Fálkinn - 18.10.1946, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
Drenojapeysa með ísauml
Eftii: 120 gr. óblæjað bómullar-
garn nr. 10 og ein hnota af skær-
bláu garni.
Prjónar: Tveir prjónar nr. 2 og
2 prjónar nr. 2%. Fjórir litlir hnapp-
ar, tvær smellur.
Stærð: Er ætlað á 2 ára barn.
Sjá mynd b, þar sem I er bakið,
II brjóstið og III ermi.
Bakið: — Fitja upp 89 1. á prj.
nr. 2 og prjóna 5 cm. brugðið (1 sl.
1. br.). Fær á prjóna nr 2% og
prjóna slétt á réttu og brugðið til
baka, 3. prjónn er prjónaður blár,
og svo 16 hver prjónn einnig blár.
Þegar bakið er 24 cm. er byrjað á
handveg. Fell 4 I. af i byrjun 1.
og 2. prjóns og svo 1 1. i byrjun
8 næstu prjóna (73 1.). Þegar hand-
vegurinn er 12 cm. er fellt af öxl-
inni þannig: Fell 8 1. af handvegs-
megin, og aðrar 8 1. á 3. prjón,
alls 24 1. á hvorri öxl. Þá eru eftir
25 1. i hálsinn og þær felldar af
í einu.
Framstykkið. — Það er prjónað
eins og bakið þar til handvegurink
er 10 cm. þá er fellt af í hálsmálið
(19 1.) en 27 1. hafðar á öxlum
og' tekin úr 1 1. hálsmegin þrisvar
sinnum á fyrstu prjónunum. Svo
lialdið áfram með öxlina þar til
hún er 13 cm. þá er fellt af í
þrennu lagi (8 1. í einu, hæst háls-
megin).
Ermarnar: — Fitja upp 58 I. á
prjóna nr. 2 og prjóna 2%
cm. br. líningu. Fær á prjóna nr.
2 Vz og prjóna slétt, með teinum eins
og á bolnum. Auk út i 5. og 9.
prjóni (62 1.). Þegar ermin er 5
cm. eru felldar af 4 1. í byrjun 1.
og 2. prjóns og þar næst 1 1. i
byrjun hvers prjóns þar til eftir
eru 14 1. þá eru þær allar felldar
af.
<4*
ísaumið: — Sauma kontorstígslínu
eftir miðlinu framstykkisins ofan
frá liálsmáli að 4. þverlínu. Næstu
raðir eru í 15 1. fjarlægð frá mið-
línunni. Mynstrin eru saumuð með
lykkjuspori eftir mynd c þar sem
litirnir eru merktir þannig:
Dökkblátt, punktur; ljósblátt, fer-
hyrningur; rautt, x; gult„ kross;
brúnt, skástrik og rósrautt lóðrétt
strik.
Þá eru stykkin lögð milli blautra
dagblaða og svo breidd til þerris.
Peysan er hneppt á öxlunum. Tekn-
ar eru upp 24 1, röngunni snúið upp
og prjónað slétt með prjónum nr.
2 og lialdið áfram með 3 prjóna
slétt (eða 2 garða) og fellt af. Hægri
öxl samsvarandi.
Tak upp á hálsmálinu og prjóna
slétt um leið með bláa garninu,
prjóna svo brug’ðið (1 sl. 1 br.) 7
prjóna. Fell af. Prjóna hálsmálið
eins að aftan. Sauma saman. Fest
hnappa á afturstykkið og smellur á
hálslíninguna.
*****
77 kross-saums- 00
prjónamunstur
Fálkanum liefir nýlega borist bók
með þessu nafni, og inniheldur hún
sérstaldega falleg munstur „fyrir alls
konur kross-saums- og prjónaverk-
efni“, eins og stendur á l'orsiðu bók-
arinnar.
Auk þess að bókin liefir inni að
halda munstur, sem eru mjög fögur,
er útlit og allur frágangur þannig,
að hún verður augnayndi jieirra,
sem fegurð unna. Allt er í samræmi
hvað við annað, val og niðurröðun
efnis.
Eftir þessari bók geta konur valið
sér munstur á flest þau verkefni,
sem fengist er við með kross-saum
og gobelinsaum, og ekki eru prjóna-
munstrin síðri. Ekki mun þiað litlu
skifta að bókin er þannig prentuð
að sérstaklega handhægt er að vinna
eftir henni. — Litill vafi er á, að
íslenskar konur, sem lön.gum hafa
liaft orð fyrir myndarskap i hann-
yrðum, munu stórlega fag;na útkomu
þessarar bókar.
Bókin er prentuð i Preiatsmiðjunni
Hólar. — Útgefandi er Bókaútgáf-
an Logi, Reykjavík.
*****
Frú Winston Churchill segir, að
það séu áreiðanlega fáir menn i
heiminum sem missi eins oft af járn-
brautarlestinni og maður hennar. —
Stundum kemur það þó fyrir, að
Churchill nær í lestina, en þá verð-
ur liann lika að hlaupa á eftir lest-
inni og hoppa upp á brettið, eftir að
hún er lögð af stað. — En ég held,
bætir frú Churrhill við, að það sé
bara af því, að Winston er áliuga-
samur íþróttamaður og vill gefa
lestinni tækifæri til að verða á
undan.
*****
Amerískur hermaður gaf sig á tal
við rússneskan hermann i Berlín,
og barst tal þeirra brátt að stjórn-
málum, og þá sérstaklega að stjórn-
um Rússlands og Bandaríkjanna. Sá
ameríski segir reigingslega:
— Eg get farið til Wasliington,
lialdið beina leið til Ilvíta liússins,
barið að dyrum og gengið inn, spurt
Truman hvernig honum liði og að
síðustu sagt upp í opið geðið á hon-
um, livert álit mitt á Harry S. Tru-
man sé.
— Eg get líka farið til Kreml,
svaraði Rússinn, beðið um viðtal
við Stalin og spurt hann, hvernig
honum líði og sagt svo upp i opið
geðið á honum, hvert álit mitt væri
á honum, ég meina — Harry S.
Truman.
*****