Fálkinn - 03.09.1948, Qupperneq 5
FÁLKINN
5
Ólympíumyndir
Ógæfan elti hann. Danski milli-
vegalenyda-hlauparinn Herluf
Christensen, sem nokkrar vonir
voru tengdar við vegna óvænts
sigurs í 800 metra hlaupi móti
Holst-Sörensen. datt í 800 m.
hlaupinu d Ólympíuleikunum
og fótbrotnaði. Var flogið með
hann til Danmerkur, þar sem
hann var lagður á sjúkrahús í
Árósum. Mynd þessi er tekin
af Christensen á siúkrabörum
úti á Wembley-leikvangi. Hann
fylgist af áhuga með keppn-
inni.
Noregur vinnur. Kappróðrar þykja alltaf skemmtilegir, og þá
ekki síst í Englandi, þar sem kappróðrarkeppni milli Oxford
og Cambridge þykir einn mesti íþróttaviðburður ársins. í
kappróðri á 8 manna fari unnu Norðmenn. Sjást þeir hér í
róðrinum. Næstir eru Portúgalar.
Sigurvegarar í 200 m. hlaupi.
Mynd þessi er tekin af sigur-
vegurunum í 200 m. hlaupi við
verðlaunaaf hendinguna. 1 miðju
er Mel Patton, U.S.A., sem varð
sigurvegari á 21, i sek., til
vinstri Barney Ewell, U.S.A.
Hann var nr. 2 á 21,1 sek. líka.
Eivell varð einnig annar í 200
m. hlaupi. Til hægri er La
fíeach frá Panama, sém varð
þriðji á 21,2 sek. Hann varð
einnig þriðji á 100 metrunum.
Danir vinna gullmedalíu. Sigfrid Edström, formaður alþjóða-
Úlympíunefndarinnar, sést hér afhenda dönsku ræðurunum
frá Hróarskeldu, verðlaun fyrir sigurinn í kappróðri á litlum
um bátum (tveir ræðarar og stýrimaður).
Til vinstri:
Gat sér mestan orðstír allra.
„Hollendingurinn fljúgandi",
Fanny fílankers-Koen vann 4
gullpeninga á Ölympíuleikunum
og er það meira eti nokkur ann-
ar þátttakandi gerði. Verði
nokkrum keppanda skipað á
slíkan bekk sem Owens 1936,
er það Blankers-Koen. Vinn-
ingsgreinar hennar voru 100 og
200 metra hlaup, 80 m. grinda-
lúaup og bxlOO m. boðhlaup.
Hér sést hún koma að marki í
200 m. hlaupinu.
Sigurvegarinn í kúluvarpi. Eins
og við var búist áttu Banda-
ríkjamenn þrjá fyrstu menn-
ina í kúluvarpi, og Evrópumenn
irnir allir vörpuðu kúlunni
miklu styttra. Sigurvegarinn,
Willie Thompson náði gildu
kasti 17,12 m. löngu og öðru
ógildu um 18 m. löngu, Gilda
kastið var gæsilegt nýtt Ölymp-
íumet. fíaman hefði verið að
sjá heimsmethafann, negrann
Fonville keppa við hann á leik-
uniim, þvi að þeir hafa löngum
elt grátt silfur.
Svaramaðurinn var skelfing dauf-
ur í dálkinn og hugsa'ði ekki neitt um
skyldur sínar, svo scm að skrifa
nafnið sitt undir ministerialbókina
eða þéssliáttar. Kunningi hans kom
til hans og spurði: „Ertu búinn að
kyssa brúðina?“ „Nei, ekki nýlega,“
svaraði hinn.
Þökk fyrir Ólympíuleikana. /
þakkarskyni fyrir 14. Ólym-
píuleikana hefir formaður í-
þróttasambands írans, Djahan-
bani hershöfðingi, afhent J. S.
Edström formanni alþjóða- Ól-
ympíunefndarinnar, og fíurgli-
ley lávarði, formanni skipulagn
ingarnefndarinnar, málverk af
írönskum póló-leikurum. —
Myndin er í fílabeinsramma. —
Mynd þessi er tekin við afhend-
inguna. Djahanbani er til hægri
og fíurghley lávarður til vinstri.
Börnin eru að gera stil og kepp-
ast við. Þau eiga að skrifa um
„Framtíðaráform mín“. Stína litla
skrifar með stóru letri: „Eg skal
aldrei giftast. Eg ætla að vera ekkja
alla mína ævi. Og ég ætla að vinna
fyrir börnunum mínum sjálf, því
að þá þarf ég ekki að vera hrædd
við neinn karlmann á heimilinu."
*****