Fálkinn - 22.05.1953, Side 6
6
FÁLKINN
------------------—.———.—---------------------------------i
Framhaldssaga eftir Harton Estes:
Úr dagbók lífsins
„Það verður alveg yndislegt," sagði
ungfrú Cranburn, sem virtist vera
klædd í eintómar útsöluflikur að
vanda. „Ef Guy flýtti sér nú bara
heim, þá gætuð þið haldið tvöfalt
brúðkaup.“
„Onei, það yrði nú ekkert af því.
Rod þyldi ekki þá taugaáreynslu, sem
hlytist af þeim veisluhöldum og við-
höfn, sem því fylgdi.“
„Jæja, þið skuluð nú draga ykkur
i hlé, stúlkur mínar. Þið hljótið að
hafa margt um að tala. Eg skal ljúka
við þetta.“
Inni i stofu sagði Fliss brosandi:
„Þó að við ræðum margt, þá tölum
við nú ekki eins saman og í gamla
daga.“
Það var satt. Þær voru engar skóla-
stelpur lengur. Þær voru liættar að
ræða öll persónuleg ævintýri og
leyndarmál sem sameign.
„Við höfum breytst mikið siðustu
árin,“ sagði Fliss. „Þú ert orðin
reynslunni rikari, en ég hefi setið og
beðið — og aldurinn færst yfir mig.
Mér finnst ég hafa elst um fimmtán
ár síðustu fimm árin. Eg vona, að út-
litið beri það ekki með sér.“
„Ellimörkin fara þér vel,“ sagði
Marcella og hló. „Þú hefir aldrei litið
betur út.“
Það stafar bara af því, hve ham-
ingjusöm ég er. Hvernig ætti líka
annað að vera. Eg liefi þig hjá mér
og Guy kemur heim von bráðar. Eg
vona, að hann komi ekki með franska,
þýska eða ástralska konu með sér.“
„Hann gerir það ekki,“ sagði Mar-
cella. „Hafðu engar áhyggjur út af
því.“
Hann vissi vel, hvað hann gat leyft
sér og Iivað ekki. Hann mundi ekki
ögra stjúpföður sínum. Ef liann gerði
eitthvað, sem mundi særa Fliss, eftir
alla þolinmæði hennar og trygglyndi,
mundi stjúpfaðir lians aldrei fyrirgefa
honum. Svo var Guy líka latur og
vildi lifa þægilegu lífi. Og stjúpfaðir
hans gat auðveldað honum lífsbar-
áttuna. Hann gat úthvegað honum
stöðu í bankanum eða við verslunina,
byggt yfir hann og látið honum eftir
álitlega fjárupphæð.
Auk þess þótti honum vænt um
Fliss. Honum hlaut að þykja það. Að
vísu hafði hann verið að eltast við
aðrar stúlkur, en hann hafði alltaf
komið aftur til Fliss. Auðvitað yrði
það eins núna. Hún tók honum eins
og hann var og gerði sér enga rellu út
af því. Hann gat fengið blessun stjúp-
föður síns og hjálp með Fliss. Og auk
þess þægilegt og skemmtilegt líf.
Hvers vegna ekki að taka því?
„Eg geri mér engar áhyggjur," sagði
Fliss. „Eg el aðeins óskir i brjósti.
Við skulum einsetja okkur að skapa
okkur skemmtilegt líf. Börnin okkar
geta leikið sér saman, eins og við Rod
gerðum, þegar við vorum litil.“
„Eg vona, að barn komist af stað^
hjá mér strax,“ sagði Marcella.
„Þú verður að eignast son,“ sagði
Fliss. „Hver veit, nema ég eignist svo
dóttur? Þau geta þá orðið ástfangin
af hvort öðru og gifst, þegar stundir
líða fram. Þau eru ekki blóðskyld.“
Einkennandi fyrir liana, að hún
skuli gera sig ánægða með dóttur,
hugsaði Marcella. Afar hafa meiri
mætur á strákum.
Þetta var af því, að þær voru vin-
konur, hún og Fliss. Lovat liafði allt-
af sagt, að vinátta milli kvenna væri
fjarstæða aðeins vopnahlé, sem
lyki, hvenær sem eitthvað bæri á
milli. Staðhæfingar hans höfðu oft
gert henni gramt í geði. Konur geta
tengst vináttuböndum, ef önnur fær
að vera fremri og hin lætur sér nægja
það hlutskipti að fylgja og taka það
næstbesta.
Þriðji kafli.
MORGUNPÓSTURINN færði Lovat
bréf frá Rodney, sem byrjaði svona:
„Kæri Lovat. Þetta verður vafalaust
mikið áfall fyrir l>ig.“
Og það var rneira en það. Hann
trúði ekki því, sem hann las.. Þau
tvö? Nei, það gæti aldrei blessast.
Hún mundi aldrei verða frænda lians
nema til armæðu og leiðinda.
Svo datt honum í hug, að ef til vill
væri þetta ekki rétt hjá honum. Pen-
ingarnir. Ef til vill gerðu þeir allan
gæfumuninn.
Hún liafði alltaf sagt, að hann væri
ekki glöggur á fólk, en fylgdi sleggju-
dómum sínum um það fastlega-eítir.
Hann væri of montinn og skapstór til
að breyta þeim. Jæja, honum var þá
að fara fram. Ef til vill var ýmislegt
það í fari Marcellu og Rods, sem hann
þekkti ekki nógu vel. Hann vonaði,
að hún yrði honum góð. Vafalaust
hafði hún ekki neitt illt í huga. Hún
var heiðarleg og hreinskilin. En blíðu
var hún spör á, enda ekki þannig
skapi farin, að mikils væri af henni
að vænta í þessum efnum.
Þau ætluðu að búa í húsinu með
gamla manninum. En hvernig mundi
þeim finnast að fá liann fyrir ná-
granna? Á það var ekki minnst í
bréfinu. Samt hlutu þau að liafa íhug-
að þá hlið málsins. Nú, ef henni stóð
„Karnevall“, kjötkveðjuhátíðin, er
hvarvetna mjög í heiðri liöfð í ka-
þólskum löndum. I Þýskalandi er
karneval haldið í vissum landshlut-
um, Rínarlöndum, Vestur- og Suður-
Þýskalandi. Þessi mynd er nú raunar
frá Berlín, en þar hefir karnevalsið-
urinn rutt sér til rúms eftir styrjöld-
ina. Sýnir hún, er „Prins Karneval“
gengur inn í danssalinn.
á sama, hvers vegna ætti hann þá
að setja það fyrir sig?
í mars komu óvænt nokkrir sólrik-
ir og mildir dagar. Hinn nítjánda
fluttist Lovat til Finfield. Hann ætl-
aði að njóta hvíldar og einveru í litla
húsinu, áður en liann færi að kenna
í september. Litla húsið var að mestu
óbreytt frá -því, sem áður var. Hinir
fáu og lítilfjörlegu húsmunir hans
tóku vel á móti honum. Ekkert minnti
liann sérstaklega á þann tíma, er
Marcella hafði búið með honum i
þessum íburðarlausu og litlu húsa-
kynnum. Honum fannst hann vera
kominn heim til sín.
Þarna var cin sæmilega stór stofa,
lítið svefnherbergi og ofurlitið eld-
Iiús. Hann og Rod höfðu smíðað bóka-
hillurnar í félagi, rekið saman stólana
og málað borðið, sem hægt var að
stækka og dragkistuna. Rod hafði
gróðursett trén og jurtirnar umhverf-
is húsið. Já, minningarnar um Rod
létu ekki á sér standa. En ímynd
Marcellu var ekki tengd neinum hlut
þarna.
Marcella gæti eklci spillt hinum
trausta grunni vináttu þeirra Rods.
IJann vonaði, að hún freistaði þess
ekki heldur. Henni stóð engin hætta af
þeirri vináttu. Hann hafði glatað öll-
um tilfinningum 1 hennar garð. Jafn-
vel gremjan og hatrið var horfið.
Stríðið hafði af-máð þær. Honum stóð
á sama um Marcellu, en honum þótti
vænt um frænda sinn.
Hann fór heim i stóra húsið um
kvöldið. Hann vænti þess ekki, að
honum yrði tekið þar tveim hönd-
um. Hvers vegna ætti hann líka að
vera þar aufúsugestur, eins og allt var
í potlinn búið? Hann taldi það hins
vegar rangt af sér að sneiða hjá ná-
grönnunum. Þess vegna reyndi liann
að láta sem ekkert væri. Og það gladdi
hann, er hann sá, að gamli maðurinn
var í góðu skipi' og virtist horfa björt-
um augum á framtíðina.
„Við látum skynsemina ráða,
Lovat,“ sagði liann. „Við förum ekki
að stofna til neinna árekstra. Mikið
BLÓMAHÁTÍÐ í HOLLANDI. — Á túlípanasvæðum Hollands, sem eru víða, hafa að undanförnu verið haldn-
ar blómahátíðir, sem hafa hver tekið annarri fram að fegurð og glæsileik. Hérna sjáið þið „ungfrú vor“
innan um blómaskrúðið á einni hátíðarsýningunni.