Fálkinn - 01.04.1949, Side 2
2
FÁLKINN
Jónas Eyvinclsson, simaverkstjóri,
Sjafnarg. 7, verður 65 ára 3. april.
EMPIRE STATE-
byggingin í New York var fullsmíð-
uð 1931 og er 102 hæðir og 380
metra há, en Eiffelturninn er að-
eins kringum 300 metra. í Empire
Statebygingunni eru yfir 60 lyftur
og simaþræðirnir í húsinu eru yfir
5000 kílómetrar. Húsið kostaði ekki
nema um 200 milljón krónur.
STEF
— Samband tónskálda og eig-
enda flutningsréttar — tekur
til starfa.
Menntamálaráðherra hefir nú lög-
gilt STEF (Samband tónskálda og
eigenda flutningsréttar), þannig að
nú er engri annarri stofnun heimilt
að innheimta flutningsgjöld fyrir
tónverk hér á landi.
STEF er í þann veginn að taka
ti) starfa, og munu bækistöðvar
þess verða á lögfræðiskrifstofu
Eggerts Classen og Gústafs Sveins-
sonar. Þar munu verða innheimtar
greiðslur fyrir flutning verka er-
lendra og innlendra réttliafa, en
uppliæð greiðslunnar verður stillt
mjög í hóf, enda hefir Stef náð hag-
kvæmum samningum við erlenda
réttliafa, sem það er umboðsaðili
fyrir hér á landi.
Stef hefir verið tekið upp i al-
þjóðasamband flutningsréttar, og
formaður þess, Jón Leifs, hefir að
undanförnu ferðast um meginland
Evrópu og gert 20 samninga, sem
færa íslenskum aðilum erlend rétt-
indi og skapa farvegi til útbreiðslu
islenskrar menningar.
ÚR NÓGU Ai) VELJA.
Þegar Elisabeth Albinus missti
unnastan sinn fékk hún 443 biðla,
sem voru reiðubúnir til að hlaupa
í skarðið. Hefir enginn kvenmaður
fengið jafn mörg hjúskapartilboð
á jafnstuttum tima. Þessir 443 komu
nefnilega á 48 timum. — Elísabeth
er þýsk, 25 ára. Hún liafði komið
fljúgandi til New York frá Munchen
ásamt 12 öðrum þýskum stúlkum,
sem allar voru trúlofaðar amerísk-
um hermönnum. En liennar piltur
sýndi sig ekki á flugvellinum til að
taka á móti henni. Honum hafði
snúist liugur. En ljósmyndarar voru
þar og blaðamenn. Nokkrum klukku
stundum síðar var raunasaga Elísa-
betar komin i blöðin og myndin af
henni á fremstu síðu í sex stærstu
blöðunum í New York og blaða-
mennirnir skrifuðu, að Elisabeth
væri miklu laglegri en Rita Hay-
worth. Og á minna en 48 tíinum
fékk hún 250 bréf og 175 símahring-
ingar frá mönnum, sem vildu gift-
ast henni, en 18 komu i eigin per-
sónu til að biðja hennar. — Elisa-
beth á úr vöndu að ráða og það
því fremur sem unnusti hennar kom
eftir þrjá daga og sagði skelfing
sakleysislega: „Þú liefir misskilið
mig. Mér hefir ekki snúist hugur.“
Það hafa runnið á hann tvær grím-
ur þegar hann sá að svona margir
aðrir vildu ná i hana.
NEW YORK
hcfir fast að því þúsund leikhús og
þar komast fyrir nærri þvi milijón
manns. Þegar heitt er i veðri nota
borgarbúar um 8 milljón smálestir
af vatni á dag.
Harmsaga
ævi minnar,
hin berorða sjálfsævisaga Jó-
hannesar Birkilands, er nú kom-
in út í annað sinn, endurbætt.
Birkiland segir sjálfur, á bls.
289: „Bersöglin um sjálfan mig
í þessari liarmsögu minni, sýn-
ir alfullkomna einlægni og ó-
takmarkaða sannleiksást. Munu
sliks engin dæmi. Þetla er ein-
stætt fyrirbæri i bókmenntum-
heimsins."
Bókaverslun
r
Isafoldar
x
. x
V
I
ný bók:
SÁLMASAFN
EFTIR HALLGRÍM PÉTURSSON.
Þeir, sem ætla að kaupa
CUf4o*d garðyrkinvélar
fyrir vorið, tali við okkur sem fyrst
Kristján G. Gíslason Sc Co. h.f.
Síra Sigurbjörn Einarsson dósent hef-
ir valið sálmana úr Ijóðum síra Hall-
gríms öðrum en Passíusálmunum og
gefið út i sama broti og formi og hin
afar vinsæla vasaútgáfa LILJU af
Passíusálmunum.
Sálmasafn trúarskáldsins góða verð-
ur ásamt Passíusálmunum ferming-
argjöfin í ár.
I
BÓKAGERÐIN
LILJA