Fálkinn - 10.05.1946, Page 6
I
c
F Á L K I N N
- LITLA SAGAN -
Bóbó hjálpar til
Eftir L. M. j:r.
Eg held, sagði einn af mönnun-
um úr öry.ggisþjónustunni, að
svona menn hafi tæplega lnigmynd
um að það sé stríð í- heiminum!
Hann benti á Bóbó, sem stóð eins
og slytti frammí bátnum.
Sýslumaðurinn, Ed Delanceys,
hristi höfuðið. — Víst gerir hann
það. Yður skjátlast. Við höfum
aliir hér á þessari eyðiströnd meiri
kynni af stríðinu en yður grunar.
— Og þessvegna trúið þið þvætt-
ingnum í Bóbó, þegar hann seg-
ist vita hvar þessir þrír njósnar-
ar séu niðurkomnir?
Já, Delanceys var alvara. Hann
þekkti fólkið, sem bjó á þessum
slóðum, út og inn. Og úr þvi að
Bóbó sagði, að liann vissi hvar
þessir þrír njósnarar væru, þá gerði
hann það líka. Samkvæmt ráði
Delanceys höfðu þeir staðnæmst
við bæ hans á Isle Fatale og' hafið
þar ieit að Þjóðverjunum þremur,
sem öryggisþjónustan vissi að höfðu
verið settir á íand úr kafbáti.
Það var umboðsmaður í New
örleans, sem hafði komið þeim á
sporið. Hann hafði hitt þrjá þaul-
æfða menn fyrir mánuði, og var
viss um að þeir hefðu verið land-
settir einhversslaðar nálægt Atcha-
felay-flóa. Og nú var leitin hafin og
leitarmenn komnir að kofa Bóbós.
Lögregluþjónarnir, sem höfðu
komið með Delanceys á bátnum,
höfðu verið mjög efandi. Þeir töldu
að sögu Bóbós væri tæplega trú-
andi. En Delanceys og nokkrir aðr-
ir, sem þekkt höfðu Bóbó lengi,
vissu að hann var skýr maður og
að það var óhætt að treysta honum.
Bóbó sneri sér að þeim. — Beyg-
ið þið upp að Fourchevogi, sagði
liann og benti. Svo var eins og hann
ætlaði að segja eitthvað við sýslu-
maninn en liætti við og fór fram
i aftur. Hvað þýddi að tala við
þessa menn? Innan skamms skyldu
þeir fá að sjá Þjóðverjana. Og þá
gengi þeir úr skugga. Hann minnt-
ist jtess, sem gerst hafði daginn
sem hann liitti Þjóðverjana í fyrsta
sinn.
Hann hafði róið út að vita um
Krabbanetin. Hann liirti aðeins fáa,
hinir áttu að fá að verða stærri
og gefa honum meira í aðra hönd
síðar. Þegar hann var að sökkva
krabbagildrunni kom liann auga á
gúmmíbátinn. Ekki sá hann þó nein
vopn nú annan útbúnað. Mennirnir
voru ræfilslega til fara og voru
svipaðir venjulegum sjómönnum,
sem eru nýkomnir á fætur. Þeir
löluðu ágæta ensku, alveg eins og
menn frá New Orleans. Sögðust
hafa verið á kaupskipi, sem hefði
verið skotið í kaf fyrir tvr/mur
nóttum. Gæti hann hjálpað þeim?
Jú, Bóbó hafði hrist höfuðið. —
Komið þið með mér. Eg skal hjálpa
ykkur. En varlega hafði hann far-
ið. Hann gaf þeim mat og þeir átu
mikið alveg eins og þeir liefðu ver-
ið i hafvillu nokkra daga. En inn-
an skamms komst Bóbó að því hvað
var á seiði.
Þeir léku hlutverkin ágætlega. Iin
Bóbó var viss um að þetta voru
skemmdarverkamenn. Hann liafði
heyrt talað um svona í Florída.
Þér verðið að róa okkur inn í
Dúfnavík, sagði einn maðurinn. Svo
getum við bjargað okkur sjálfir!
Dúfnavík var um mílu vegar til
norðausturs, en jmðan var opin leið
til New Orleans. Skrítið að menn-
irnir skyldu vita þetta! Það voru
annars ekki nema heimalingarnir,
sem þekktu þessa leið gegnum
skóginn.
Þegar þeir voru komnir þangað,
mundu þeir vist ætla að skjóta
hann. En þeim væri hollast að vara
sig, hugsaði Bóbó.
Þeir höfðu verið svo öruggir um
nóttina, að þeir töldu ekki þörf
á að vaka yfir Bóbó. Þessvegna
urðu þeir hissa um morguninn
þegar hann var horfinn og gúmmí-
báturinn líka. Nú voru þeir einir
þarna og komust hvorki fram eða
aftur.
Um það bil þremur vikum síðar
dó foringi þeirra; liann liafði feng-
ið bólgu í tunguna af eitruðu vatn-
inu, og það lá við að kroppurinn
af lionum væri étinn upp af flug-
um. Hinir tveir mennirnir dóu
skömmu siðar, eftir að þeir voru
orðnir fangar þarna í flugnagresj-
unum í skógarjaðrinum og komust
ekki burt.
Báturinn með lögreglumennina og
Bóbó stefndi upp í ostruskeljafjör-
una, þar sem mennirnir þrír lágu
dauðir. Síðan sagði Bóbó þeim
greinilega frá því, sem gerst hafði.
Þegar hann hafði lokið máli sínu
klappaði Ed sýslumaður einum lög-
reglumanninum á öxIíiili og sagði:
Það vorum við, sem ekki viss-
um að styrjöld væri í heiminum,
var ekki svo? Hverju haldið þér
að þessir menn hefðu getað komið
til leiðar, ef Bóbó hefði ekki verið
á verði?
En lögregluforinginn var þegar
kominn til Bóbó og tók fast í hönd-
ina á honum.
Fjársjóður franska Himmlers.
Joseph Darnand, dómsmálaráð-
herra frönsku Vichy-stjórnarinnar,
var tekinn höndum í Norður-Ítalíu
og fluttur til París. Þar hefir hann
síðan verið í lialdi og mörg réttar-
próf verið haldin yfir honum. Hann
hefir sagt frá hvar hann liafði falið
7 miljón rikismörk, 21. milj. franka
og' þúsund gullpeninga, serii hann
hafði komist yfir. Darnand hafði
þetta fé með sér þegar hann flýði
frá I*ýskalandi til Norður-ítaliu, og
var það eign 4.500 manna lögreglu-
sveitar, sem hann hafði setl á lagg-
irnar til þess að hjálpa Gestapó lil
að fangelsa franska föðurlandsvini.
Tíu þúsund vopnaðir leynilögreglu-
menn fóru með Darnand frá Frakk-
landi til Þýskalands, en af þeim
fylgdu honum aðeins 600 til ítalíu.
STIÖRNUSPÁR
EFTIR JÓN ÁRNASON
Nýtt tungl 1. maí 1946.
Alþjóðayfirlit.
Tunglið springur ú( í Nauti. ,Bend-
ir það á að fjármál, viðskiptamál,
verslun, bankar og bankaviðskifti
muni mjög á dagskrá í heiminum.
Örðugleikar ýmsir munu á ferðinni;
ágreiningur og barátta ýmiskonar á
sér stað, því Mars hefir slæma af-
stöðu frá Ljónsmerki. Muni: þessar
truflanir kojna frá sumum ráðend-
um ríkjanna. Plútó mun einnig
styrkja afstöðu þessa að nokkru, því
liann er í samstæðu við Mars.
Annars hefir loftsþríhyrningurinn
nokkuð sterk álirif og bendir á um-
ræður miklar og tillögur til úrbóta
í þessum málum. Mars bendir á
liarða baráttu í þeim efnum og
Satúrn á örðugleika landbúnaðar-
manna.
Lundúnir. — Siglingar og við-
skipti við nýlendurnar eru mjög á
dagskrá i Englandi. Ágreiningur
kemur i Ijós, því Mars er i slæmri
afstöðu til Sólar og Tungls. — Venus
og Úran eru í 10. húsi. Stjórnin
hefir góða afstöðu, en líklegt er
þó að örðugleikar komi í ljós, sem
ekki gera boð á undan sér. — Júpi-
ter ræður samgöngumálunum og hef-
ir stæmar afstöður. Örðugleikar
koma í ljós í þessum efnum og út-
gjöldin hækka. Neptún ræður l'jár-
hagsmálunum og hefir óheillavænleg
áhrfi á tekjur ríkisins, bankastarf-
semina og óheillavænlegar ákvarðan-
ir verða framkvæmdar. Örðug-
leikar í þinginu um landbúnaðarmál
og námur.
fíerlín. — Dauðsföll munu áher-
andi meðal hátt settra manna og
sérstaklega meðal kvenþjóðarinnar.
Úran er í 10. húsi. Ófyrirséðir
örðugleikar niunu á vegi ráðend-
anna, sem heimta nákvæma og vel
yfirvegaða meðferð ef vel á að fara.
Júpíter er í 2. húsi og hefir
slæmar afstöður, sem benda á örðug-
leika í viðskipta- og fjárhagsmál-
um.
Moskóva. — Dauðsföll liáttsettra
manna eru áberandi. — Ymsir örð-
ugleikar koma í ljós. Leynileg und-
angraftarstarfsemi er sýniteg, þvi
Neptún er í I. húsi. Er það slæm
afstaða fyrir stjórnina og ráðend-
urna og hátt setta menn. — Örð-
ugleikar miklir í sanibandi við utan-
landsflutninga og viðskifti, því Úr-
an er i 9. húsi, en Venus er þar
einnig og dregur úr áhrifunum að
einhverju leyti. — Plútó er í 11.
húsi. Vandræðamál gæti komið á
dagskrá, sem nú er I myrkrum liul-
ið.
Tokyó. — Leikluis og skemmtan-
ir munu mjög á dagskrá og mun
urgur og ágreiningur uppi um þau
mál og kostnaðurinn og útgjöldin
munu vaxa. Ráðendurnir hafa við
stjórnmálalega örðugleika að etja,
þvi Júpíter er í 10. húsi í Vog og
hefir slæmar afstöður. — Merkúr i
4. húsi, sem bendir á örðugteika og
óánægju meðal bænda og námueig-
enda. — Óánægja meðal verkamanna
þvi Úran er í 0. húsi. Kvillasamt.
— Afstaðan til annara ríkja örðug
og tafir miklar eru sýnilegar, því
Satúrn er í 7. húsi og hefir allar
afstöður slæmar. —
Washington. — Nýja tunglið er í
11. húsi, luisi þingsins og hefir
slæmar afstöður frá Mars í 2. húsi.
Ágreiningur mikill mun verða í
þinginu út af fjármálum og verða
harðar deilur um þau efrti. — Satúrn
ræður 2. húsi. Fjárhagsmál og banlca
munu undir miklum örðugleikum,
töfum og truflunum. — Örðugleik-
ar í sambandi við leikhús og
skennntistaði. — Venus og Úran í
12. húsi. Upp koma mál, sem eiga
rót sína hjá óvinveittri þjóð.
Island.
10. lnis. — Nýja tunglið er i húsi
þessu, húsi stjórnarinnar. — Verð-
ur hún og afstaða hennar mjög á
dagskrá á þessum tíma. Slæm áhrif
frá Mars í 12. húsi. Upp koma atriði,
sem verða stjórninni örðug' við-
fangs, sem hafa verið hujiri og eigi
ó vitorði almennings. Venus gæti
ef til vill eitthvað dregið úr þess-
um áhrifum, en Úran mun auka á
örðugleikana.
1. Inis. — Merkúr ræður húsi
j/essu. Hefir hann slæmar afstöður.
Óánægju mun bera ó meðal almenn-
ings og blaðadeilur gætu risið upp
og persónulegar árásir átl sér stað.
2. hús. Merkúr ræður einnig
húsi þessu. Fjármál, bankastarf-
semi og rikisrekturinn verður mik-
ið umtalsefni og umræður um það
miklar.
3. hús. — Neptiin er í húsi þessu.
Örðugleikar í sambandi við
verkamenn og áróður á sér stað.
Leyndar misgerðir koma í Ijós i
sambandi við flutningastarfsemi
innanlands.
4. hús. ----- Mars ræður húsi þessu.
Afstaða þessi er ekki heppileg
fyrir stjórnina og landbúnaðurinn
á i örðugleikum.
5. hús. — Júpíter er i húsi þessu.
Hefir liann allar afstöður slæm-
ar. Ágreiningur i trúarlegum efnum
og fjárhagslegir örðngleikar gætu
risið upp í rekstri leikhúsa og
skemmtistaðá.
(i. hús. — Satúrn ræður luisi
þessu. Ágreiningur gæti átt sér
stað við önnur ríki um viðskifta-
mól.
8. húS'. — Júpíter ræður liúsi
þessu. Kunnur fjúnnálaniaður
gæti látist eða hátt settur maður
og maður i hárri stöðu.
!). hús. — Merkúr var í húsi þessu.
Blaðadeilur gætu áll sér stað
um verslun og siglingar og vakið
athygli.
11. liús. — Satúrn er i húsi þessu.
Bendir á örðugleika i þinginu
og stjórnin gæti farið frá eða breyt-
ing oriðð á henni, því Satúrn hefir
allar afstöður slæmar. Tafir þing-
mála geta einnig ótt sér stað.
V2. hús. — Mars og Plútó í húsi
þessu. — Ekki heppileg afstaða fyr-
ir spítala, helrunarhús og góðgerða-
stofnanir yfir höfuð, og þessháttar
starfsemi.
Ilitað 28. 4. ’4(i.