Fálkinn - 11.04.1947, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
ÞEGAR ÖLL SUND LOKUÐUST FYRIR HITLER
Ilitler æddi aftur og fram í jarð-
húsi sínu, veifaði landabréfum og
útskýrði allar þær flóknu liernaðar-
aðgerðir, sem skyldu bjarga þeim
öllum. Stundum öskaði hann fyrir-
skipanir, eins og hann væri að
stjórna vörn Berlinar.
Hinn 28. april voru Rússar komn-
ir inn að miðbiki borgarinnar, og
ofboðsleg símskeyti fóru í allar
áttir. „Eg bið þess að Berlin verði
bjargað," símaði Hitler til Keitels.
Allan dáginn var beðið eftir góðum
fréttum. Hin rétta og nærtæka sönn-
un var sú, að lierinn sem átti að
bjarga var ekki til. En það var ekki
nema ein skýring, sem tekin var
gild í jarðhúsi Hitlers: Landráðin.
Frá áróðursráðuneytinu barst
Reutcr-skeyti um að Himmler væri
að semja við Folke Bernadotte. Sjón-
arvottum ber saman um, að það
hafi verið hræðilegt uppnám, sem
þessi fregn vakti, það getur eng-
in vafi leikið á því, að Hitler skoð-
þessar aðfarir Himmlers sem hrein
iandráð og teldi þetta merki þess að
nú væri fokið i öll skjól. Aðafara-
nótt 29. apríl strikaði liann end-
anlega yfir þánn möguleika að
Himmler gæti orðið eftirmaður hans_
Hann skrifaði arfleiðsluskrá sína
og svo voru þau Eva Braun gefin
saman.
Hjónavígslan fór fram að álið-
inni nóttu. Göbbels hafði kvatt til
Walter nokkurn Wagner, sem hafði
starfað lijá honum í Berlin og var
taiinn nothæfur til þess að fram-
kvæma athöfnina.
Göbbels og Bormann voru við-
staddir sem svaramenn. Athöfnin
var mjög stutt. Brúðhjónin lýstu yf-
ir því, að þau voru af ómenguðum
arískum kynstofni og hefðu enga
arfgenga sjúkdóma. Þegar brúðurin
átti að skrifa nafnið sitt skrifaði hún
fyrst Eva Braun, en leiðrétti það
svo í Eva Hitler, fædd Braun.
Fyrir utan biðu nokkrir hershöfð-
ingjar og ritarar. Brúðhjónin heils-
uðu öllum með handabandi og drógu
sig síðan ■ í lilé og settust að morg-
unverði inni hjá sér. Skömmu síð-
ar var Bormann, Göbbels, frú Göbb-
els og tveimur riturum Hitlers boð-
ið inn. Þau sátu þar saman í nokkra
klukkutíma, drukku kampavín og
röbbuðu. Samtalið snerist um gamla
daga, meðal annars um brúðkaup
Göbbels, en Hitler hafði verið svara-
maður hans. Hitler talaði um sjálfs-
morðsáformin. Hann sagði að naz-
isminn væri kominn í strand og
mundi aldrei risa upp aftur. Dauð-
inn mundi verða sér bjargvættur,
eins og nú stæði á, eftir að bestu
vinir sínir hefðu svikið sig i tryggð-
um og vegið aftan að sér. En það
var drungi yfir þessu samkvæmi
eftir að Hitler fór að tala um dauða
sinn. Fólk kom og fór, því að mörgu
var að liyggja. Hitler fór ásamt rit-
ara sínum inn í næsta herbergi og
þangað voru ýmsir kallaðir, einn
og einn í senn, til ráðagerða. Hann
var að lesa ritaranum fyrir arf-
leiðsluskrá sína.
Loksins var hjúskaparstaða Evu
Braun ákveðin, eftir margra ára bið.
Þegar þjónn einn, daginn eftir, á-
vapaði hana - þrátt fyrir að það
var bannað - „Náðuga fröken“, þorði
Eva Braun loksins að svara: „Þér
getið óhræddur kallað mig frú
Hitler!“
Alla nóttina var Hitler að lesa
ritaranum fyrir tvö skjöl: einka-
arfleiðsluskrá sína og hina politísku
afleiðsluskrá. 1 þessari síðustu aug-
lýsingu fyrir nazismann, sem átti
að verða boðskapur til komandi
kynslóða, er ekkert nema innantóm
slagorð. 1 fyrri heimsstyrjöld var
Hitler hermaður, og þegar sú styrj-
öld mistókst, sakaði liann stjórn-
málamennina um að hafa svikið her-
mennina. Þá gat hann ekki hrósað
liershöfðingjunum nógsamlega. - í
næsta striði var hann stjórnmála-
maður. Þegar það stríð mistókst
sakaði hann hermennina um að hafa
svikið stjórnmálamennina og alla
um að liafa svikið sig.
Siðdegis lét Hitler depa Blondi,
uppáhaldshundinn sinn. Síðan rétti
hann stúlkunum tveimur, sem voru
ritarar hans, eiturtöflur. Hann kvað
sér þykja leitt, að hann hefði ekki
annað betra að gefa þeim að skiln-
aði. Svo bætti hann því við að
hann óskaði þess að liershöfðingj-
arnir hefðu verið sér jafn trúir og
þessar tvær stúlkur.
Þegar leið á næstu nótt var kall-
að á fólkið úr hinu jarðhúsinu, liðs-
foringja og kvenfólk, alls um 20
manns, sem enn voru þarna. Hann
tók í liöndina á öllum konunum en
sagði ekki neitt. Þegar þetta fólk
fór frá honum blandaðist engum
hugur um hvað i vændum væri.
En nú gerðist dálítið óvænt. í
skálanum, sem liermennirnir átu í,
var verið að dansa. Fregnin um það,
sem koma skyldi barst þangað upp,
en enginn lét það spilla skemmtun-
inni fyrir sér. Þá kom orðsending
úr jarðhúsi foringjans, um að fólkið
hefði ekki svona hátt, en samt
var haldið áfram að dansa. Skradd-
ari einn, sem var lokaður inni í
stjórnarráðshöllinni ásamt fleirum,
varð forviða þegar Rattenhuber
sveitarforingi, yfirmaður lögreglunn-
ar og hershöfðingi í S.S. gaf hon-
uni olnbogaskot og ávarpaði^hann
eins og kunningja. Á eftir fékk
skraddarinn skýringuna á þessum
kumpánaskap: Hitler liafði kvatt og
ætlaði að fara að fyrirfara sér.
Um miðjan dag hinn 30. apríl
höfðu Rússar náð undir sig öllum
Tiergarten. Hitler varð ekkert upp-
vægur þegar hann fékk þessa frétt.
Hann át morgunverð sinn. Eva
var ekki viðstödd og Hitler sat með
riturum sínum tveimur. Hann var
rólegur og minntist ekkert á áform
sín. Eigi að síður var hann þá að
skipa fyrir um, að 200 lítrar af
bensini skyldu fluttir upp í hall-
argarðinn. Fjórir menn báru bensin-
brúsana upp' og settu þá í varúðar-
útganginn frá jarðhúsinu, en þá kom
lögregluvörðurinn og bað ijm skýr-
ingu á þessu. Þeir svöruðu að ben-
sínið ætti að fara til loftræstingar-
tækjanna. Lögegluþjónninn bað þá
um að fara ekki með vitleysu, þvi
að ræsingartækin gengu fyrir oliu.
En þjónn Hitlers bað hann vera ró-
Iegan. Skömmu síðar voru allir lög-
regluverðir látnir fara burt.
Nú hafði Hitler lokið við að borða.
Gestir lians voru látnir fara út,
og hann var einn um stund. Svo
kom hann út úr herbergi sínu og
Eva Braun á eftir lionum, og enn
fóru kveðjur fram. Bormann og
Göbbels voru viðstaddir. Hitler og
Eva Braun tóku í höndina á öllum
og fóru svo til lierbergja sinna. Svo
heyrðist eitt skot. Hitler lá á legu-
bekknum, sem var votur af blóði.
Hann hafði skotið sig í munninn.
Eva Braun lá dauð á legubekknum.
Skammbyssa lá við liliðina á henni,
en hún hafði ekki notað hana. Hún
hafði tekið eitur. Klukkan var 15.30.
Skömmu síðar kom Artliur Ax-
mann, foringi Hitlers-æskunnar. -
Hann talaði víð Göbbels, sem svo
fór út en Axmann stóð eitt augna-
blik yfir líkunum. Linge, þjónn Hitl-
ers, og annar S.S.-maður vöfðu lík
Hitlers í dúk, svo að ekki sást blóð-
ugt og brotið höfuðið, og tveir
aðrir S.S.-liðsforingjar báru líkið
upp i garðinn. Bormann bar lílc
Evu Braun. Hún hafði fengið hæg-
ara andlát og það þurfti engan dúk
utan um liana.
Líkin voru lögð lilið við hlið í
garðinum og hellt yfir þau bensíni.
Skotbríðin frá Rússum undirstrikaði
óhugnað þessarar athafnar og lík-
fylgdin varð að flýja i skjól. S.S.-
foringi kveikti í bensíninu. Líkfylgd-
in lieilsaði með Hitlers-kveðju og dró
sig svo í hlé. Tveir lögregluþjónar,
sem ekki liöfðu heyrt skipunina um
að þeir ættu að fara burt, horfðu
á atburðinn. Annar þeirra, sem hét
Mannsfeld, segir að sprengjugigur
hafi verið þarna rétt hjá, og að lík-
in hefðu verið tekin burt. Hann ef-
ast ekki um að líkin hefðu verið
grafin þar. Annað vita menn ekki
um leifar Hitlers og Evu.
*****
Höfum og útuegum beint hina
viðurkendu
PRENTLITI 0G SVERTU
Einkaumboö á tslandi fyrir
Fabrik for Trykfarver . Aktieselskab . Köbenhavn
yi
í
Hvmarshúsinu
Sími 1228