Fálkinn - 18.05.1951, Page 7
FÁLKINM
7
1 ■{■
„Jutlandia“ í Kóreu. — Norðurlandaþjóðirnar hafa ekki lagt UNO
til herlið til að berjast í Köreu en veitt annars konar hjúlp í
staðinn. Þannig breyttu Danir dieselskipinu „Jutlandia", eign
Austur-Asíufélagsins (Ö. K.) í spítalaskip og sendu það til Kóreu
með lækna og hjúkrunarfólk og alls konar lyf og súraumbúðir,
undir forustu kommandör Kai Hámmerich. Hér sést Syngman
Rhee, forseti Suðúr-Kóreu, vera að bjóða hann velkominn.
ÓGÆFUSAMUR MAÐUR.
Ilaric Basineni sem er 46 ára
henti sér út um glugga á fæðingar-
stofunni i Pozzo Nagra í ítaliu, cr
hann varð þess vísari að konan hans
hefði eignast þribura — og öll
börnin voru stúlkur. Basieni átti sem
sé sex dætur fyrir, en hefir allan
sinn hjuskap óskað sér að eignast
son. „Þ’að var fyrir sig ef það hefði
ekki verið nema ein stelpa — en
sex —“, tautar Basieni, sem nú ligg-
ur þungt haldinn á sjúkrahúsi.
Mikið ferðast Trygve Lie, en samt er hann í góðum holdum enn-
þá. Þessi mynd er frá því í vetur og er tekin suður í Chile. Þar
var Lie í tilefni af því að fjárhags- og félagsmálaráð UNO hélt
fund sinn þar. Lie er að Iieilsa Chile-forseta, Gabriel Gonzales
Videla en á milli þeirra sést forseti ráðsins, sem er Chilebúi og
heitir Hernan Santa Cruz.
Haile Selassie I., Etíópíukeisari sést á myndinni vera að heilsa
Eduardo Anze Matienzo, sem fyrir nokkru var sendur til Etíópíu
sem fulltrúi UNO. Matienzo er frá Boliviu.
Elsta flóttakonan til U.S.A. — Pauline Wilsdorf heitir elsta flótta-
konan sem er á vegum alþjóðahjálparnefndar flóttamanna. Ilún
átti nýlega 105 ára afmæli í flóttamannabragga skammt frá Salz-
burg í Austurríki, ásamt kjördóttur sinni, sem er fimm ára
og heitir Eilizavita. Á myndinni sést telpan lesa fyrir gömlu kon-
una áletrunina, sem er bæði á pólsku og ensku. En gamla konan
fékk aðra afmælisgjöf, enn betri. Hún fékk sem sé tilkynningu
um að henni Iiefði verið boðið til Bandaríkjanna og þar ætti hún
að njóta þeirra ævidaga, sem hún á ólifað.
Myndarleg rafstöð. — Verklegar framkvæmdir hafa verið meiri
í ríkjum Suður-Ameríku eftir striðið en nokkurn tíma áður. Hafa
þær sumpart verið studdar ríflega með lánúm úr Alþjóðabank-
anum, svo sem þessi vatnsvirkjun og rafstöð skammt frá Rio
de Janeiro, sem sést hér á myndinni. Alþjóðabankinn lánaði til
liennar 75 milljón dollara.