Fálkinn - 17.01.1947, Side 3
FÁLKINN
3
Guðni Guðjónsson, magister:
í ÚTVERI
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSprenf
SKRADDARAÞANKAR
Þessi árin hefir verið gert meira
að því en nokkurntíma áður að
friða skógarleifar og girða örfoka
land til þess að verja það ágangi
búfjár. Það hafa jafnframt verið
sett lög um annarskonar friðun, sem
miðar að því að varðveita ýms ein-
kennileg fyrirbæri náttúrunnar og
sögulegar menjar, og nefnd mun
hafa verið skipuð fyrir nálægt ein-
um áratug til þess að gera tillögur
um þessi efni og skerast í leikinn
gegn skemdarverkum á náttúrunni.
Nokkuð hefir verið slarfað í anda
þessa málefnis, að þvi ar fornmenj-
arnar snertir. Skálinn á Keldum, er
mun vera elsta bygging landsins
að minnsta kosti sumt af honum —
hefir verið friðaður, en að vísu er
sú friðun hvorki fugl eða fiskur.
Þingstaðurinn á Þingvöllum hefir
verið friðaður fyrir öllu nema tóm-
um flöskum og blikkdósum. Hauka-
dalur við Geysi var friðaður fyrir
atbeina útlends manns, og sömu-
teiðis gamalt prestsetur i Skagafirði.
í Reykjavík hverfa öll elstu mann-
virki nú óðum í jörð undir malbik
og stórhýsi, og má segja að þar
brjóti nauðsyn lög. En eitthvað af
gömlu kumböldunum, sem fyrir
einni öld voru heldri manna bústað-
ir, mætti eflaust varðveita, með
því að flytja þau burt og setja þau
niður á byggðasafni, sem væntan-
lega verið stofnað innan skamms
i nágrenni liöfuðstaðarins.
Um náttúrufyrirbæri liefir ekkert
verið hugsað. Hið gamalfræga Bene-
ventum við Öskjuhlíð er liorfið,
hellir Guðmundar ldkis og Batterí-
ið sömuleiðis. Og núna á siðustu ár-
um liefir eitt skemmtiiegasta nátt-
úrufyrirbæri í grennd við Reykjavik
verið g'ereyðilagt. Allir sem leið
áttu framhjá Rrþiðhólum ráku í
þá augun, cnda voru þeir einstakt
sýnishorn af jarðeldasögu landsins
og stungu i stúf við umhverfið. Nú
er hæsti hóllinn horfinn, svo að ekki
sjást nema útskefjarnar. Rauðhóiar
eru nú dreifðir um götur og port
Reykjavíkur og hafa átt öflugan
þátt í að auka skóslit almennings,
þvi að grjótið var likast og gengið
væri á rasp.
Rauðhóladæmið er víti, sem gagn-
legt er til þess að varast það eftir-
leiðis, og sýnir að sum lög hafa
ekki tog.
íslendingar þeir, sem eru lang-
dvöluni erlendis, koma löndunum
lieima oft kynlega fyrir sjónir. Marg-
ir þeirra mótast að meira eða minna
leyti af þeirri þjóð, sem þeir dvelja
hjá og því umhverfi, sem þeir eru
í, bæði í fasi, málfæri og hugsunar-
hætti. Hefir það löngum þótt frami
nokkur heima. Önnur tegund þessara
manna er sú, sem verður íslenskari
í útivistinni en þeir, sem heima eru.
Þeir muna fjöllin á Fróni svo blá,
fólkið svo gott og aðeins bestu end-
urniinningarnar eru geymdar — hin-
ar gleymdar. íslenskan þeirra verð-
ur oft „íslenskari" en íslenskan
heima, eða með öðrum orðum stirð
og óeðlileg — forneskjuleg, hugsun-
arháttur þeirra einlægur eða jafnvel
barnalegur, að minnsta kosti gagn-
vart öllu því, sem viðvíkur íslandi.
Þessi tegund manna þótti hlægileg
áður fyrr — mér dettur í hug Vestur-
íslendingarnir. Það er því með liálf-
um huga, að ég sendi kafla lieim úr
lífi okkar útlaganna frá styrjaldar-
árunum, en ég geri þó ráð fyrir, að
liinar mjög svo auknu utanfarir Is-
iendinga á siðari tímum hafi gert
það að verkum, að gagnkvæmur
skiiningur þessara samlanda liafi
aukist. Að minnsta kosti urðum við
siður en svo fyrir vonbrigðum, þeg-
ar við kynntumst Nýja-íslandi eftir
ófriðarlokin og unga kynslóðin virt-
ist alveg hafa losað sig úr gömlum
Idafaböndum og vera full af hjart-
sýni. En það var ekki um þetta, sem
ég ætlaði að rita.
íslendingar þeir, sem styrjaldar-
árin voru á meginlandi Evrópu,
munu lengi minnast þess tíma fyr-
ir ýmissa hluta sakir. Sumir voru
mitt í orrahriðinni og áttu i vök
að vcrjast, en flestir okkar voru
betur settir og höfðu minna af ólát-
unum að segja. En einangrunin frá
Fróni var okkur öllum sameigin-
leg og tiðum óbærileg. Þetta setti
að vonum svip á félagslífið. Land-
ar hér kynntust hver öðrum meir
en venja var til, þvi að þeir sóttu
miklu betur samkomur íslendinga,
þótt ýms liöft, myrkvaðar götur
og bann við þvi að vera úti á kvöld-
in, gerðu öll fundahöld erfiðari.
Hér í Höfn starfaði íslendinga-
félagið og Stúdentafélagið af óvenju
miklu fjöri, kvöldvökustarfsemi
Stúdentafélagsins og útgáfa Fróns
eru mörgum kunn, ný félög voru
sett á stofn og má þar tilnefna
Söngfélagið, Taflfélagið og Róðr-
arfélagið. Eg skal ekki liér rekja
starfsferil hinna ýmsu félaga, sem
var með ágætum, aðeihs skal liér
getið lítilsháttar þess félags, sem
ef til vill mesta nýjabragðið var af,
Róðrarfélagsins „Hekla“.
Þeir, sem liafa komið hingað til
Danmerkur að sumarlagi, ef til vill
siglt inn Eyrarsund í björtu og
stilltu veðri, munu seint gleyma
þeirri fegurð, sem blasir við, þótt
til starfa.
elcki séu það fjöll, sem marka sjón-
deildarliringinn. Grænir skógar og
veglegar byggingar spegla sig í sjón-
um frá báðum ströndum. Kynstur
af allskonar bátum eru á sveimi í
sundinu, kajakar, kappróðrabátar,
venjulegir bátar og hvit segl — svo
mörg, sem væru það öldutoppar —
eru þanin út í golunni, því að allt-
af er gola í Danmörku, þótt stillt
sé veður.
Það var því engin furða, þótt
sjórinn freistaði í öllu tilhreytinga-
leysinu. Þeir, sem fyrstir féllu fyrir
þessari freistingu svo að gagni kæmi,
voru þeir Bergur Jónsson, járn-
Jón Helgason stórkaupmaour
form. „Heklu“.
smiðameistari; Hjörtur Þorsteinsson,
verkfræðingur og Jón Helgason, stór-
kaupmaður. Kölluðu þeir saman hóp
manna, kvenna *og karla, til þess
að skrafa um, hvað liægt væri að
gera.
Áhugann vantaði ekki en frekar
fé, því að ekki verður farið liér
félaus á sjó. Varð það úr, að við
leituðum á náðir Færeyinga og Iiáð-.
um þá ásjár. Róðrarfélag þeirra
lieitir „Aldan“, og áttu þeir tvo
tíæringa, sem þeir liöfðu J nausti
út við Eyrarsund. Tóku þeir okkur
opnum örmum og léðu okkur bát-
ana tvö kvöld i viku, og var það
óspart notað. Voru jafnan karlar
á öðrum hátnum og konur á hin-
um — sá var af sumum kallaður
kvennafar, þvi að þa'ð þótti betri
islenska en konubátur. Var það
mjög eftirsótt staða að vera stýri-
maður þar, því að ekki var neinni
konu trúað fyrir slíkul Er skemmst
frá þvi að segja, að sumarið var
liðið, áður en við vissum af, og
var þá liaft lokaball í naustinni
fyrir þessi 30, sem höfðu stundað
róðranna. Höfum við tekið með
okkur matarbita, bjór og brenni-
vin, og eftir stuttan róður var sest
snæðingi í verbúðinni. Ekki má
gleyma þvi, að þar var öllum veitt-
ur klára riklingur, sem einn ágætur
maður liafði liaft i fórum sinum sið-
an fyrir strið, en þó fæðutegund
hafði enginn okkar séð í 3 ár. Síð-
an var stiginn dans fram á nótt
undir dillandi harmónikumúsík.
Þetta kvöld var stofnað róðrar-
félag Islendinga i Höfn, sem hlaut
Framh. á bls. H
Tilbúnir
Við róðraræfingu.