Fálkinn - 02.06.1944, Qupperneq 14
14
F Á L K I N N
MERKILEG LEIKSÝNING.
Frh. af bls. 3.
Arne Kralt (iieslur Fúlsson).
fjölbreytni og sambygö með mann-
anna börnum.
------Eins og áður er getið tókst
sýning Leikfjelagsins og frú Grieg
með afbrigðum vel. Hjer skulu ekki
nefndir neinir einstakir leikendur,
heldur skal á það minnst að þarna
voru engin dauð hlutverk. Þrátt
fyrir hin mörgu smáhlutverk í II.
þætti þá ljeku allir, og er slíkt
merki góðrar Jeikstjórnar. Jafn-
betri leikur í mannmörgu leikriti
mun ef til vill aldrei hafa sjest hjer
á landi.
Frú Gerd Grieg hefir nú kynnt
Reykvikingum tvö höfuðskáld Norð-
manna, Ibsen með Heddu Gabler og
Pjetri Gaut og Björnson með leik-
riti þvi, sem hjer hefir verið rætt
um. Það er von allra leiklistarvina,
að frúin fái síðar sem flest tæki-
færi til þess að kynna íslendingum
fleiri norsk leikritaskáld — og
enda annara þjóða lika — Þvi
að hún hefir sýnt, að engum er betur
til þess trúandi að eiga farsæla
samvinnu við íslenska leikendur.
Leiktjöldin voru prýðileg. Máluð
af Lárusi Ingólfssyni eftir frum-
dráttum Ferd. Finne leiktjaldamál-
ara, sem einnig gerði frumdrættina
að leiktjöldum i „Veislunni á Sól-
haugum.
Undirtektir leikhúsgesta voru hin-
ar ágætustu og feikn af blómum
bárust leikendunum, og þá ekki
sist frú Gríeg, að leikslokum.
KVENNADÁLKUR:
Frh. af bls. 5.
hve vel tekst, en það eru ekki litlir
peningar sem þannig má spara.
Heilbrigði og fegrun.
Eftirfarandi ráð hjálpa yður til
þess að viðhalda heilbrigði yðar og
yndisþokka:
1. ) Sjáið svo um, að þjer hafið
nægan svefn, minnst átta klukku-
stundir helst níu.
2. ) Verið úti einhvern hluta dags-
ins og í öllum bænum gangið þá.
Takið ekki strætisvagn hvenær sem
þjer getið.
3. ) Gætið að, hvað þjer borðið.
Varist feitmeti og sætan mat, borð-
ið grænmeti, brauð úr lieilhveiti,
hveitiklíð, mjólk, ávexti og ávaxta-
safa.
4. ) Drekkið sex lil átta glös af
vatni daglega. Drekkið ætið eitt
glas á undan morgunverði.
5. ) Notið gleraugu, ef þjer þurfið
þess. Þjer verðið hrukkóttar ef þjer
rýnið mikið.
C.) Notið varalit og augnabrúnalit
i hófi. Nú þykir minna til þess
koma en nokkru sinni áður, að vera
eins og lifandi málverk í framan.
7. ) Farið til tannlæknis yðar a.
m. k. tvisvar’á ári.
8. ) Brosið um fram allt. Fólk
sem vinnur mikið gleymir stundum
alveg að brosa, en bros er prýði
liverju andliti og lífgar upp i livers-
dagsstritinu.
9. ) Hreinsið andlit yðar vel a. m.
k. einu sinni á dag. Gangið aldrei til
hvílu án þess.
10. ) Burstið hár yðar, svo að það
verði lifandi og gljáandi þvoið það
með jöfnu millibili. Látið öðru
liverju leggja á yður hárið á hár-
greiðslustofu og reynið þá nýja
hárgreiðslu.
11. ) Burstið hendurnar með stíf-
um bursta og berið á þær krem til
þess að mýkja þær.
12. )Takið fótabað daglega og burst
ið Jæturnar með stífum bursta.
Gangið aldrei i of þröngum skóm,
hve fallegir sem þeir eru. Klippið
neglurnar á tánum áður en þjer
hafið eyðilagt fallegustu sokkana
yðar.
13. ) Gangið hreinlega til fara,
innst sem ist.. Ef þjer gangið með
hvíta kraga, uppslög o. s. frv., sjáið
þá um að það sje verulega hvítt og
fallegt.
(Framkv.stj.: Jón Sveinbjörnsson)
Laugavegi 159
framkvæmir allskonar:
vjelaviðgerðir
rafmagnssuðu og
rennismíði.
Einnig málmsteypu.
Áhersla lögð á vandaða vinnu.
DÆLUR
Centrifugaldælur
Miðstöðvadælur
sjálfvirkar
kjallaradælur
Helgi Magnússon &Co.
Hafnarstræti 19.
Verksmiðja Reykdals
Setbergi. — Sími 9205.
Mun oftast hafa fyrirliggjandi innihurðir,
stærðir: hæð 190 — 195 — 200 cm.
breidd 62 — 70 — 75 — 80 cm.
Einnig karmtrje, útihurðir og gluggar, smíðaðir eftir
teikningu, og allskonar innanhúslistar, glerlistar og
annað húsatimbur. — Ennfremur skal vakin athygli á
að verksmiðjan mun geta afgreitt tiltelgd gróðurhús af
ýmsum stærðum og gerðum. Leitð tilboða.
KOKS
Fyrirliggjandi eru nú birgðir af koksi,
bæði í miðstöðvar, ofna, AGA og SÖLÖ
eldavjelar.
GASSTÖÐ REYKJAVIKUR.
Frú Elinborg Elísdóttir og Pjetur Björnsson, Hverfisgötu 10, Hafnar-
firöi eiga 25 ára hjúskaparafæli 7. júni.