Fálkinn - 17.03.1944, Síða 14
14
F Á L K 1 N N
PORTER MCKEEVER.
Frh. af bls. 3.
köllu'ð humanistisk vísindi ver-
aldarsögu, hagfrœði og þvium-
líkt. Þjer vitið að námsgreinar
eru tengdar öðru vísi saman vestra
en á Norðurlöndum. En þetta nám
miðar einkum að þvi að afla sjer
almennrar þekkingar fremur en sjer-
þekkingar, og stunda það m. a. þeir
sem ætla sjer að gerast hlaðamenn.
Jeg var nefnilega ekki orðinn af-
huga því starfi, heldur hvarf jeg
að blaðamennsku að loknu námi,
og gerðist þingfrjettaritari og miðlari
opinberra frjetta yfirleitt, í Washing-
ton og vann fyrir ýms blöð i New
York-fylki, Norður og Suður-Carolin
og Tennessec. Jeg var m. a. einn af
þeim, sem voru með i kosningar-
ferð Roosevelts forseta, er liann fór
uin landið áður en hann var kosinn
forseti i þriðja sinn. Þetta var sex
daga ferð milli allra lielstu horg-
anna í austur- og miðrikjunum. Þá
var mikið að gera, en gaman var
að ferðinni samt.
Hinn 1. október 1941 sagði jeg upp
starfi minu fyrir áðurnefnd blöð og
rjeðst í þjónustu utanrikisstjórnar-
innar meðan á ófriðnum stæði, og
vann þar á upplýsingaskrifstofunni.
í mars 1942 fjekk jeg að vita að jeg
ætti að fara hingað og hingað
kom jeg svo 10. maí.
— Hvaða hugmyndir gerðuð þjer
yður um fsland áður en þjer komuð
lringað?
— Á jeg nú að fara að tiunda
hugmyndir mínar og hugrenningar?
Jæja, í stuttu máli get jeg þá svarað
því svona:
— Jeg átti því happi að fagna, áð-
ur en jeg fór að vestan, að kynn-
ast ýmsum íslendingum, sem jeg
gat spurt. M. a. sendherra yðar,
Tlior Thors, svo og ýmsum öðrum
íslendingum —- jeg nefni lijer Agn-
ar Kl. Jónsson, Ólaf Johnson stór-
kaupmann, Steingrím Arason og
Mariu Markan. Einnig kyntist jeg
ýmsum Vestur-íslendingum, og nefni
jeg þar á meðal Vilhjálm Slefáns-
son, Halldór Hermannsson prófessor
og Ólaf J. Ólafsson, sem nú er full-
trúi Bandarikjanna hjer á landi, um
fjármálaviðskifti Bandaríkjanna og
fslands. — Alíir þessir menn sögðu
mjer margt um ísland og af þeim
öllum fjekk jeg að finna, hvað ís-
lensk gestrisni og velvild er.
En þrátt fyrir þann ágæta undir-
búning að viðkynningunni, sem
þessir menn gáfu mjer, þá hefir
hver dagur er jeg hefi lifað á íslandi
og meðal alls þess góða fólks, sem
hjer býr, orðið til þess, að auka á
virðingu mina og aðdáun fyrir bví,
hvað þjóð yðar hefir afrekað. .Teg
skal ekki fara að vitna til ýnnskon-
ar verklegra fyrirtækja, svo sem
hvernig Reykvíkingar kunna að búa
út heimili sín, eða til hitaveitunnar
og' álíka fyrirtækja l)ó að þau sjeu
sannarlega merkilcg. Jeg verð fyrst
og fremst að minnast ástar allrar
þjóðarinnar á liinu prentaða orði,
hins almenna áhuga og stuðnings
við hljómlist, hinnar upprennandi
myndlistar og áhugans fyrir henni,
og hins sameiginlega áhuga þjóðar-
innar fyrir því að efla alt, sem
fræðslumálum keniur við.
Enginn sem kynnist framförum ís-
lands, getur látið ógert að verða
hrifinn af þeim; og þvi lengur sem
hann dvelur lijer, því betur lærir
hann að meta hve margt hefir verið
gert, og hve vel það hefir verið gert.
— Þessir 22 stuttu mánuðir, sem
jeg hefi dvalið hjer hafa verið mjer
ánægjulegur þáttur úr æfi minni,
og vináttu þeirri, sem jeg hefi náð
við ýmsa, skal aldrei verða gleymt.
Að endingu skal jeg taka fram, að
mjer þykir leitt, að fá ekki lækifæri
til að upplifa þá sögulegu viðburði,
sem innan fárra mánaðaa verða
upphaf minnisverðs þáttar i hinni
löngu sögu íslensku þjóðarinnar.
— En livað sem öðru líður þá
vona jeg, að sá dagur sje ekki all-
fjarri, að mjer auðnist að koma til
íslands á ný — sá dagur, er skýja-
þykkni styrjaldarinnar grúfir eigi
yfir austurhimni Eldgömlu ísafold
ar, sá dagur, er blessun frelsisins,
sem íslendingar og Ameríkumenn
fagna báðir, rennur upp með boð-
skap samúðarinnar.
„Upplesið, játað rjett bókað
rjetinum slitið,“ stendur víst í rjett-
arbókunum. En því skal að endingu
linýtt hjer aftan í, að þeir menn,
sem nánust kynni hafa haft af mr.
McKéever skilja við liann með sökn-
uði. Og þeir óska hann vclkominn
hingað aftur, ef svo kynni að fara,
að leið hans kynni að liggja til Is-
lands einhverntíma síðar á æfinni.
En livar sem leiðir hans liggja um
hnöttinn og hvaða starf sem hann
tekur sjer fyrir hendur, fylgja hon-
um einlægar óskir okkar, sem mest
höfum af starfi hans að segja. En
það er bót í máli, að við starfi hans
sem forstöðumaður upplýsingastof-
unnar tekur ágætur maður, sem
þegar hefir getið sjer óskoraðar
vinsældir lijer á landi, Yestur-lslend-
ingurinn Hjörvarður Árnason list-
fræðingur. Allir sem til hans þekkja
hyggja gott til samvinnu við hann.
Andvari.
GINGER ItOGERS.
notur þe.nnan kjól i nýrri kvikmynd,
sem heitir „Lady in the Dark.“ —
Þettxi er kallaöur „draumkjóll“ i
Iíollywood oy kostar „aöeins“ 6000
dolara.
Allsherjar fjársöfnun
til danskra flóttamanna í Sviþjóð
Ávarp
Mikill fjöldi danskra flöttamanna dvelur í Svíþjóð og víðar um
þessar mundir. Flestir þessara manna hafa komist úr landi slyppir og
snauðir og munu eiga litla kosti atvinnu og vera mjög hjálparþurfa.
Fólk þetta er úr öllum stjettum þjóðfjelagsins og meðal þess margl
barna, kvenna og gamalmenna.
íslenska þjóðin hefir þegar sýnt Finnum og Norðmönnum samúð
sína i verki og efnt til almennrar fjársöfnunar þeim til handa. Eru
|)að þá Danir einir af hinum nauðstöddu Norðurlandaþjóðum, sem
enginn slíkur vináttuvottur liefh- verið sýndur. Mun það hafa komið
af þvi, að fram til þessa hafa íslendingar litið svo á, að eigi væri hægt
að veita þeim hjálp, er að gagni mætti koma. En nú mun þörf liinna
dönsku flóttamanna í Svíþjóð vera einna brýnust þeirra Norður-
landahúa, sem unnt er að rétta hjálparliönd eins og sakir standa.
íslendingum hefir vegnað svo vel, þrátt fyrir allar hörmungar
stríðsins, að þeir eru aflögufærir öðrum til styi’ktar, og munu þeir
fúsir að sýna Dönum þannig vinarhug í verki. Verði þátttakan al-
menn, erum við færir um að Ijetta verulega raunir margra danskra
flóttamanna, og það án þess, að nokkur einstaklingur taki nærri sjer.
Væntum vjer þvi, að íslendngar liggi nú ekki á liði sínu, lieldur
láti gjafir skjótt og vel af liendi rakna, enda er ætlunin, að söfnunin
slandi aðeins yfir næstu mánuði. Mun sannast sem jafnan, að fyrsta
hjálpin er hesta hjálpin, enda verði féð sent jafnóðum og það kem-
ur inn.
Það má ekki einvörðungu telja rjett, að íslenska þjóðin efni til
slíkra samtaka, lieldur siðferðislega skylt. fslendingar mega aldrei
láta hlut sinn eftir liggja, þegar unnið er að mannúðarmálum.
Reykjavik, 1. niavs 1944.
Sigurður Nordal, prófessor, Kristján Guðlaugsson, ritstjóri Visis, Lúðvíg
Guðmundsson, skólastjóri, Ben G. Waag'e, forseti Í.S.Í., Stefán Jóh. Stefáns-
son, form. Norræna fjelagsins, Páll S. Pálsson, form. Stúdentaráðs, Björn
Br. Björnsson, tannlæknir, Gisli Sveinsson, forseti sameinaðs Alþingis, Björn
Þórðarson, forsætisráðherra, Haraldur Guðmundsson, form. þingfl. Alþfl.,
Brynjólfur Bjarnason, form. miðstj. Sósíalistafl., Ólafur Thors, form. Sjálf-
st.fl., Eysteinn Jónsson form. þingfl. Framsóknarman'na, Sigurður Sigurðs-
son, form Rauða kross íslands, Jón Hjaltalín Sigurðsson, rektor Háskóla
Islands, Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjárstjórnar Reykjavíkur, Pálmi
Hannesson, rektor Menntaskólans, Magnús Jónsson, prófessor, form. tJt-
varpsráðs íslands, Jónas Þorbergsson, útvarpsstjóri, Jakob Kristinsson,
fræðslumálastjóri, Skúli Skúlason, form. Blaðamannafél. íslands, Sigurður
Guðmundsson, skólameistari, Akureyri, prófessor Ásmundur Guðmundsson,
forin. Prestafjelags íslands, Ingimar Jóhannesson, form Sambands ísl.
barnakennara, Ilelgi H. Eiríksson, forseti Landssambands Iðnaðarmanna,
Hallgrímur Benediktsson, form. Verslunarráðs íslands, Guðgeir Jónsson,
forseti Alþýðusamb. íslands, Tómas Guðmundsson, form. Bandalags ísi.
listamanna, Valtýr Stefánsson, ritstj. Morgunblaðsins, Stefán Pjetursson,
ritstj. Alþýðublaðsins, Sigurður Guðmundsson, ritstj. Þjóðviljans, Árni Jóns-
son frá Múla, ritstj. íslands, Þórarinn Þórarinsson, ritstj. Tímans, Bjarni Ás-
geirsson, form. Búnaðarfjelags íslands, Kristinn Stefánsson, stórtemplar,
Kjartan Thors, form. Landsamb. isl. útvegsmanna, Magnús Pjetursson, hjer-
aðslæknir, form. Læknafjelags íslands, Ragnhildur Pjetursdóttir, form.
Kvenfjelagasambands íslands, Eiríkur Eiríksson, forseti sambandsstj. U.
F. í., Bjarni Jónsson vígslubiskup, Steindór Steindórsson, form. Akureyrar-
deildar Norrænafjel., Kristján Jónsson, form ísafjarðardeildar Norræna
fjel., Jakob Jónsson, prestur, Jón Thorarensen, prestur, Árni Sigurðson,
fríkirkjuprestur, Helgi Tómasson, dr. med., Gunlaugur Einarsson, læknir,
Sigríður Einarsdóttir, form. Hjúkrunarkvennafélags íslands, Þuríður Bárð-
ardóttir, form. Ljósmæðrafjelags íslands, Friðrik Hallgrímsson, dómprófastur.