Fálkinn - 17.01.1947, Síða 7
FÁLKINN
7
Sérstæð aflraun. — Í7 ára gamall
bóndasonur i Ameríku hefir gert það
sér til gamans að Igfta lcálfi á
hverjum einasta degi. frá fœðingu
hans. Ilyggst hann þannig munu
geta lift kálfinum, þegar hann er
fullvaxinn. Hér sést hann Igfta kálf-
inum í 85 skipti, og vegur hann þá
95 kg. Við fyrstu tilraunina vóg
kálfnrinn 40 kg. — Slíkar tilraun-
ir sem þessi munu hafa verið reynd-
ar eitthvað hér á landi.
Svona fór um sjóferð þá. — Fyrir
nokkru rak feiknin öll af japönsk-
um netakúlum á land við strendur
Oregon-fylkis í Bandarikjunum. —
Komið hefir i Ijós, að þœr eru af
netum, sem lögð voru fyrir 7 árum.
í óveðri, sem þá geisaði, slilnuðu
kúlur og baujur af teinunum, og
hafa þœr rekið 8.000 kilómetra leið
á 7 árum, yfir þvert Kyrrahafið. —
Myndin sgnir fólk tína kúlurnar á
Oregon-ströndinni.
Steinaldarlist. — / austanverðu Kyrra
hafi liggur lítil eldfjallaeyja, Páska-
eyjan, sem er þekkt einkum fyrir
hinar ævagömlu höggmyndir úr
steini, sem fundist hafa á víð og
dreif í klettum eyjarinnar. Mikið
af listaverkum þessum eru líkön af
mannahöfðum, og er gerð margra
þeirra mjög frumstæð, en þó bera
þau vott um mikla steinaldarmenn-
ingu, sem þ,arna lilýtur að hafa
blómgast.
STOKOWSKI hinn heimsfrœgi hljóm
sveitarstjóri við Philadelpliiu sym-
fóníuhljómsveitina.
Fórnarlamb vísindanna. — Eitt hinna
mörgu dýra, sem fórnað hefir verið
á altari vísindanna, er þessi geii.
Amerisku sjóliðarnir eru að fara
með hana um borð í skip, sem síð-
an flutti hana til Bikini, þar sem
hún var höfð að tilraunadýri við
atómsprengjutilraunirnar.
Lengsa borð í heimi. — Bærinn
Hutchinson i Kansas hélt i sumar
hátíðlegt 75 ára afmæli sitt. Var
mikið um dýrðir, og m. a. var
smiðað 750 mctra langt borð, sem
komið var fyrir á aðalgötu bæjarins,
og voru þ.ar á boðstólum alls konar
krœsingar, ■ sem hver málti gæða
sér á eftir vild. Á myndinni sést
mannfjöldinn við hið ótrúlega langa
borð.
Kjötkveðjuhátíð. — / kaþólskum
löndum er það siður að fagna föst-
unni með miklum gleðskap. Það
er oftast sérstakur blær yfir há-
tíðahöldum þessum, og ýms kynja-
dýr eru mjög oft búin til, og siðan
ekið um göturnar. — Þessi skritna
skrúðganga fór við eitt slikt tæki-
færi um götur Basel. Það eru flautu-
leikarar með perulagaðar grimur.
Kyssir föðurlandið. — Hér sést Gyð-
ingur, sem hefir lifað hörmungar
styrjaldarinnar sem flóttamaður i
Evrópu. Nú er hann kominn til
Palestinu og tengir miklar vonir við
nýtt og betra lif. Hann fellur á kné
og kyssir jörðina strax eftir land-
gönguna.
Augað, sem sér allt. — Auðvitað er
risaskipið „Queen Elisabeth“ búið
radartækjum, þesari dásamlegu upp-
finningu, sem gerir kleift að sjá
gegnum myrkur og þoku. Hér sést
tækið á stjórnpallstoppi skipsins.
Colorado-bjallan. — / sumar heyrð-
ist það að versti óvinur kartöflu-
jurtarinnar, Colorado-bjallan, hafði
gert vart við sig í Slésvík og Hol-
stein. Hún hefir fyrr sést i Evrópu,
en þ,ó alltaf tekist að útrýma henni.
Myndin sýfiir. kartöflujurt,. sem
Colorado-bjallan hefir ráðist á. Einn-
ig sést Colorado-bjalla og fullvaxin
lirfa, báðar stækkaðar átta sinnum.
Ghize í Egyptalandi hafa nú fengið
óvænta samkeppni, þar sem olía nef-
ir fundist í jörðu skammt frá þeim.
Gífurháir borturnar rísa þarna nú
hver á fætur öðrum og gera lítið úr
hæð píramídanna.
Barnamótorhjól. — Þótt mótorhjól
þe'tla sé lítið, þó hefir það samt
marga góða kosti. Það eyðir aðeins
l'/i Hter af bensini á 100 kílómetr-
um, og hraði þ.ess getur orðið 70 km.
á klukkustund.