Fálkinn


Fálkinn - 22.06.1951, Side 2

Fálkinn - 22.06.1951, Side 2
2 FÁLKINN Jóhannes IJjartarson fyrrv. afgreiðslu stjóri hjá Eimskip, varð 85 ára. 19. þ. m. SIR HARTLEY SHAWCROSS breski „justitskanslarinn.“ Útvarpssenclirinn mji á Vatnsendaliæð. Hýr útvamtsendír tekínn i nothnn Meðal ýmissa stórtíðinda, sem gerð ust á þjóðhátiðardaginn, siðastl. sunnudag, er sérstaklega vert að geta þess, að þann dag var tekinn í notk- un nýr sendir á rikisútvarpsstöðinni á Vatnsendahæð. Með því er stórlega aukið öryggið á tryggum rekstri stöðvarinnar. Þvi að gamli sendir- inn, sem notaður hefir verið alla tíð síðan Vatnsendastöðin tók til starfa, var orðinn úr sér genginn og bilanir ekki fátiðar. Á föstudaginn var bauð yfirverk- fræðingur Ríkisútvarpsins, Gunnlaug- ur Briem iilaðamönnum og útvarps- ráði upp að Vatnsendahæð til þess að skoða hinn nýja sendi. Hann er frá Marconifélaginu, eins og sá gamli, sem notaður hefir verið sið- an 21. des. 1930. Miklar framfarir hafa orðið í útvarpstækninni siðan þá, og nýi sendirinn er bókstaflega „allra nýjasta nýtt“ i þessari grein, því að hann er sá fyrsti af sinni gerð, sem Marconifélagið setur upp. Sendirinn er 4 kw. stcrkari en sá gamli, en þó svo miku fyrirferðar- minni, að hann tekur ekki nema tæpan lielming af rúmi gamla send- irsins. Meginmunurinn er sá, að hinn nýi er loftkældur en sá gamli var vatnskældur. Er mikið reksturs- örggi og sparnaður að henni.En auk þess eru margar endurbætur á þessum sendi, ekki síst i þá átt að bæta tóngæðin. ,veir menn frá Marconifélaginu hafa annást uppsetningu og prófun hins nýja sendis. Fyrst var hann prófaður í verksmiðjunni í tvo mán- uði og síðan hafa prófanir farið fram á honum á Vatnsenda álíka langan tima. Meðal annars var hann látinn starfa samfleytt i 24 tíma fyrir nokkru, einkum til þess að ganga úr skugga um hvort loftkælikerfið stæðist slikt „Maraþonhlaup“. Hafa verkfræðingarnir A. T. Dunk og Stuart S. Spraggs annast allar þess- ar prófanir einkum sá siðarnefndi, sem hefir „fylkt“ sendinum síðan fyrstu prófanirnar byrjuðu í Chelms- ford. Árið 1930 kostaði útvarpsstöðin á Vatnsenda — hús og vélar — um 750.000 krónur. Það er til dæmis um ,tæringu“ krónunnar, að nýi sendirinn kostar um 1,4 milljón krónur, cn í þeim eru að visu inni- faldar um 300.000 krónur í tolla! Nú verður gagnger viðgerð og endurnýjun látin fara fram á gamla sendinum. Hún mun taka nokkra mánuði og siðan verður liann not- aður til vara, ef eitthvað kynni að bjáta á með hinn. Öryggið fyrir út- varpsrekstrinum er þannig orðið hið besta, og Vatnsendastöðin mun framvegis jafnan getað skilað öllu því, sem „í hana er látið.“ Nýr Finnlandssendiherra Á fimmtudaginn var afhenti liinn nýi sendiherra Finnlands á íslandi forseta embættisskilriki sín. Sendi- herrann, Edward Hjalmar Palin tók við embætti sínu i vetur, eftir Taa- janne sendilierra, en frestaði för sinni hingað til sumarsins. Á föstu- dáginn var tók hann á móti blaða- mönnum á heimili finnska ræðis- mannsins hér, Eiríks Leifssonar. Sendiherrann lætur vel yfir komu sinni liingað. „AIls staðar liefir mér verið tekið opnum örmum,“ segir hann, „og ég geng þess ekki dulinn, að hér er mikill hlýhugur í garð þjóðar minnar. Það gleður okk- iá' Finna, hve mjög samskiptin milli ykkar og okkar hafa glæðst, ekki aðeins i verslun og viðskiptum, held- ur eigi siður í öllu ‘menningarlífi. ísland, vestasta land Norðurlanda, hefir færst nær því austasta.“ Palin sendiherra kveðst ekki hafa getað komist í langferðalög nein meðan hann dvaldist hér. Krísuvík og Þingvellir eru þeir staðir, sem hann hefir náð til. En hann liefir skoðað söfnin og háskólann og farið í leik- luis og kynnt sér á þann liátt menn- ingu þjóðarinnar. „Síðar gefst mér vonandi tækifæri til að fara viðar um þvi að landið er jafn merkilegt og þjóðin. Eg liefi séð austurfjöllin hérna — hvílíkir litir!“ „Það eru ekki innantóm orð að Finnar bera virðingu fyrir íslandi, menningu þess og sögu. í sögu ykk- ar og okkar eru ýmsar hliðstæður, sem óneitanlega eru til þess fallnar að auka samúð milli þessara tveggja þjóða.“ --------Palin sendiherra á lang- an starfsferil að baki sér. Þvi að 33 ár eru liðin síðan hann gerðist starfs maðurutanríkisráðuneytisins finnska Hann liefir verið fulltrúi og sendi- herra i 12 rikjum samtals. Síðast var hann senriherra Finna i Tékkósló- vakiu. WINDSOR-H J ÓNIN. Meðan hertoginn af Windsor var „Prince of Wáles“ var hann al- ræmdur fyrir hve glannálega hann riði, og konunghöllum mönn- um fannst hætta stafa af því hve oft hann datt af báki. Ekki vitum vér hvort hann hleypir hestum sjálfur ennþá, en víst er um það, að hann hefir gaman af veðreið- um. Hér á myndinni sjást her- togahjónin í sætaröðinni næst veðreiðabrautinni, vera að horfa á veðreiðar i franska skemmti- staðnum Biaritz. Fulltrúar frá Bandaríkjaher voru viðstaddir, þegar . Willys-Overland jeppi var reyndur í kafakstri í Mar- ineland á Florida. Kom þá í Ijós að jeppinn gekk á helmingi dýpra vatni en ætlað var. Verkfræðingar Willys-Overland tilkynntu þá, að jeppar þeir, sem fyrirtækið smíðaði fyrir ameríska herinn, gætu gengið undir 5 feta vatni. Leyndardómur- inn er sá, að vél jeppans og rafkerefi er allt með algjörlega vatnsþétt- um umbúðum, auk þess sem útblást- urrörið og innsogið eru útbúin framlengingum, sem ná upp úr vatninu.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.