Fálkinn - 22.05.1953, Síða 4
4
FÁLKINN
Krymímgíii
í Lomdmm
er ekki aðeins glæsilegur sjónleikur
heldur táknræn trúarathöfn.
Bretar eru fastheldnir við forna
siði og hafa af glæsilegum at-
höfnum. Þess vegna er konungs-
eða drottningarkrýning í London
jafnan stórviðburður, sem öll
þjóðin fylgist með af lifandi
áhuga.
KÖMMU eftir lát Georgs
konungs, G. febrúar í
fyrra> var Gyrjað að und-
irbúa krýningu Elísabet-
ar drottningar, en sá undirbúningur er
svo inargþættur að ekki þótti duga
að liafa niinna en 15 mánuði til stefnu.
Enda kostar þessi krýningarsjónleik-
ur ekki minna en 100 milljón sterl-
ingspund — tvö pund á hvern ibúa í
Englandi, Wales, Skotlandi og Norð-
ur-lrlandi! Svo dýrt er allt tilstandið
við að setja gullkórónu á höfuðið á
Elísabetu ílrotningu í Westminster-
klausturkirkjunni. Öll athöfnin þar
stendur 2tíma, en er að vísu meira
augnagaman en nokkur önnur prjál-
sýning í veröldinni. í kirkjuna kom-
ast að vísu ekki neman innan við 3000
manns, en almenningur fær kost á að
sjá skrautlega lest gylltra vagna og
1200 skrautbúinna lávarða og biskupa
og allra helstu embættismenn rikisins
fara um göturnar, til kirkjunnar og
frá. Það er áætlað að um tvær milljón-
ir manna geti orðið þeirrar sýnar að-
njótandi, en ekki er það gefið, þvi
að fyrir plássin á pöllunum og í glugg-
unum meðfram leiðinni, sem er G
enskar mílur, verður fólk að borga
frá G0 til 3000 krónur.
Enginn leikstjóri í Hollywood hefir
nokkurn tíma haft jafn vandasamt
verk á hendi og framkvæmdastjóri
Krýningarinnar, en það er núverandi
jarl-marskálkur Englands, Bernard
Marmaduke Fitzalan lloward, 16. her-
togi af Norfolk, hinn kgl. hirðsiða-
meistari. Hann verður að sjá um allt,
t. d. að skikkjur aðalsmannanna full-
nægi settum skilyrðum, og að blöðin
og útvarpið hermi rétt frá öllum und-
irbúningsstörfum.
Hertoginn af Norfolk er formaður
Skjaldarmerkja-ráðsins en í því sitja
13 æruverðir og margkrossaðir mekt-
armenn, sem eiga að sjá um að allt
sé í lagi. Og ekki veitir af, því að oft
hefir það komið fyrir að ýmislegt
liafi lent í ólestri við krýningu.
Til dæmis gerðist það, er Edward
VI [. var krýndur 1902, að erkibisk-
upinn af Kantaraborg, sem var orðinn
gamall og hrumur, missti hina frægu
St. Edwardskórónu, og hefði hún dott-
ið á gólfið ef konungurinn hefði ekki
gripið hana i fallinu. Og loks þegar
biskupinn setti kórónuna á konungs-
höfuðið, sneri það aftur sem fram átti
að vera!
Við þá sömu krýningu var lávörð-
unum tilkynnt að öll athöfnin mundi
standa sjö klukkutíma, og höfðu marg-
ir þvi nesti með sér. En á hirðklæð-
unum eru engir vasar — gömul fyrir-
skipun til að afstýra því að grályndir
liöfðingjar bæru á sér vopn — og þess
vegna urðu aðalsmennirnir að geyma
matarbitann — í kórónum sínum.
Gamall hertogi gleymdi bitanum í
kórónunni, og er hann lyfti henni til
þess að þurrka svitann af enninu á
sér i kirkjunni, datt nestisbitinn á
gólfið.
Annars var krýning þessi sú erfið-
asta sem verið liefir i Englandi. Þá
hafði engin krýning farið fram þar í
meira en G0 ár, svo að enginn maður
var til sem mundi hvernig tilhögunin
hafði verið 1838, er Victoria var
krýnd. — En krýningarnar 1902, 1911
og 1937 eru svo nýjar af nálinni og
hefir verið svo ýtarlega lýst í máli og
myndum, að hertoginn af Norfolk ætti
að kunna reglurnar.
Eitt af fyrstu verkum Skjaldar-
merkjaráðsins var að láta gera fyrir-
mynd að fangamerki drottningar, því
að það verður baldýrað á alla ein-
kennisbúninga hirðarinnar og þjón-
anna og lífvarðarins, hinna svoköll-
uðu „Beef-eaters“, sem eru elsta her-
deild veraldar í sinni grein. Fanga-
markið er „E-II-R“ — Elísabet II.
Regina.
Margir gestir.
Alls verða boðnir 7.G00 gestir á
athöfnina. Enginn getur keypt sér a.ð-
gang, hversu ríkur sem hann er, að
Westminster Abbey. Boðsgestirnar
eru: aðalsnienn, æðstu menn kirkj-
unnar, þingmenn allir, ásamt frúm
sínum og þjónustufólk droftningar-
innar, en auk þess ákveðinn fjöldi
visindamanna, iðjuhölda, fulltrúa
verkamannasambandanna, æðstu
menn hersins og um 250 útlendir
gestir. Þegar skráin hefir verið sam-
in sendir liertoginn af Norfolk boðs-
bréf öllum borgaralegum gestum, en
drottningin býður sjálf aðlinum.
En það er ekki eintóm ánægja að
vera boðinn, sérstaklega ef gestur-
inn er aðalsmaður. Þá verður hann
að vera kominn í Westminster Abbey
fyrir klukkan 8V2 krýningardaginn, í
skarlatsrauðri flauelsskikkju, brydd-
aðri með hermelínskinni, með kórónu
úr gylltu silfri og jaðri úr flaueli og
hermelín og gullskúf á.
Barónarnir verða að borga frá 75—
400 sterlingspund fyrir klæðnaðinn og
hertogar frá 100—500 pund, svo að
dýrt er gamanið. Gyllt silfurkóróna,
sem kostaði tíu pund fyrir stríð, kost-
ar nú 35 pund, og viðhafnarsverðið,
með fangamerki drottningar á hjölt-
unum kostar 15 pund.
Gömul stofnun í London, Baroque
Ltd. saumar krýningarskikkjurnar.
Tuttugu álnir enskar af flauoli fara
i hverja, og þær kosta 200—500 pund.
Baroque Ltd. seldi 45 kápur fyrir
krýninguna 1937, en selur aðeins
rúmar 20 núna. Hinar kápurnar koma
frá firmanu Moss Bros Ltd., sem hefir
keypt krýningarkópur, hirðklæði og
einkennisbúninga síðustu hundrað ár,
af fátækum aðalsmönnum og úr dán-
arbúum, og leigir fyrrverandi eigend-
um þeirra frá jiremur síðustu krýn-
ingum. Nýjar krýningarkápur kosta
4—10 sinnum meira nú en fyrir stríð.
En aðalsmenn geta leigt sér allan bún-
inginn fyrir 25 pund.
Krýningarkjól drottningarinnar fær
enginn óviðkomandi að sjá fyrr en
á krýningardaginn. En það hefir
frétst að kjóldragið verða 8 yards á
lengd og 500 hermelinskinn ásamt
650 rófum hafi farið í hlaðið á skikkj-
unni.
Krýningarvikuna liafa lögreglu-
spæjarar og vátryggjendur gegn þjófn-
aði nóg að hugsa. Kynstur af skart-
gripum og gimsteinum eru tekin fram
úr þjófheldu skápunum í bönkunum
og þjófarnir hugsa sér gott til glóðar-
innar. Krúnugimsteinarnir eru venju-
lega geymdir í Tower, en um krýn-
inguna eru þeir ýmist notaðir eða
hafðir til sýnis. Þetta eru alls um 75
skartgripir, þar á meðal stór smaragð,
sem Elísabet mikla notaði forðum, og
saltskál á tveggja feta háum stalli, úr
skíru gulli. St. Edwardskórónan, sem
er gerð eftir fyrirmyndinni er var
stolið 1689 er úr hreinu gulli. Þetta
er kórónan sem sett verður á höfuð
drottningarinnar í kirkjunni, en ekki
verður hún þar nema stutta stund
því að hún er of þung til þess. En
þá fær Elísabeth „The Imperial State
Crown“ í staðinn. Sú kóróna var gerð
handa Victoriu drottningu. Varla
getur liún verið fislétt, þvi að i henni
eru 2783 demantar, 277 perlur, 18 saf-
irar, 11 smaragðar og 5 rúbínar. Einn