Fálkinn - 13.08.1943, Blaðsíða 14
14
F Á L K 1 N N
Signrvegarar Hvanneyrarmótsins
Á landsmóti Ungmennafjelagasambandsins, sem aö þessu sinni var
haldiö að Hvanneyri, varö íþróttamannaflokkur sá, sem sjest hjer aö
ofan, hlutskarpastur, en hann var frá Ungmenna- og íþróttasambandi
Austfjaröa. Nöfn íþróttamannanna eru þessi, talin frá vinstri: Garöar
Stefánsson frá Mýri, Tómas Árnason frá lláeyri, Guttormur SigurÖsson
frá Gilsárteigi, Borgþór Þórhallsson frá Breiöavaöi, Björn Jónsson frá
Seyðisfiröi, Jón Ólafsson úr Hamarsfiröi, Björn Magnússon frá Rangá,
Guttormur Þormar frá Geitagerði, ÞorvarÖur Árnason frá Háeyri og
Siguröur Jónsson frá Vopnafiröi. — Iljeraösmót ungmennafjelaganna
hafa veriö fleiri og meö betri árangri i ár en nokkru sinni fyr, og
bendir þaö á vaxandi áhuga fy>ir íþróttum.
Sigurður Birkis
söngmálastjóri fimmtíu ára
Fimtiu ár eru að sönnu ekki hár
aldur á manni, sem enn er í fullu
fjöri og virðist eiga ennþá eftir að
Ijúka engu minna starfi en menn hafa
þegar afkastað. En þegar afmælis-
barnið á jafn mikið og merkilegl
starf að baki sjer og Sigurður Birkis,
þá er sannarlega ástæða til að minn-
ast afmælisins vel og vandlega, þótt
aldurinn sje ekki hærri en þelta.
Sigurður Birkis er Skagfirðingur
að ætf og uppruna, fæddur 9. á-
gúst 1893. Hann var ekki gamall þeg-
ar það kom í ljós, að liann var með
afbrigðum sönghneigður og liafði
auk þess góða tenórrödd. Þessi
bæfileiki og ást hans á sönglistinni
urðu til þess, að Sigurður kleii'
þrítugan hamarinn til sönglistar-
náms. Ilann stundaði nám í Tóniistar
háskólanum í Höfn og lauk þar
prófi, og síðan lagði liann stund á
söngnám víðar erlendis, þar á með-
al i hinu útvalda landi söngsins,
Ítalíu.
Þegar Sigurður Birkis sneri heim
aftur til ættlands síns gerðist liann
söngkennari hjer í liöfuðstaðnum,
og það kom brátt í ljós, að þar var
rjettur maður á rjettum stað. Það er
orðin mesti sægur manna, sem lofar
Sigurð Birkis fyrir það, sem hann
hefir kent þeim. Hann er maður,
sem er furðu laginn á það að eygja
listaneistann i fólki og glæða hann,
svo að liann deyr ekki aftur. Sumir
af nemendum Sigurðar til dæmis
óperusöngvararnir Stefán Guðmunds-
son og Einar Kristjánsson, sem báð-
ir hófu söngnám undir handleiðslu
hans.
Síðar gerðist Sigurður Birkis
starfsmaður Sambands íslenskra
karlakóra. Ferðaðist þá um landið
þvert og endilangt og kendi karla-
kórunum og þjálfaði þá. Ber öllum
saman uin það, að hann hafi leyst
þetta erfiða starf af tiendi með
mikilli prýði.
Fyrir tveimur árum var Birkis
skipaður söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar og hefir þegar orðið mikið
ágengt í því starfi, og á þó áreið-
anlega eftir að vinna þar enn meiri
afrek, ef honum endist lieilsa. Loks
hefir hann kent fjötda prestsefna
tón og kirkjusöng.
Sigurður Birkis er rómaður fyrir
prúðmensku og tipurð í hvívetna,
en er þó hráðduglegur maður og
fylginn sjer. Hann er enn maður á
góðum aldri og á því vonandi eftir
að afkasta miklu góðu starfi.
FLOGIÐ YFIR PANTELLARIA.
Eftir aö Tunis fjell i hendur Bandamanna hófust árásir á þetta
eyvirki Möndulveldanna í Miöjarðarhafi, og lauk þeim þannig,
aö eyjabúár gáfust upp, fyrir hinum lállausu árásum úr lofti og
af sjó. Myndin hjer aÖ ofan er tekin úr ameríkanskri Liberator-
flugvjel, en margar þeirra voru aö verki, er Þantellaria var tek-
in, og jusu sprengjum yfir eyjuna. Sjest hjer á myndinni hvern-
ig reykjarmekkirnir standa upp af virkjunum á eyjaroddanum.
eftir aö sprengjuflugvjelarnar hafa veriö í heimsókn.
BANDAMÖNNUM FAGNAÐ í TUNIS.
Svo viröist sem Bandamenn hafi verið aufúsugestir margra
ibúanna i Tunis, enda munu Frjálsir Frakkar hafa veriö jyar í
meiri hluta meðal hvítra manna, en Arabar í Afríku voru yf-
irleitt lillir vinir Mussolini og þaö ekki aö ástœöulusu. —
Hjer sjást innfæddir menn i Tunisborg fagna BandamannaliÖs-
sveit, sem er að koma inn í borgina.
MÖNDULFANGAR KOMA TIL ENGLANDS.
Fjöldinn allur af föngum þeim, sem handteknir voru í Tunis,
en þeir voru hátt á þriðja hundrað þúsund, voru sendir í fanga-
búöir í Englandi. Hjer sjást nokkrir þeirra vera aö ganga í land
úr skipi í enskri höfn, en þaðan lá leiö þeirru i fangabúðirnar.