Fálkinn - 03.09.1948, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
STJÖRNULESTUR.
Frh. af bls. 9.
og vinnuhœli verða mjög á dagskrá
og vekja athygli. Lagfæringar koma.
til greina. — Merkúr i 1. húsL
Aukið framtak mun áberandi og
miklar umraeður um ýms málefni
er vekja athygli almennings. —
Neptún og Mars í 2. húsi. Slærn af-
staða til fjárhag'smála, peningastarf-
semi og bankaviðskipta. Óhyggilegar
hreyfingar í þeim efnum. Júpíter í
4. húsi. Ekki beinlínis góð afstaða
fyrir bændur og landeigendur,
námurekstur og slík málefni og
viðfangsefni. ■— Úran i 10. húsi.
Hæpin afstaða fyrir forsetann og
stjórnina. — Venus í 11. Iiúsi. Heppi
leg afstaða fyrir afgreiðslu þing'-
mála.
ÍSLAND.
11. hús. ■— Nýja tunglið er í húsi
þessu. — Þingmál og stjórnin munu
mjög á dagskrá á þessum tíma og
og eru afstöðurnar fremur góðar.
Merkúr er einnig í húsi þessu, óg
bendir á umræður um þessi mál
og blaðaskrif.
1. hús. — Mars er í liúsi þessu.
— Þetta er ekki góð afstaða og
bendir á áróður mikinn og baráttu.
Misgerðir geta komið í Ijós og
brunahætta.
2. luis. — Mars ræður húsi þessu.
— Fjármálin munu örðug og tekjur
minnka. Reksturskostnaður eykst í
samanburði við tekjur.
3. hús. — Júpiter er í húsi þessu.
— Þetta æfti að vera góð afstaða
til flutninga, bóka og blaða, pósts
og síma og útvarps, en hætt er við
auknum kostnaði og barátta i þess-
um greinum frá hendi vinnuþiggj-
enda.
4. hús. —- Satúrn ræður húsi
þessu. — Ekki heppileg afstaða fyr-
ir bændur og landeigendur. Stjórn-
in á i örðugleikum.
5. hús. — Júpiter ræður húsi
þessu. — Þetta ætti að benda á
sæmilega afstöðu leikhúsa, skemmt-
ana og leiklistarstarfsemi, jafnvel þó
að dálítið beri á óróa og óánægju.
6. liús. — Mars ræður húsi þessu.
— Örðug afstaða fyrir verkamenn
og atvinnuþiggjendur og' órói og óá-
nægja meðal þeirra.
7. hús. ■— Mars ræður húsi þessu.
■— Þetta er slæm afstaða iil utan-
ríkismála og stjórnarviðskipta við
aðrar þjóðir.
8. hús. — Venus ræður húsi
þessu. — Hið opinbera ætti að eign-
ast fé við afstöðu þessa. Kunn kona
gæti látist.
9. hús. ■—• Úran og Venus cru i
húsi þessu. — Utanríkissiglingar
ættu að vera undir góðum áhrifum,
en þó er hætt við óvæntum óhöpp-
um í þeim greinum og í utanríkis-
viðskiptum.
10. hús. — Satúrn og Plútó eru í
húsi þessu. — Þetta er örðug afstaða
fyrir stjórnina og hún má gæta
hygginda ef vel á að fara. Mótgerð-
ir gegn henni gætu orðið heyrin-
kunnar.
Úran er í hádegismerki stundsjár
lýðveldisins og má því búast við
breyttri afstöðu jjess og stjórnar-
innar.
12. hús. — Neptún er í húsi
þessu. Ekki heppileg afstaða fyrir
starfsemi spítala, heilsuhæla og betr
unarhúsa. Óvænt ókunn atvik gætu
komið til greina í þessum efnum.
Ritað 15. ágúst 19b8.
GÁLGABERG.
Frh. af bls. 9.
Hún fer inn í Notre Damekirkjuna
Gluggamálverkin i kórnum glóa á
móti henni í sólinni. Hún brosir
eins og hún þekki myndirnar:
Þarna eru allir spámennirnir. Hérna
var Iiún oft með Francois þegar
liann gekk á dómkirkjuskólann.
Hérna var hún með honum síðdegis,
þegar sólina lagði gegnum rósa-
gluggann á vesturgaflinum. Hún
benti og sagði: Þarna, Francois,
þarna eru spámennirnir. En hann
vissi það svo sem vel sjálfur, hann
Francois! Og hann vissi meira •—
hann vissi nöfnin á þeim öllum.
Og nú er liún hérna mörgum ár-
um siðar — aleiu.
Notre Dametorg'ið var laugað í sól
þegar hún kom út. Hundur hljóp
geltandi innan um fólkið. Súmir
námu staðar, töluðu nokkur orð
saman, kinkuðu kolli og hlógu og
héldu áfram sína Jeið. Já, hugsaði
liún með sér, höfðu þessar mann-
eskjur ekki ástæðu til að vera glað-
ar svona fagran morgun?
Blað og blað á stangli hékk enn á
greinunum og blakti i andvaranum.
Nokkrar kerrur skröngluðust yfir
brúna til Quartier Latin og gerðu
svartar rákir í snjóinn. Háu húsin
beggja megin við brúna höfðu tek-
ið hlerana frá gluggunum, svo að
morgunsólin gæti gægst inn í dimmu
herbergin.
Og undradýrin í skugganum af
vesturturnum kirkjunnar störðu
framundan vindskeiðunum og
gláptu niður á húsaþökin.
*****
Lœknirinn: — Hafið þér farið að
mínum ráðum og sofið fyrir opnum
gluga á nóttinni?
Sjúklingnr: Já, ég hefi g'ert það.
Lækn.: — Og þé hafði þér íklega
losnað við kvefið?
Sjúkl.: — Nei, bara við gullúrið
mitt og vasabókina.
Baldur Moller
lialdur Möller.
Margir af bestu skákmönnum
Norðurlanda hafa nú keppt um
titilinn „Skákmeistari Norðurlanda
1948“ í borginni Örebro í Sví-
þjóð. Meðal keppenda var skák-
meistari íslands, .Baldur Möller,
eini islenski þátttakandinn. Bald-
ur liiaut 8 vinninga af 11 möguleg-
um og vann þar með sæmdarheit-
ið, sem um var keppt. Keppnin var
lengi vel mjög tvísýnt, en þö voru
Norðurlandablöðin sum farin að
spá sigri Baldurs. áður en hann
varð efstur. Næstur Baldri að vinn-
ingatölu var Karlin, Svíþjóð með
7’/L> vinning. Baldur hefir farið víða
i sumar og þreytt skákkeppni við
fræga skákmenn. M. a. tók hann þátt
í alþjóðlega mótinu í Tékkóslóvakíu.
Einnig Jiefir Baldur oft áður tekið
1 >á11 í skákmótum erlendis. Undan-
farin 10—15 ár hefir hann verið í
röð bestu skákmanna íslendinga og
nú er liann bæði skákmeistari
Reykjavíkur og íslands.
Ensk þrýstiloftsflugvél.
Sigurjón Jóhannsson, vélstjóri,
Laugaveg 161, varð 50 ára 30. ág. s.l.
Heilagsandasöfnuðurinn í Seyru-
vík fékk trúboðaheimsókn og var
fundurinn auglýstur í þorpinu á
þessa leið:
„Gestur okkar, Nikodemus Bctú-
elsson trúboði, talar í kvöld: „Bar-
ið á dyr Ilelvítis!“ Allir innansveit-
arme n n velkóm nir “
Yður mundi hverfa þunglynd-
ið 'ef þér gerðuð það að reglu að
syngja meðan þér eruð að vinna.
Hvað hafið þér fyrir stafni?
E;> er flautuspilari í hljóm-
sveitinni.
Var útselt á kveðjuhljómleik-
uinim þinum?
—Eh '— útselt var það nú eigin-
lega ek!:i. En ég sá tvö andlit, scm
ég þekkti ekki.
MACKENZIE KING
dregur sig í hlé
í Jjessum mánuði lætur Mctc-
kenzie King af f orsælisráð-
herraembættinu í Kanada og
dregur sig í hlé frá stjórnmála-
störfum. Louis St. Laurent, ut-
anríkisráðherra Kanada, hefir
verið kjörinn formaður frjáls-
Ignda flokksins eftir King, og
verður hann þannig sjátfkrafa
forsætisráðherra landsins, er
King lætur af embættinu. Efri
mgiulin sýnir King óska arftaka
sínum til hamingju, en neðri
myndin er af St. Laurent.