núverandi stjórn fjelagsins skipa:
Sigurjón Pjetursson á Álafossi, for-
maður, Sigurður B. Runólfsson frkv.-
stjóri, ritari, J. B. Pjetursson frkv.-
stjóri Stáltunnugerðarinnar, gjald-
keri, Sigurður Waage og Jón Kjart-
ansson. Sigurjón á Álafossi hefir ver-
ið formaður fjelagsins frá öndverðu.
STAFUR MÓSESAR.
Hitler stóð sunnan við Ermarsund
og horfði eftirvæntingaraugum'norð-
ur yfir. Hann fann að hann gat ekki
ráðið fram úr vandanum sjálfur og
fór þvi til elsta gyðingalæriföðurs-
ins i nágrenninu, sem hann hjelt að
gæti gefið sjer heilræði. Hitler út-
skýrði hvað fyrir sjer vekti og læri-
faðirinn sagði: „Þetta er hægðar-
leikur. Hann Móses rjeð fram úr
þessu fyrir þrjú þúsund árum.“
„Og hvað gerði Móses þá?“ spurði
Il^Ier.
„Það var ofur einfalt,“ sváraði
Iærifaðirinn. „Hann gerði ekki ann-
að en taka upp staf og snerta sjóinn
í Rauðahafinu og þá var vandinn
búinn.“
„Þetta var einmitt það, sem jeg
þurfti að vita,“ hrópaði Hitler. „En
hvar er stafurinn?"
„í British Museum?“ svaraði læri-
faðirinn.
Síðast á sunnudaninn
var nýrri bifreið bjargað frá algjörðri eyðileggingu,
af þeirri einni ástæðu, að aðvífandi bifreið hafði
meðferðis eldslökkvitæki. Hvernig mundi yður
verða innanbrjósts, ef bifreiðin, sem þjer hafið haft
svo mikið fyrir að ná í, brynni til kaldra kola,
þannig að þjer gætuð sjálfum yður um kent.
Eða þjer sem búið í timburhúsum, liafið þjer íhug-
að að lítilfjörleg ikviknun getur orðið til þess að
þjer standið húsnæðislaus á götunni. Hafið þjer
gert yður grein fyrir, að í dag er ekki nóg að vá-
tryggja hluti gegn eldsvoða, hifreið yðar endur-
heimtið þjer tæpast og því síður húsnæði yðar.
Tryggið yður því gegn slíkum áföllum með því að
fá yður slökkvitæki þegar í dag.
Höfum nú íyrirliggjandi mjög hentug og fyrirferða-
lítil slölckvitæki í tveim stærðum, fyrir bifreiðar
og hús.
Verslunin Brynja
Laugavegi 29.
Garðeigendnr og bændur.
Munið að allar áburðarpantanir verða að
vera komnar í vorar hendur fyrir febrúar-
lok.
Von er á þesum tegundum:
BRENNISTEINSSÚRU AMMONÍAKI
AMMOPHOS 16% + 20% *
KALÍÁBURÐI 60% og
TRÖLLAMJÖLI.
ibnrðarsala ríkisins
*