Fálkinn - 01.04.1949, Qupperneq 10
10
FÁLKINN
YMtsm
bC/&NbURHIR
Furðuverkin sjö
Þú hefir vafalaust heyrt sagt: „Það
er eitt af sjö furðuverkum verald-
arinnar“. En hvaða furðuverk er þá
átt við?
í fornöld voru furðuverkin sjö tai-
in þessi:
1. Pýramidarnir við Memphis.
2. Hengigarðarnir í Babýlon,
3. Artemismusterið i Efesos,
4. Zevsmynd Fídiasar í Olympía,
5. Grafhýsið i Halikarnassos.
(i. Jötuninn á Rhodos og
7. Vitinn á Faros.
En ef þú ættir að segja hver þér
fyndust vera sjö furðuverk verald-
ar mundirðu eflaust nefna eitthvað
annað.
SAGAN UM KRISTÓFER KOLUMBUS
17. Á Spáni hafði vaknað óá-
nægja yfir því hve lítið hafðist upp
úr hinu nýja nýlenduríki, en þó gat
Kólumbus farið i þriðju ferð sina
vestur í byrjun ársins 1498, með
sex skip. í þetta sinn fór hann miklu
sunnar en í fyrri ferðunum og nú
fann hann eyjuna Trinidad og nyrstu
hluta Suður-Ameríku, og einhvern-
veginn fékk hann þá flugu i höfuðið,
að þetta nýja land sem hann liafði
fundið væri Paradís.
18. Þegar hann kom til Haiti log-
aði þar allt í uppreisn, og uppreisn-
armenn höfðu gert Spánarkonungi
orð og beðið um hjáip. Sendi hann
yfirdómara vestur til að koma friði
á. Dómari þessi, Bopadilla hét hann,
reyndist seinheppilegur. Hann hrifs-
aði vöidin og lét varpa Kólumbusi
og bræðrum hans tveimur i fangelsi
og síðan flytja þá til Spánar. En
þetta gekk fram af Spánarkonungi.
Bopadilla var settur af og nýr floti
sendur af stað og Kólumbus með
honum. Hann átti að finna sund
nokkurt, sem næði inn i miðbik
„Indlands“.
é Copyright P I B Box 6 Copenhogen 3l
Adamson hafði grafið rottuna.
Skrítlur
— Fyrirgefið þér, þetta er víst
skrifstofa fyrir óskilagóss? Það mun
ekki hafa verið skilað hingað týndri
móður?
— Jœju, elskan mín, nú skaltu fá
að taka við stýrinu .......
Ung kona kom með ávisun i
banka og rétti gjaldkeranum. Hann
leit á liana og benti henni á, að
þó að ávísunin væri gefin út af
manni liennar þyrfti að rita aftan
á hana. Konan tók ávísunina og
skrifaði og kom svo með hana aft-
ur með þessari áritun: „Þin elsk-
andi EditlT'.
Áður en við giftumst var hann
alltaf skenuntilegastur af öllum þeg-
ar við vorum að heiman —!
t
I heimskautsleiðangri.
— Var það ekki það, sem ég
sagði — að hann hlyti að vera með
háan hita?
— Hverskonar maður er Jerkins,
spurði maður kunningja sinn.
— Hann vill alls staðar vera innsli
koppur í búri. Þegar liann er i brúð-
kaupi vill hann lielst vera brúðir-
in, og þegar hann er i jarðarför
vill liann vera líkið.