Fálkinn - 26.09.1947, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Aðalinngangurinn inn i danska Rikisþingið með styttum Snorra og Saxo.
Snorralíkneski í Danmörku
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSprení
SKRADDARAÞANKAR
Henry Ford lét eftir sig eitthvað
á milli 200 og 500 milljón dollara.
Hann var „kapítalisti“ —• einn af
þessum óvinum mannkynssögunnar,
sem teknir eru til dæmis um spill-
ingu auðvaldsskipulagsins og ein-
staklingsfrumkvæðisins.
Þegar hann dó var liann jafn
mikill einstæðingur og jafn fátæk-
ur og allir aðrir. Hálfi milljarðinn
hans kom lionum ekki að neinu
gagni í dauðanum. Hann stóð engu
betur að vígi en öreigi inni í skugga
hverfi. En hann hafði unnið miklu
meira verk en að græða dollarana.
Starf lians var ekki í því fólgið
að arfleiða ættingja sína að auð-
æfum, heldur í öðru miklu mikils-
verðara. Hann arfleiddi allan heim-
inn að samgöngumálaframför, sem
eigi aðeins sléttubændurnir í Am-
eríku höfðu gott af heldur strjál-
býlingarnir hér á landi líka. Hann
gerði efnalitlum mönnum fært að
éignast hifreið til þess að koma
afurðum sínum á markaðinn og
dráttarvél til að plægja landið. —
Milljónirnar, sem Ford græddi á
hagsýni sinni og skipulagsgáfu eru
ekki nema örlítið tugabrot af því,
sem aðrir liafa grætt á honum.
En Ford var auðvaldssinni, segir
froðusnakkurinn á torginu. Milljón-
irnar hans voru fengnar með svita
verkamanna, með arðráni og ofbetdi
rangláts þjóðskipulags. En hvaða
gagn liafði Ford af þessu? Að al-
manna dómi hefir hann verið „for-
skrúfaður“ sérvitringur. Hann hafði
ekkert gaman af að eta góðan mat
og drekka kampavín, og liann komst
af með einn eða tvo bíla til eigin
þarfa. Hann lifði ákaflega spart.
En tiann hafði gaman af að sýsla
með ýmsar fáranlegar hugmyndir til
mannfélagsbóta og eyddi allmiklu
af peningum í það. Og liann var
sístarfandi. Hann hefði getað látið
sér líða miklu betur ef hann liefði
ekki átt neitt af þessum 500 milljón
dollurum.
En hann tifði fyrir hugsjón. Hann
vildi gera líf almennings þægilegra.
Hann smíðaði ekki bílana sína til
að græða peninga heldur til þess
að létta öðrum starfið. Og hvað
sem allri þjóðnýtingu og auðsöfn-
un líður þá eru það menn eins og
Ford, sem lirinda liag almennings
fram á teið, engu síður en umbæt-
ur I félagsmálum.
Fálkinn flutti þann 25. júlí ]). á.
mynd af hinu veglega líkani af
Snorra Sturlusyni, er Norðmenn
gál'u ístandi og Ólafur konungsefni
afhjúpaði í Reykholti 20. júlí s. 1.
Flestir íslending'ar munu nú ætla
að þetta líkan sé hið eina sem gert
hefur verið af Snorra. En svo er
ekki. Danir hafa einnig fyrir all-
löngu látið gera líkneski af Snorra
og sett það á ekki óveglegri stað en
í fordyri Kristjánsborgarhallar. Þetta
mun hafa gerst án sérstakra hátiða-
lialda árið 1926, og sitja þeir nú
hvor sínu megin við aðaldyrnar
eins og myndin sýnir, Snorri og
Saxi, frægasti sagnritari Dana, er
uppi var samtímis Snorra, en þó
nokkuð eldri. Hann ritaði Gesta
Danorum á latínu og er oftast
nefndur sínu latnesk-gríska nafni
Saxo grammaticus (S. rithöfundur>.
— Þessar tvær myndir voru í smið-
um um það leyti og Kristjánsborg
brann (3. okt. 1884). Voru l)ær svo
geymdar á hinu sagnfræðilega þjóð-
safni Dana (National-Historisk Mu-
seum) í Friðriksborgarhöll á Norð-
ur-Sjálandi þangað til nokkrum ár-
um eftir að liin mikla Kristjáns-
borgarhöll var risin upp í þriðja
sinn. (Hún hafði einnig áður brunn-
Ljósmyndasýning
Ferðafélagsins
Ferðafélag íslands hefir í tilefni
af 20 ára afmæli sín efnt til tjós-
mynda- og ferðasýningar i Lista-
mannaskálanum. Stendur hún yfir
dagana 19.—30. september.
Það eru einungis áhugaljósmynd-
arar, sem taka þátt í sýningu þess-
ari, og myndirnar eru flokkaðar
ið, árið 1794). — Höfundur þessara
tveggja höggmynda var einn lielsti
myndhöggvari Dana á 19. öldinni
annar en Thorvaldsen, Otto Evens.
Hann var fæddur 1826 og dáinn
1895. Eru til eftir liann ýms fleiri
merk listaverk og minnismerki.
Eklci þarf að undra ‘ þótt myndir
þeirra Evens og Vigelands séu mjög
svo hvor með sínum liætti og sínu
útliti. Bæði eru listamennirnir sjálf-
ir mjög ólíkir og svo hafa þeir
mótað hvor sína liugmynd um
Snorra og auk j)ess í ólíkri still-
irigu. Þá verður manni einnig hugs-
að tit hinnar frægu teikningar
norska málarans Chr. Kroghs af
Snorra, sem er framan við norsku
skrautútgáfuna af Heimskringlu, og
hin nýja ísl. Helgafellsútgáfa hefir
einnig notað.
Sagan birtir oss Snorra Sturlu-
son aðallega I þremur áberandi
myndum: — sem höfðingja og
stjórnmálamann, sem búhöld og
fjáraflamann og sem fræðimann og
skáld. — Mætti nú segja að mynd
Kroghs minni helst á höfðingjann,
útimynd Vigelands á búhöldinn og
mynd Evens á fræðimanninn. — Þó
að þessar myndir séu, sem sagt,
allólíkar hver annarri, eru þær full-
niður í 3 aðalflokka. í A-flokki eru:
1. Landlagsmyndir, 2. ferðamyndir,
3. náttúrulýsingar. 1 B-flokki: 1.
Þjóðlifsmyndir, 2. samstillingar, 3.
andlitsmyndir. í C-flokki: Héraðs-
lýsingar (12 mynda seríur).
Sýnendur eru 25 og myndirnar
fjögur tit fimm liundruð alls. —
Gætir mjög nýrra kjarna í áhuga-
mannahópnum, en þó sýna margir
úr hópi hina eldri og þekktari
fjölda mynda. Litmýnda gætir lílið,
og munu allskonar erfiðleikar á
nauðsynlegri efnisútýegun valda.
Auk myndanna liefir verið kom.ð
komlega þess verðar að vér höfum
þær allar í liuga, þegar vér reynum
að skapa oss heildarhugmynd af
Snorra og að þær verði einnig til
fyrirmyndar þeim listamönnum,
sem framvegis reyna sig á að gera
myndir af þessu mikla stórmenni.
Má þá l)ugsa sér Snorra yngstan
á Vigelandsmyndinni en elstan á
Kroghsmyndinni. — Það kemur að
því að Háskólinn verður að eignast
minnismerki um Snorra Sturluson
mesta rithöfund og heimildarmann
norrænna fræða fyrr og síðar. —
Með bók sinni um Snorra liefir próf.
Sig Nordal á sinn liátt reist hon-
um veglegan varða. — Þá skal
loks minna á frummynd próf. Ein-
ars Jónssonar að sérkennilegu minn
ismerki um Snorra, þótt ekki sé þar
nein líkamsmynd af honum heldur
þess í stað mynd af sagnagyðjunni.
Þessi mynd er gerð árið 1902, og
er til sýnis meðal annarra mynda
á safni hans.
Fálkinn birtir á forsíðu sinni
mynd af hinni fögru Snorramynd
Evens og telur fullkomíega tima-
bært að athugað verði, hvort lslend-
ingar eigi ekki að gera ráðstafanir
til að eignast eftirmynd af þessu
líkneski.
fyrir í skálanum ýmsum sýningum
í sambandi við jökulferðir og viðleg-
ur. Einnig eru sýnd margskonar
ljósmyndaáhöld.
Þrenn verðlaun verða veitt fýr>r
bestu myndir og dómnefnd skipa
þeir Pálmi Hannesson, Halldór Arn-
órsson og Vigfús Sigurgeirsson.
Verðlaunin eru gefin af Gunnari
Einarssyni, forstjóra, Ragnari Jóns-
syni forstjóra og' Itans Petersen.
Undirbúningsnefnd sýningarinnar
er skipuð þeim Steinþóri Sigurð-
syni, Þorsteini Jósepssyni og Gísla
Gestssyni.