Fálkinn - 01.04.1949, Page 6
6
FÁLKINN
VITIÐ ÞÉR . . . . ?
ÍLEIKHÚS OG LEIKLISTÍ
H FRA FORN - GRIKKJUM TIL VORRA DAGA *
M . K
M X
%5#¥<^Í?<¥<y>*>tKKKKKKKK ^KKKK^
William Shakespeare.
Kringum aldamótin 1600 voru sex
stór fastaleikhús i London, og sýn-
ir það að leiklistaráhuginn var
mikill, því að London var lítil borg
þá, i samanburði við það sem síð-
ar varð. Enda var lika mikið til af
leikritum og leikritahöfundum. Á 50
ára skeiði komu fram ekki minna en
50 leikritahöfundar í Englandi. Og
einn þeirra var jöfurinn William
Shakespeare.
Shakespeai-e.
Hér er ekki tækifæri til að segja
frá ævi þessa mikla manns eða verk-
um hans. En hinsvegar skal reynt
að Jýsa livernig umhverfið var
kringum Jeikrit lians.
„Shakespeare-leikhúsið“, það er
að segja ensku leikhúsin eins og þau
voru á dögum Shakespeares litu tals-
vert einkennilega út. Þau voru eins
og marghyrndur turn í laginu, byggð
ur kringum þröngan húsagarð, sem
var opinn upp úr, eins og brunnur
milli húsanna. Þar i brunninum
voru ódýrustu plássin, stæðin, og
var þetta kailað „tlie pit“. Kringum
hann voru þrennar svalir, „gallery“,
hver upp af annarri, og voru þær und
ir þaki. Þar voru sæti. Neðstu sval-
irnar voru besti staðurinn í leikhús-
inu, og hér sat hefðarfólkið — kven-
fólkið þar var að jafnaði með grímu
fyrir andlitinu. En ungir aðalsmenn
vildu helst sitja á sjálfu leilcsvið-
inu, á þrífættum kollustólum, sem
þeir leigðu af leikendunum. Sjálft
leiksviðið var pallur, á milli áhorf-
endasætanna. Bak við hann voru
klefar leikendanna, með dyrum út
á sviðið og voru þeir stundum not-
aðir, sem hluti af leiksviðinu.
Leiksviðið var undir beru lofti,
eins og „the pit“, en stundum var
þó tjaldað yfir það, til dæmis ef
mikil rigning var. En það var aldrei
tjaldað yfir stæðin; þar varð fólk
að dúsa hvernig sem rigndi, enda
voru þau ódýr. Fortjald eða leik-
tjöld voru ekki notuð, áhorfandinn
varð að liugsa sér úmgerð leiksins
sjálfur, eftir þvi sem efnið benti
til. .Þegar auglýsingaspjald var sett
á leiksviðið, þess efnis að þetta
væri slétta við Bosworth, þar sem
úrslitaorrustan stóð milli niðings-
ins Richards III. og Henriks Tudor,
þá var það sléttan og fólki fannst
hún vera vígvöllurinn sjálfur.
Sýningarnar liófust snemma, um
klukkan þrjú síðdegis. Voru þær
boðaðar á þann hátt að blásið var
í lúðra á götunum og fáni var dreg-
inn upp á leikliúsinu.
Eins og marka má af þvi, sem
liér hefir verið sagt, voru hin ytri
skilyrði Sliakespearesleikhússins
fremur bágborin i samanburði við
það, sem síðar varð. Húsin sjálf
voru að öllu leyti úr timbri og oft
af vanefnum gerð og veikbyggð. Ár-
ið 1583 hrundu til dæmis svalirnar
í einu leikhúsinu og fórst fjöldi
manns, sem þar var samankominn.
Leikhúsumbúnaðurinn var jafn
bágborinn og húsin sjálf. En á þess-
um leiksviðum voru sýnd í fyrsta
skipti mörg þeirra leikrita, sem
enn i dag þykja gimsteinar leik-
menntarinnar og það óviðjafnan-
legasta sem hægt sé að sýna á
nokkru leiksviði. Þaðan eru komnar
heimsfrægar persónur — Hamlet,
Richard III., Falstaff, Lear konung-
ur, Sliylock, Rómeó, Desdemona,
Ofelia og hvað þær nú heita allar
saman.
Shakespeare sannaði það öðrum
fremur, að það er fyrst og fremst
leikritið og leikarinn, sem allt er
undir komið. Leiksviðið skipar ó-
æðri sess. En vitanlega hefir það
líka sitt hlutverk og á síðari tím-
um liefir einmitt leiksviðsumbúnað-
inum fleygt mest fram'
VEL BOÐIÐ.
í „Dagens Nylieter“ stóð fyrir
nokkru svolátandi auglýsing; „Ekkja,
45 ára aðlaðandi og lagleg, sem á
eina milljón sænskar krónur, óskar
að kynnast menntuðum manni um
fimmtugt, sem er skuldugur um allt
að milljón sænskar krónur. Menn
sem ekki uppfylla skilyrðið með
illiti til skuldarinnar koma ekki til
jreina. Svar merkt „skatta-hjúskap-
jr“ sendist afgreiðslu blaðsins." —
Sænsku skattayfirvöldin eru nú að
eita uppi einhverja lagagrein, sem
lægt sé að nota til að fyrirbyggja
vona hjónabönd.
•— Heyrið þér læknir. Þér áminnt-
íð mig í fyrra um að verða aldrei
vot í fæturna. En haldið þér að
nér sé ekki óhætt að þvo þá ein-
iverntíma þegar hlýtt er i veðri?
að kengurú getur hoppað allt að
10 metra hátt?
Það er að segja, að hún getur
hoppað upp á venjulega flagg-
stöng. Og svo er hún líka hlaupa
gikkur og gelur farið fram úr
góðum hesti.
að jökull myndast jafnvel á fjöll-
unum undir miðjarðarbaug?
Þannig er jökull á fjallinu
Kiliam Ndjaro í Afríku, þrádt
fyrir hitann, því að fjallið er
6000 metra hátt og þessvegna
er þar alltaf næturfrost. Vegna
sólarhitans á daginn er jökull
þessi allt öðruvísi útlits en
nær heimskautunum, eins og
sést hér á myndinni.
LÁN f ÓLÁNI.
Kona ein í Toulon, scin selur miða
í franska ríkishappdrættinu hafði
gleymt að tilkynna fyrir drátt um
150 miða, sem hún átti óselda. Dag-
inn eftir dráttinn fór hún að skoða
vinningaskrána, til að sjá hvort lnin
hefði fengið vinning til að vega á
móti því sem miðarnir kostuðu, en
það voru um 7500 frankar. Það
kom á daginn að hún hafði haft
1.400.000 franka upp úr gleymsk-
unni.
að reykháfar á skipum nútím-
ans eru notaðir til margs ann-
ars en að taka á móti reyknum?
/ mótorskipum þarf ekki nema
mjóa pípu til þess að taka á
móti útblástursloftinu, en samt
hafa menn stóra reykháfa á
þessum skipum, vegna útlitsins.
Er rúmið í reykháfnum þá not-
að fyrir klefa og stofur lianda
skipshöfninni o. s. frv.
Reykháf ur á eimskipi þarf
auðvitað að hafa meira rúm
fyrir loftrás, en samt er þar
rúm fyrir fleira, á skipinu s/s
Orc.ades, sem er nýbyggt, er l.
d. „brúin“ uppi á reykháfnum,
og hefir það ýmsa kosti, m. a.
sést betur yfir skipið þaðan en
ella. — Hér sést reykháifurinn
á s/s Orcades. Verður ekki sagl
að hann sé fallegur.
að hægt er að nota jarðhitann
til að hita upp hús?
— Já, það vitum við, munu
menn svara. En hér er ekki átt
við hitaveitu eins og í Reykja-
vík, heldur upphitun frá ,kaldri‘
jörð. Er grafið ofan í jörðina
svo djúpl að hún hefir sama
hitastig sumar og vetur. Þaðan
er lofti dælt upp í húsið, og
byggist aðferðin á sömu regl-
unni og gildir um kælivélar. —-
Sést hér slík leiðsla og er mynd-
in úr timaritinu „Life“.