Fálkinn


Fálkinn - 18.10.1946, Page 7

Fálkinn - 18.10.1946, Page 7
FÁLKINN 7 Sjómannaverkfallið í U.S.A. lamaði ekki aðeins siglingar Bandaríkj- anna, heldur hafði það og víðtæk áhrif á siglingar annarra þjóða. Hér er mynd frá höfninni í New York og fremst sést eitt hinna stóru farþegaskipa, sem sigla milli Ev- rópu og Ameríku. Myndin er tekin, þegar líkin af hin- um fimm amerísku flugmönnum, sem fórust í flugvélinni, sem var skotin niður yfir Júgóslavíu, komu til Ciampini flugvallarins við Róm. Þaðan voru þau flutt áfram til Bandaríkjanna. Herlögregla Banda- ríkjamanna í Róm hefir skipað sér í heiðursfylkingu. Blöðin stækka. — Kanada hcfir ætíð framleitt meira af blaðapappír en nokkurt annað land í heimi. Á stríðsárunum drö mjög úr fram- leiðslu þessari, vegna þess að þá var það tré, sem áður var notað í blaðapappír, haft til hernaðarþarfa. Úr því var unnið „nitrocellulose“ i sprengiefni og „nylon“ í fallhlífar. Nú er framleiðslan aftur í hröðum vexti og er orðin eins mikil og hún var mest fyrir stríð. Á myndinni sjást hinir feiknaháu timburhrauk- ar við pappírsverksmiðju í nám- unda við Quebec. Vegna hættu á sjálfsíkveikju í timbrinu verður oft að dæla vatni yfir það.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.