Fálkinn - 25.06.1943, Page 7
F Á L K I N N
7
vestra með járngrýti. Það er flutt vatnaleið á stálbræðslu-
stöðina, því að sá flulningur er ódýrari en með járnbraut. Hícr er svonefnt stormrör i verksmiðju Wri iht-flugvjelaverksmiðjanna. Er verið að gera
tilraun með flughæfni orrustuflugvjelarinnar Lockheed 38 við mismunandi veðurskilijrði.
Getulio Vargas forseti Drazilíu átli í vor fund með Roose-
velt forseta um borð l ameriskum lundurspilli á Potengi-
höfn í Natal, en þangað kom Roosevelt er hann var á
heimleið frá ráðstefnunni i Casablanca. Skoðuðu þeir
forsetarnir flugvelli og hafnarvirki i Brazilíu og ræddu
málefni þjóða sinna.
Þessi þýski hermaður fjell dauður niður þegar hann var
að regna að komast út úr skriðdreka, sem eyðilagður hef-
ir verið í orrustu í Tunis. Gatið eftir kúlu óvinanna
sjest á skriðdrekanum til vinstri fyrir neðan höfuðið á
manninum.
Mgndiri er tekin um borð í amerísku varðskipi. Varðmennirnir horfa á er skip með vörur
til Evrópu mætir öðru, sem er á licimleið til Ameríku.
Hjerna standa þeir í röð, piltarnir sem gerðu loflárásina á Tokio, á flugvclli við Washing-
ton. Arnold hershöfðingi er að sæma þá afreksmerki flughersins (D.F.C.). í baksýn sjest
sprengjuflugvjel þeirrar tegundar, sem notaðar voru í árásina.