Fálkinn - 11.07.1947, Blaðsíða 1
16 síður
/ tilefni af Landbúnaðarsýningunni og tillögum þeim, sem þar sjást um sveitahíbýli framtiðarinnar birtir Fálkinn þessa
mgnd af fallegum bæ í Mýrdal, í hinum gamla stíl, sem nú er sem óöast að hverfa. Ýmsir munu sakna hans en hann
verður að víkja fyrir kröfum nútímans um hentugri og meiri húsakynni en síðasta kynslóð átti við að búa. Gömlu bæ-
irnir voru óhentugir og dýrir, en áttu tilverurétt á þeim tínra, sem erfitt var um aðflutninga og vinna fólks í táigu verði.
Þeir voru hlýir ef þeir voru vel gerðir, en nýju steinsteypuhúsin, með einangrun iir vikri og torfi, ern hlýrri, bjartari og
vistlegri.
GAMLI BÆRINN I SVEITINNI