Fálkinn - 11.04.1947, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
SUNDHÖLLIN 10 ÁRA
23. marz fyrir 10 árum var Sund-
höll Reykjavilkur vígð. Var hún
gcysimikið mannvirki á þeim tím-
um, og ennþá er hún eitt þeirra
stórliýsa, sem setja svip á bœinn,
þótt hún þarfnist mikilla endurbóta.
Pétur Halldórsson borgarstjóri
flutti vígsluræðuna í viðurvist um
400 boðsgestir, og Þuriður Erlings-
dóttir Pálssonar, yfirlögregluþjóns,
þá sjö ára gömul, vigði laugina með
því að synda yfir Iiana.
Á þessu 10 ára skciði sundhall-
arinnar hefir .margt g'erst, og vin-
sældir sundsins hafa stöðugt vaxið.
Bæði liefir fólkinu skilist það æ
betur, hvílík heilsubót getur verið
að sundiðkunum, og einnig hefir
sundíþróttinni fleygt áfram, eins og
öðrum íþróttagreinum, og þá cðli-
lega einna mest vaxið fylgi meðal
æskufólks. Fálkinn sneri sér til
Þorgeirs Sveinbjarnarsonar, sund-
hallarforstjóra, í tilefni afmælisins,
og spurðist fyrir um ýmislegt varð-
andi sundhöllina.
Þorgeir lagði megináherslu á það,
hversu mikill áliugi ríkti meðal
fólks á sundinu og skilning þess
á mætti sundsins til líkamsræktar
og heilsubóta.
Sundhöllina hafa sótt 2.194,172
manns á þessum 10 árum, og er
það um 000 manns að meðaltali
á dag, ef allir dagar ársins eru
reiknaðir. Einn úr liópi sundhallar-
gesta hefir sótt sundhöllina á hverj-
um degi í þessi ár. Það er Sverre
Fougner Johanson, bókbindari.
Eitt er það sem sérstaklega er
vcrt að geta, og það er hin mikla
aðsókn lamaðra manna að sund-
höllinni. Þetta fólk leitar heilsubót-
ar og skemmtunar í sundhöllinni,
og er því nauðsynlegt, að sem allra
hest sé búið í haginn fyrir það
Slökkviliðsmenn liafa að mestu ann-
ast flutninga þessa fólks inn í sund-
höll, og hafa þeir unnið þar mikið
starf og gott. Líka liefir það verið
rómað, hve starfsfólk sundhallar-
innar hefir sýnt mikla lipurð og
umhygg'ju fyrir þessu fólki i hví-
vetna. Er gott til þess að vita, að
lipurmenni veljast til slíkra starfa
sem þessara, og svo mun vera hér,
cnda liefir starfsfólkið hlotið viður-
kenningu fyrir vel unnin störf.
Ekki verður minnst á sundhöllina
nema nokkrum orðum sé drepið á
framfarir í sundíþróttinni hér á
landi. Sundmönnum okkar hefir
l'leygt áfram í íþróttinni, og þegar
hafa íslendingar eignast nokkra sund
menn, scni standast samanburð við
bestu súndmenn nágrannaþjóðanna.
Sem tímanna tákn á þessu sviði,
þá hafa nú á 10. ári sundhallarinn-
ar komið hingað góðir sundmenn
frá Danmörku og' Svíþjóð og þreytt
kapp við bestu sundmenn liérlendis.
Sundmennina íslensku langar til
að reyna sig frekar við erlenda
sundmenn, og munu þeir hafa hug á
að taka þátt í Evrópuméistaramótinu
scm haldið verður í Frakklandi,
ef þeim gefst kostur á.
En þótt góður árangur á sund-
mótum sé keppikefli fyrir islensku
þjóðina í sjálfu sér, þá er og verð-
ur hitt altaf aðalatriðið, að lands-
mönnum skiljist, að líta beri á sund-
ið sem hollvænlega íþrótt til heilsu-
bóta og líkamsræktar, auk þess sem
sundkunnátta er nauðsynleg til björg
unar frá drukknun.
Það er þvi vafalaust vilji allra
landsmanna, að hlúð verði að sund-
íþróttinni með þvi að byggja sund-
laugar eins og efni standa framast
til, og því æskilegt, að fyrirliuguðum
endurbótum á Sundhöll Reykjavík-
tir verði hraðað sem mest.
- Forstöðumenn sundhallarinnar
hafa verið þessir: Ólafur Þorvarð-
arson, Erlingur Pálsson, Sigríður
Sigurjónsdóttir og Þorgeir Svein-
bjarnarson.
Einkaumboðsmenn fyrir ísland:
O. IIclg:aisou *V Melsteil h. f.
Reykjavík
Sími 1644
Þetta eru hinar viðurkenndu óg margeftirspurðu
ACME þvottavindnr
Fyrir stríð var ACME besta og fullkomnasta þvotta-
vindan er til landsins fluttist. Nú er hún betri og
fullkomnari en nokkru sinni áður.
ACME ÞVOTTAVINDAN ER JAFNFRAMT TAURULLA
Fæst í öllum búsáhaldaverslunum.
Einkaumboð og heildsölubirgðir:
Cniiðiii. Guðmumlsson A €o.
♦
♦