Fálkinn - 24.11.1944, Page 4
4
F Á L K I N N
WHIPSNADE
PARADÍS DÝRANNA
EFTIR EDITH R. AIGKMAN
Nálælgt 65 km. frá London hefir verið komið á stofn
dýragarði, þar sem fuglar og' mörg' önnur dýr njóta lífs-
ins, sem frjálsir borgarar á fögrum reit náttúunnar. —
Þessi staður heitir „Whipsnade“ og Bretar kalla hann
„sveitar-dýragarð“ sinn. Það er stjórn dýragarðsins ZOO,
sem gekst fyrir stofnun þessa friðlands dýranna, fyrir
20 árum. — Hjer segir Edith Ray Aickman frá staðnum
og umhverfi þessarar Paradísar dýranna.
TTÍ 7"HIPSNADE er ný tegund
* ^ dýragarða. Þetta er dýra-
fræðilegur garður, sem er skamt
frá hjarta Lundúnarborgar, eða
aðeins 65 km. frá London. —
Hjerna lifa fuglar og önnur dýr
frá öllum löndum heims þvi
lífi, sem þeim er eðlilegast, og
í umhverfi, sem er eins likt
ættarslóðum þeirra og unt var
að veita ]>eim í nokkrum dýra-
dýrin í Whipsnade í miklu
meira frelsi, en mögulegt væri
að veita þeim í nokkrum dýra-
garði stórborganna.
Whipsnade Park var opnaður
almenningi 1924, á vegum dýra-
garðsstjórnarinnar í London.
Þetta land fjekkst aðallega fyr-
ir atbeina sir Peter Chalmers
Mitchell, sem þá var ritari fje-
lagsstjórnarinnar. Staðnum var
yndislega i sveit komið, en
hinsvegar var landið illa fallið
til ræktunar. Og Mitchell sá
fljótt í anda að hægt yrði að
koma þarna dýragarði, þar sem
dýr frá garðinum í London
gælu lifað í frelsi og aukið kyn
sitt, og þar sem þreytt og sjúk
dýr frá London Zoo gætu hvílst
og náð heilsu.
Or þessari heppilegu byrjun
hefir Whipsnade vaxið og dafn-
að og er nú orðinn fullkominn
og fjölbreyttur dýragarður, er
jafnast á við dýragarðinn í Lon-
don og er honum að mörgu
leyti fremri.
Það er gaman að talcast ferð
á hendur til Whipsnade einn
fagran sumarmorgun. Maður fer
þá lielst fótgangandi frá næstu
brautarstöð, Dunstable, þar sem
mætast Watling Street, sem er
frá dögum Rómverja, og liinn
forni ícknield vegur. Vegurinn
liggur upp á svonefndar Dun-
stable-flatir, sem eru um 260 m.
vfir sjó. A leiðinni yfir þessar
Iljer sjest flamingó-hólminn. Ýmist eru hinir fallegu fuglar uppi í hólmanum
eöa þeir standa í vatni uppíhækil og hafa þá aðra löppina á lofti. 'Engum
fuglum er eins Ijett að standa á öðrum fæti eins og þessum.
grænu grasmjúku flatir, sjást
í fjarska Chiltern-hæðirnar og
er þarna vítt útsýni yfir hinar
ensku sveitir.
Þegar maður fer að nálgast
dýragarðinn blasir við einkenni-
legt útsýni, og maður heyrir
ýms hljóð, sem annars eru ekki
vön að heyrast í svona venju-
legu ensku landslagi. Þarna
standa trjen í hnöppum, nokk-
ur saman. Or brómberjarunni
kemur skógarhæna fljúgandi, og
á al-ensku trje sjer maður sitja
mjög ó-enska fugla með afar
langt stjel.
Inngönguhliðið að garðiniun
er fallegt en yfirlætislaust. —
Þarna er veitingaskáli, sem
freistar manns til að drolla, en
hinsvegar herða rokurnar í fíl-
unum og ósöngræn hljóð páfa-
gaukanna á eftir manni, inn
eftir aðalveginum gegnum dýra-
garðinn.
Fyrstu byggingarnar í garð-
inum voru gerðar í enskum
sveitabæjastil, eftir teikningum
sir Guy Dawber. Síðari viðauk-
ar, eftir Lubetkin og Tecton
eru í stil, sem kalla mælli „al-
þjóðlega dýragarðslegan“. Þetta
eru nýtísku byggingar í renni-
legum stíl, viðkunnarlegar en
ekki íburðarmiklar, litirnir vel
samræmdir og þægilegir. Ein-
um bænum hefir verið breytt í
veitingahús, þar sem nokkur
hundruð gesta koniast fyrir og
ágætur matur er á boðstólum.
Sælgætisturnar og kaffihús eru
um allan dýragarðinn, en hvergi
þannig að þau trufli vegfar-
andann og öll fallega löguð.
Flamingo-eyjan er með fall-
eguslu stöðunum meðfram aðal-
*t§
rnm
'ý/Z<
w$m
Fílahúsið i Whipsnade sjest hjer á myndinni. Það var bygt i nýsisku stil
og eru þarna fjórir indverskir fílar. Þeir eru tamdir og geta gestir
fengið að fá sjer ..teiðtúr“ á þeim í garðinum við húsíð.
Jarpi björninn í Whipsnade er geymdur i girðingunni, sem s]est hjer á
myndinni. Þarna eru fjórir birnir, einn karlkyns og þrír kvenkyns og
lifa við eðlileg skityrði. Þarna liafa verið aldir upp margir bjarnarungar.