Fálkinn


Fálkinn - 18.10.1946, Qupperneq 3

Fálkinn - 18.10.1946, Qupperneq 3
FÁLKINN 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM Ritstjóri: Skúli Skúlason Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6 Blaðið kemur út hvern föstudag Allar áskriftir greiðist fyrirfram HERBERTSpre/i< SKRAÐDARAÞANKAR Það vottar fyrir gleðilegri við- leitni á þvi að gera framleiðslu ís- lendinga fjölbreyttari en áður var, er öll hin mikla frarrileiðsla lands- ins skiftist í: saltfisk, fullverkaðan og liálfverkaðan og svo ísfisk, og lýsið var flutt út háifverkað. Fiski- málanefnd hefir beitt sér fyrir marg- víslegri nýbreytni, sem miðar að því að framleiða fjölbreyttari og vandaðri vöru en áður var, og hún hefir gert út menn til að leita nýrra markaða. Allt þetta horfir til stórra bóta og á að geta orðið til trygging- ar fyrir þvi, að þjóðin komlst í kreppu þó að markaður einnar teg- undar framleiðslu teppist um stund. Við höfum eignast vísindalega menntaða menn, sem m. a. liafa lært þá meðferð fiskafurða og' ann- ara matvæla, sem nú þykir full- komnust í lieiminum. Allt verður að stefna að þvi að gera vöruna þannig úr garði að kaupandinn geti látið hana beint í pottinn, og að hún missi ekki næringar- og fjör- efnagildi við geymsluaðferðina. Því að sé varan betri en önnur þá er hún vel þegin. Því að víðar er vinnukonuleysi en i Reykjavík og allar húsmæður stefna að því að auka sem mest véltæknina í eldhús- « inu til þess að geta komist af á eig- in spýtur. Nú eru líkur til þess ef allt fer að vonum, að íslendingar stórauki framleiðslu sína á næstu árum og má öllum vera það geðiefni. En um leið má ekki gleyma öðru, sem eigi er síður mikilsvert: að bæta fram- leiðsluna svo, að hægt sé að sanna að hún sé betri en annara þjóða framleiðsla, sömu tegundar. Þá er björninn unninn og þá er hægt að selja dýrt. En það verður sú þjóð að gera, sem hefir kostnaðarmikla framleiðslu og það höfum við sann- arlega. Þessvegna verur kjörorðið eigi aðeins að vera: meiri framleiðsla, því að aukning framleiðslunnar er engin markaðstrygging heldur þvert á móti. Kjörorðið verður líka að vera: hetri framleiðsla, því að hún ein getur tryggt markað fyrir qukna framleiðslu. Málve'rkasýning Kristins Péturssonar. Ung stúlka (teikning). Kristinn Pétursson, listmálari, hef- ir fyrir skömmu opnað málverka- sýningu í Sýningarskála myndlistar- manna, og sýnir þar um 100 mynd- ir, bæði vatnslitamyndir, olíumál- verk og' teikningar. Gætir mikillar fjölbreytni i málverkunum, þó að landslagsmyndirnar séu flestar og listamanninum augsýnilega hjart- fólgnastar. Einkum er mikið af myndum frá Vestfjörðum, en einn- ig mörg olíumálverk frá Þingvöll- um, Vestmannaeyjum og Siglufirði. Um myndirnar má það segja, að flestaþ þeirra eru sambland af hlutrænni og’ óhlutrænni list. Lista- maðurinn fer milliveg milli tveggja andstæðra skoðana í málaralistinni, og sýnir, hvernig liugarflugið og ófjötruð hugsun getur samræmst raunsæinu og skapað listaverk, sem i senn er eðlileg náttúrueftirlík- ing og dularfull gáta. Kristinn segir i ávarpi, sem fylg- ir myndaskránni, að deilurnar, sem risið hafa um liinar tvær stefnur í málaralistin'ni, hina hlutbundnu og óhutblundnu, séu líks eðlis og deilt sé um það, hvort sé betra, brúnn eða rauður. Þetta er vel mælt, því að hér er um smekksatriði að ræða, en ekki um neinar vísindalegar niðurstöður. Rómverjarnir gömlu sögðu líka: „De gustibus non dispu- tandum", eða að það þýddi ekki að deila um smekkinn. Og svo mun enn vera. Kristinn Pétursson hefir ekki liald- ið sýningu liér síðustu 9 árin, en myndirnar, sem þarna eru, eru all- flestar frá síðustu 3 árum. Ungverskur fiðlusnilllngnr í Reykjavik Síðastliðinn sunnudag kom hingað til landsins ungverski fiðlusnilling- urinn Ibalyka Zilzer. Hún kom hing- að á vegum hjóðfæraverslunarinn- ar Drang'ey, og ætlunin er að hún haldi þrjá hljómleika hér og voru hinir fyrstu haldnir í Gamla Bíó síðastliðinn miðvikudag. Frú Zilzer er gift þýskum manni, og liafa þau verið búsett i Dan- mörku á stríðsárunum. Faðir lienn- ar var þekktur listmálari í Buda- Pest og komst hann í náin kynni við Ibsen. Frúin lærði lijá Karl Flesch, þekktum fiðluleikara í Þýska landi, sem varð landflótta á valda- timum Hitlers og dvaldist eftir það lengst af í London og París. Hann dó fyrir tveimur árum í Sviss. Mendelsohns-verðlaunin fékk Ibu- lyka Zilzer árið 1931, og eftir það ferðaðist hún viða um lieim, og hefir hún fengið mjög g'óða dóma fyrir leik sinn. Hún hefir leikið bæði í Ameriku og Afríku auk flestra Evrópuland- anna. Eftir dvölina hér, fer frúin til Parisar og mun halda þar hljóm- leika. Frederic Joliot-Curie, hinn frægi eðl- isfræðingur og tengdasomir hinna heimskunnu Curie-hjóna, sem furst fundu radium, hefir af Frakka hálfu verið skipaður i kjarnorkunefnd þá, sem hinar Sameinuðu þjóðir hafa sett á laggirnar. Hefir hann vakið á ser athygli með því að ráðast harka- lega á stefnu Dandarikjanna i kjarn- orkumálunum, og hótað því að kjarn- orkukönnuðir um heim allan muni neita að halda áfram rannsóknum sínum ef Bandaríkin taki ekki upp aðra stefnu. — Kona Frederic Joliot er frú Irene, dóttir Evu Curie, sú sem ritað hefir hina alkunnu bók um móður sína. Birtist bókin m. a. á íslensku fijrir nokkrum ármn. Hjónin eru.bæði eðlisfræðingar og héldu áfram starfi frú Curie að radium-rannsóknum, er hún féll frá. Arið 1925 hlutu þau í sameiningu eðlisfræðiverðlaun Nobels fyrir þess- ar rannsóknir. P. H. FAWCETT. — Hinn frœgi enski landkönnuður, P. II. Fawcett, ofursti, sem fyrir rúmum 20 árum týndist i skógum Suður-Ameriku, hefir nú fundist i Indíánaþorpi i Brazilu, þar sem hinir innfæddu hafa gert hann að höfðingja.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.