Fálkinn - 05.09.1947, Page 7
FÁLKINN
7
ísbiörninn í dýragarðinum i
London var víst einn um að
fagna frostunum og fannkom-
unni í vetur
Fílar fá lömunarveiki. / ensk-
um„sirkus‘‘ fengu -'r fílar löm-
unarveiki fyrir nokkru. Ran-
arnir urðu máttlausir svo að
fílarnir urðu að láta mata sig.
Nú hafa þeir samt fengið mátt-
inn aftur, eftir að farið var að
nota stuttbylgjur til að lækna.
þá.
Napóleon á verði. — Mynd þessi
er frá Versailles og sýnir styttu
Napoleons „standa vörð“ yfir
ýmsum dýrgripum, sem flytja
varð burtu við forsetaskiptin
síðustu.
Englendingar hafa fengið tölu-
vert af matarsendingum frá
Ástalíu. Mynd fiessi er tekin á
hafnarbakka í enskri borg og
er af áströlskum fulltrúa og
hafnarmönnum, sem eru að
ræða um flutning á Í5,000 gjafa
kössum með kjöti, búðingum
sultu og ávöxtum.
Frumstæður landbúnaður. — Myndin til vinstri er frá vin í Norður-Afríku, og sýnir hún
frumstæðar plægingaraðferðir. Úlfaldar draga plógana, sem eru úr tré og líta út eins og
plógar fyrir 2000 árum. Hin myndin er frá Nílardalnum. Þar eru 2 uppskerur á ári og
er vatni úr Níl þá veitt yfir bakkana til þess að vökva jarðveginum fyrir uppskerutímann.
Ber mikla nauðsyn til þess, því varla kemur dropi úr lofti allan ársins hring. En ennþá
er að mestu notast við handafl til framleiðslunnar.
Rita Hay í Frakklandi. Amer-
iska leikkonan Rita Hay fór
til Parísar fyrir skömmu. Gat
hún varla þverfótað fyrir rit-
handasöfnurum. sern víða eru
orðnir þjóðfélagsplága■ Hér sést
borðalagður náungi biðja leik-
konuna um að skrifa nafnið
sitt.
Hsfir bjargað mörgum. Á stríðs-
árunum fluttu hinar stórn
sprengjuflugvélar með sér sam-
anbrotna björgunarbáta, sem
ióku 15 manns. Þeir voru 30
feta langir og höfðu 8 hestafla
vél. Ganghraði var 8,5 mílur.
Þeir voru Jrannig ýerðir, að
liægt var að láta þá falla nið-
ur í fallhlíf. Hér sést slíkur
bátur undir seglum.
Einn sða tvsir? Þessi ameríski
hermaður virðist hafa selt si-g
í undarlegar skotstellingar. En
við skulum ekki vera svo viss
um fimi hans. Fæturnir, sem
við sjáum, eru nefnilec/a alls
ekki af manninum, sem er að
skjóta. Það eru tveir menn,
sem eru að gera „kúnstir“ sín-
ar, en ekki einn.
„Zítar“ fyrir silkiklút. 1 Þýska-
landi gegna peningar ekki stóru
hlutverki. Vöruskipta gætir því
meira. Á myndinni sést maður
skipta á „zítarnum“ sínum og
silkiklút, sem hann ætlar að
gefa konunni sinni.
Nýtísku leikvangur. / Mexico
City, höfuðborg Mexico, hefir
verið byggður leikvangur fyrir
nautaat stærri og fegurri en
þekkist annarsstaðar. Ljósaút -
búnaður er sérstaklega vandaó-
ur, og hægt er að sýna um
kvöld jafnt sem dag, Ijósadýrð-
in er svo mikil.