Fálkinn


Fálkinn - 22.05.1953, Blaðsíða 13

Fálkinn - 22.05.1953, Blaðsíða 13
FÁLKINN 13 eíni don Richardos. Hann hafði kynnst hon- um uppi í fjöllum og komist að þeirri niður- stöðu að þarna væri loksins kominn heiðar- legur maður til að bjarga Sobrante. Líka hafði hann einhvern grun um, að Webster stæði ekki a'veg á sama um þessa byltingu, — því að hvers vegna hefði hann annars laumað don Richardo í land? Líklega sá Webster sér leik á 'borði að gerast hægri hönd nýja forsetans? Og af því að hann var sjálfur vinur og skjólstæðingur Websters gat hann gert sér von um að koma sér innundir hjá nýju stjórninni. Hann batt vélbátinn og fór inn í geymslu- húsið, en þar voru liðsmenn don Richardos ennþá. Hafði verið útbýtt rifflum og skot- færum til sjálfboðaliðanna, sem gáfu sig fram, og þeir voru að fægja byssurnar og draga gegnum þær. Byrst rödd stöðvaði hann og hann horfði beint inn í skammbyssuhlaup. — Hver eruð þér, og hvað eruð þér að-vilja hér? spurði maðurinn með skammbyssuna. — Eg er John J. Cafferty, óbreyttur liðs- maður og síðasti liðsauki í her don Richardos, svaraði don Juan frakkur. — Hver hélduð þér að ég væri? Einkaritari Sarros forseta, kannske? Burt með skammbyssuna yðar, því að það veit sá sem allt veit, að mér er nógu órótt samt. Hafið þér nokkuð sem ég get bar- ist með — eitthvað í lúkurnar? Maðurinn sem hafði stöðvað 'hann, langur, kampadökkur sláni frá mexikönsku landa- mærunum, virti hann fyrir sér tortrygginn. — Jæja, Cafferty, sagði hann. — Við höfum ekki fleiri riffla, en þér verðið að ná yður í einn, ffá fyrsta manninum sem fellur. En þangað til getið þér farið upp í dráttarvélina og haldið skotfæralengju upp að annarri vél- byssunni. Og don Juan brölti upp á dráttarvélina. Of- urlitið virki úr stáli hafði verið smíðað kring- um stýrimannssætið, með gati á til að kíkja út um. Að öðru leyti var hús úr stálplötum á dráttai’véiinni og tvær vélbyssur. Fimm—sex menn lágu á gólfinu og voru að stinga skot- hylkjum í beltin. Við hliðina á dráttarvélinni stóðu fjögur mótorhjól með hliðarvögnum af sérstakri gerð og vélbyssa í hverjum. Skot- færakassarnir voru á sex stórum hestvögnum. —Hvenær höldum við á stað? spurði don Juan einn stríðsfélaga sinn. — Eg hugsa að eftir áætluninni eigum við að bíða til klukkan fimm, svaraði maðurinn, sem talaði einstaklega vandað og fallegt mál. — Fyrir þann tíma verður allt það stjórnar- lið, sem án verður komist við höllina og voopnabúrið, komið í orrustuna sém núna stendur í vesturbænum. Stjórnarliðið mun ekki gruna að það verður gerð atlaga aftan að því og liklega verður það að láta undan síga til sinna fyrri stöðva. Það ætti að gera okkar FELUMYND Hvar er konan sem býr í þessu herbergi? hlutverk auðveldara og spara okkur mörg mannslíf. Don Juan fannst þetta með líkindum. Hann fór að stinga skothylkjum i beltin og raulaði írska vísu á meðan. Loks kom doktor Pacheco út úr geymsluhúsinu og skipaði að halda af stað. Deildin fór sér að engu óðslega. Sobran- tinsku uppreisnarmennirnir skipuðu sér á eftir dráttarvélinni, mótorhjólunum og skotfæra- vögnunum. Deildin fór götuna meðfram höfn- inni fram hjá fjórum þvergötum en sveigði svo upp í Calle de Concordia. Mamma Jenks stóð í portinu sínu og sá stríðsmennina koma. Hún vappaði út á götuna og rétti upp (höndina og sagði í skipunartón eins og umferðarlög- regla: — Stórskotasveit, stopp! Hún hafði heyrt Henry sáluga segja þetta og vissi hver á'hrif það hafði. Og þau sýndu sig líka. Deild- in snarstöðvaðist og allir horfðu forvitnir á Mömmu Jenks. — Hvernig líst deildinni á að fá nokkra kassa af brennivíni handa særðu mönnunum? spurði hún. — Og hvernig væri að hafa með sér gamla hermannsekkju, sem hjúkrunar- konu? — Heyr! hrópuðu hermennirnir og doktor Pacheco þakkaði henni með kastilanskri hátt- prýði fyrir þetta göfuga tilboð. Sex menn voru sendir til að sækja sex brennivínskassa, sem frú Jenks hafði borið inn í portið. Þeir voru settir á skotfæravagnana. Sjálf brölti hún upp á dráttarvélina, og nú var haldið .áí'ram sem skjótast. Hin óvænta koma þessarar liðsveitar hafði þau áhrif, sem Richardo hafði ætlast til. Venjulega höfðu fimm hundruð manns setu í vopnabúrinu, en við hina snögglegu árás í vesturbænum hafði komið fát á Sarros og hann hafði ekki fengið tíma til að gera áætl- un um varnirnar. Fyrst hafði honum dottið í hug að senda allt lið, sem hann mátti missa, til þess að hjálpa sveitinni, sem hafði orðið fyrir fyrstu atlögunni. Hann vissi ekki hvað uppreisnarmennirnir væru liðsterkir og taldi þetta ráðlegast. Þess vegna voru nú ekki nema hundrað manns eftir í vopnabúrinu. Og hann hafði aðeins haldið eftir úrvalsliðinu og einni sveit úr fimmtándu herdeild til að verja höllina. Stjórnandi útanbæjarsveitanna hafði feng- ið flýtisskipun í síma frá 'höllinni, og sendi nokkur ihundruð manns til að verjast atlög- unni í vesturbænum, en meginher hans bjó um sig á járnbrautarfyllingu, sem lá kringum hluta af bænum, og var gott til varnar þar. En ekki var herinn fyrr kominn þarna en upp- reisnarmenn gerðu snögga árás og hröktu framherjanna til baka. Rétt á eftir var don Richardo tilkynnt að vopnabúrið hefði verið tekið, og taldi hann þá að það erfiðasta væri afstaðið. Hann lét sína menn fara í skjól og þar lágu þeir og skutu hverir á aðra og eyddu kynstrum af,skotfærum án þess að árang- urinn yrði verulegur. Vopnabúrið var stórhýsi, með nýtísku fyrir- komulagi og veggirnir þykkir og úr stálbentri steypu, sem eflaust hefði getað staðist venju- lega fallbyssuhríð. I kring var þrjátíu feta hár grjótgarður og vélbyssuskotpallur á hverju horni. Innan á garðinum, í tuttugu og fimm feta hæð, var stallur, og þar' gátu hermenn staðið og skotið yfir garðbrúnina. Aðeins ein- ar inngöngudyr voru þarna og stálhurðir í. Hundrað manns hefðu átt að geta varið bygg- inguna, ef árás hefði ekki komið þeim að ó- vörum. Þetta var don Richardo ljóst, og af því að hann hafði ekki nógu stórar fallbyssur til að gera atlögu hafði hann hugsað sér að ná vöpnabúrinu með brögðum. Þegar sveitin frá Lebershúsunum nálgaðist vopnabúrið, hurfu þrír smáflokkar úr henni inn í hliðargöturnar og þaðan í göturnar sem lágu samhliða Calle de Concordia og héldu þar áfram. 1 broddi þessara smáfylkinga fóru mótorhjólin með vélbyssur, og stjórnuðu þeim hvítir menn. Á næstu götuhornum við vopna- búrið dreifðu iþessar smásveitir svo mönnum sínum, þannig að þeir gátu hindrað að menn frá höllinni gætu komið og hjálpað vopnabúrs- liðinu. Doktor Pacheco stýrði nú dráttarvélinni einni upp að hliði vopnabúrsins, en uppreisn- arherinn faldi sig í næstu húsum. Bílstjórinn á dráttarvélinni kallaði á spönsku til varð- mannsins fyrir innan hliðið að hann skyldi opna, því að hann hefði skipun frá forsetan- um um að saekja vélbyssu, sem ætti að setja ADAMSON Hæðnin hefnir sín.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.