Fálkinn - 29.10.1948, Síða 7
FÁLKINN
7
Mannapar. — Þetta eru stúdent-
ar við dýralæknaskólann i Hann
over, sem hafa sett á sig gorilla-
grímur til þess að sjá hvernig
það verki á ýms dýr. Það er
mjög mismunandi hvernig dýr-
unum verður við sýnina.
Ljósmyndari sofnar á verði. —
Blaðaljósmyndararnir l París
höfðu nóg að hugsa meðan
stjórnarkreppan stóð yfir þar.
Þeir urðu oft að bíða tímunum
saman fyrir utan stjórnarráðin,
þar sem verið var að þinga um
stjórnarmyndumna. Hér sést
Ijósmyndari sem hefir sofnað
með vélina sína og lampann á
tröppunum fyrir utan verka-
málaráðuneytið, meðan Queu-
ille-stjórnin var að fæðast. 1
baksýn sést þingmaður frá Alzír
flýta sér á fundinn.
Skrautbúinn gestur. — Veðreið-
arnar í Longehamps t París
voru fjölsóttar að þessu sinni.
Meðal gesta var þessi negra-
höfðingi.
50 ára afmæli — Fyrir nokkru
voru liðin 50 ár síðan ameríska
herskipinu „Maine" var sökkt í
stríðinu milli Spánverja og
Bandarlkjanna. 1 tilefni af þvl
hafa eftirlifandi hermenn úr
þeirri styrjöld lagt sveig á leiði
hinna föllnu i kirkjugarðinurn
í Arlington. Á myndinni sjást
Leroy Leisey, 68 ára, og McAll
ister, 77 ára, falla á kné við
leiði hinna föllnu, báðir i ein-
kennisbúningi þeirra tíma.
RobertSchuman, fyrrverandi for
sætisráðherra Frakka, sem nú
er orðinn utanríkisráðherra í
nýju stjórninni.
Hrókar heimsbankans. — Alþjóðabankinn, sem stofnaður var
í Bretton Woods og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn héldu þriðja
ársfund sinn nýlega í Washington að viðstöddum fulltrúum
frá 47 þjóðum. Hér sjást þrír helstu menn þessara stofnana, sem
sé (frá v.): John Mc Clay forstjóri Alþjóðabankans, dr. Yun-
Wu-Wang fjármálaráðherra Kínverja, sem er formaður
bankaráðsins og Belginn Camille Gutt, sem er forstjóri al-
þjóðlega gjaldeyrissjóðsins.
„New look“ í Rússlandi. — Mynd af stúlku, sem velur sér efni
í kjól i tiskuhúsi vekur ekki sérstaka athygli venjulega. En
þegar myndin er frá Rússlandi, gegnir öðru máli. Þá er spurt:
„Hvernig eru kjólasniðin í Rússlandi?“ Mörgum leikur hugur
á að vita, hvort nýja tískan hefir komist þangað. Fáir trúa
því, þar sem það er almennt talið, að Rússar álíti allt það,
sem fundið er upp vestan „járntjaldsins", hljóta að vera
stefnt gegn heill þeirra. Þessu er þó ekki þannig farið um
kjólasniðin. Ungu, rússnesku stúlkurnar hafa fengið að apa
„vesturheimsku" tískuna eftir, fengið að klæðast síða móðnum.
Hárgreiðslulistin. - Mörg hundr-
uð hárgreiðslumenn og kon-
ur hafa verið á fundi í Oxford.
1 sambandi við hann var sýn-
ing á allskonar greiðslutísku frá
ýmsum tímum. — Hér sést
Madame Fregatt“ frá tímum
Lúðvíks 16.
Undir góðri vernd. — Meðan
húsmóðirin er inni í verslun-
inni, verða fylgifiskar hennar
tveir að bíða fyrir utan. Litli
kjölturakkinn nýtur öruggrar
verndar St.-Bernhards-hunds-
ins á meðan.