Fálkinn - 22.05.1953, Blaðsíða 9
FÁLKINN
9
— Hver var þessi maður og hvaða
heimild hafði hann til að haga sér
svona? Aldrei hafði hann kysst liana,
sagði Dolignan. Hann gat að visu
ekkert sannað en liann fann að eign-
arréttur lians liafði verið óvirtur.
Hann fór heim og dreymdi um ung-
frú Haythorn. Hann var iiálfan mán-
uð að reyna að komast að liver þessi
fagra mær væri — hann sá liana
hvergi. Loks heyrði liann frá henni:
Skrifari hjá málaflutningsmanni ein-
um í borginni heimsótti hann og til-
kynnti honum að mál yrði höfðað
gegn honum fyrir líkamsárás á ung-
frú Haythorn í járnbrautarkléfá.
Dolignan féll allur ketil) í eld og
hann reyndi að milda skrifarann,
sem skildi ekki fyllilega hvað á spýt-
unni hékk. En fyrir bragðið komst
upp hvert nafn ungfrúarinnar var og
heimilisfangið líka, svo að nú var
hægt að stíga næsta skref, og sama
dag stóð hin sundurkramda sögu-
hetja og beið við dyrnar hjá henni.
Hann gerði það sama marga næstu
daga, en árangurslaust.
En svo einn dag um nónið í mesta
blíðviðri kom hún út, alveg hispurs-
laust, eins og hún gerði þetta á hverj-
um degi, og gekk sér til hressingar
um Austurstrætið. Dolignan gerði al-
veg eins, mætti henni og gekk fram
hjá henni, en hún virtist livorki sjá
liann né þekkja hann aftur. Hún gekk
og gekk, ])angað til allir aðrir voru
orðnir þreyttir og farnir sína leið —
þá loks tók syndarinn til sinna'ráða,
tók ofan hattinn og bað hæfilega
skjálfraddaður um að mega fá að tala
nokkur orð við liana.
Hún nam staðar og roðnaði og gerði
hvorki að kannast við eða afneita
að þau liefðu sést áður. Hann roðnaði,
stamaði nokkur vel valin orð þess
efnis að hann væri sneyptur, að hann
ætti refsingu skilið og að sér fyndist
hann þegar liafa þolað mikla refsingu,
að hún vissi ekki hve harmþrunginn
hann væri — og svo lauk hann máli
sinu með því að biðja hana um að
opinbera ekki öllum þjóðum heims
þessa ávirðingu. Honum væri sú
hegning næg að hafa komið sér út
úr húsi 'hjá iienni.
Hún bað um skýringu á þessu og þá
minnti hann hana á málssóknina, sem
hafin væri gegn sér i hennar eigin
nafni. Hún yppti öxlum og sagði: —
Skelfing cru þeir vitlausir. Við þetta
óx honum hugur og liann leyfði sér
að spyrja, hvort það mundi geta af-
máð endurminninguna um fólsku
hans og fásinnu, að hann lifði nokkur
ár fjarri henni og liugsaði fallega til
hennar.
— Hún sagðist ekki geta svarað þvi!
Og nú yrði hún að kveðja hann því
að hún ætlaði á dansleik i Crescent
um kvöldið.
Þau skildu og Dolignan afréð að
fara á dansleikinn, þvi að þangað fóru
allir. Hann var þar og nokkru síðar
var liann kynntur ungfrú Haythorn
og hann dansaði við hana. Hún var
náðug við hann. Hún kunni sem sé
heldra fólks siði. Og liinn eiginlegi
kunningsskapur þeirra hófst þetta
kvöld.
Þá varð Dolignan ástfanginn í
fyrsta skipti. Eg skal hlifa lesandan-
um við öllum þeim vélabrögðum sem
ástfangnir menn beita, en liann hafði
lag á að borða miðdegisverð á sama
stað og hún gerði, dansa þar sem hún
dansaði, og hann hitti hana af tilvilj-
un þegar liún fór í útreið. Svo mikil
var einlægni hans að liann elti hana
í kirkju, og þar varð riddarinn þess
visari að til er heimur, sem hvorki
reykir eða drekkúr — en það eru
tvær höfuðsyndir þessa táradals.
Hann kynntist frænda liennar, sem
féll vel við liann, og liann var farinn
að taka eftir því að hún hafði oft
augun á honum þegar hún liélt að
enginn tæki eftir því. Það var þrem-
ur mánuðum eftir jarðgöngin sem
Dolignan kom í heimsókn til Hayt-
horn flotaforingja, sem liann hafði
liitt tvisvar áður á ævi sinni, og sem
hann hafði mildað með því að hlusta
með athygli er flotaforinginn var að
segja frá mikilli hættuför, sem hann
hefði farið einu sinni. í þessari þeim-
sókn bað hann um leyfi til að mega
bjóða ungfrúnni út með sér við tæki-
færi.
Hinn aldni sæfari varð byrstur,
eins og hann væri kominn upp á
stjórnpall, en þá barst honum ein-
hver dularfull orðsending um að
koma inn í næstu stofu. Þegar hann
kom aftur var alveg ný rödd komin
í barkann á honum og hann sagði:
— Það er allt í lagi, þér skuluð liafa
það eins og yður sýnist! — Lesand-
inn rennur kannske grun í merg máls-
ins, en hann var sá að sækonungur-
inn var alveg i vasanum á dóttur
sinni, söguhetjunni!
Þegar Dolignan kvaddi sá hann
gyðju sina gánga inn í stofuna. Hann
fór á eftir, og sá að hún varð vand-
ræðaleg — hún reyndi að brosa en í
staðinn fór hún að gráta, og svo brosti
hún aftur. Þegar hann kyssti liöndina
á henni við dyrnar sögðu þau „Georg“
og „Marian“ i staðinn fyrir höfuðs-
maður“ og „ungfrú".
•Nokkru síðar (saga mín fellir nið-
ur öll formsatriði og málalengingar)
voru þau aftur saman í járnbraut,
þessi tvö, þau voru barmafull af ham-
ingju og ætluðu í brúðkaupsfer^.
Marian Dolignan var í sömu ferða-
fötunum sem i fyrra skiptið, en nú
sat Georg við hliðina á henni.
— Marian, sagði hann, — gift fólk
á að segja hvort öðru frá öllum sínum
leyndarmálum. Og nú ætla ég að
segja þér nokkuð.
— Já, gerðu það, Georg.
— Þú manst jarðgöngin. (Þetta var
i fyrsta sinn sem hann minntist á
þau). Eg skammast mín fyrir að verða
að segja það — en ég hafði veðjað
þremur pundum gegn tíu við White,
um að ég skyldi kyssa aðra hvora
ykkar.
— Eg veit það, Georg, ég lieyrði
ykkur vera að pískra um það.
— Heyrðirðu það? Það er ómögu-
legt!
—Tókstu ekki eftir að við vorum
líka að hvísla, hún vinkona mín og
ég? Eg veðjaði við hana.
— Veðjaðir þú? Og hvað veðjuðuð
þið um?
— Við veðjuðum einum hönskum.
— Já, en um hvað?
— Eg veðjaði um að ef þú kysstir
mig þá skyldir þú verða maðurinn
minn!
— Þá var ástæðulaust af þér að
reiðast mér. Og þú sem sigaðir mála-
flutningsmanninum á mig!
Frú Doiignan varð niðurlút. — Eg
var svo hrædd um að þú mundir
gleyma mér. — Georg, geturðu fyrir-
gefið mér?
— Þú ert engill! .... Og hérna
koma jarðgöngin!
Nei, lesandi góður. Svei! Ekkert svo-
leiðis. Þið munið að þetta var gift
og ráðsett fólk. Það var ekkert óp til
þess að reyna að yfirgnæfa eimblistr-
una.
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason, prentara.
Nýtt tungl 13. maí 1953.
Alþjóðayfirlit.
Bendir á áframhaldandi örðugleika
í alþjóðaviðskiptum, óheilindi og
tafir eru mjög áberandi, taugastriðið
hejdur áfram og tortryggnin er mjög
áberandi því afstöðurnar eru ótrygg-
ar. Megnið af afstöðunum eru slæm-
ar, þó er þrítalan tvöföld, sem bendir
á andlega viðleitni. Hugræna talan
er einnig tvöföld, sem bendir á aukna
athugun og gagnrýnandi áhuga. En út-
komutalan er slæm og bendir á örð-
ugleika þá sem eru í utanrikisviðskipt-
um og styrkir þá aðstöðu.
Lundúnir. — Nýja tunglið er í 12.
húsi. Góðgerðarstarfsemi, betrunar-
hús, spítalar og vinnuhæli og aðstaða
þeirra undir áberandi áhrifum og
veitt atliygli. — Mars i 1. liúsi. Slæm
áhrif á almenning, áróður mikill rek-
inn, íkveikjur gætu átt sér stað og
baráttuhneigð rík. — Satúrn og Nep-
tún í 6. húsi. Slæm afstaða fyrir verlca-
lýðinn og almenning, heilbrigði slæmt,
urgur og óánægja kemur í ljós, einnig
i sjóhernum. Eiturnautnir aukast. —
Úran í 3. húsi. Slæm áhrif á samgöng-
ur og flutninga. Eldur eða sprenging
i ftutningatæki eða opinberri bygg-
ingu i þeim starfsgreinum.
Berlín. — Nýja.tunglið í 12. lhisi.
Betrunarhús, sjúkrahús, vinnuhæli og
góðgerðarstarfsemi undir áberandi á-
hrifum og veitt veruleg athygli.
Júpíter og Mars í húsi þessu. Eru af-
stöðurnar ekki góðar og mætti því
húast við örðugleikum nokkrum i
þeim strafsgreinum. Saknæmir verkn-
aðir gæti komið í dagsins ljós. Úran
í 2. húsi. — Athugaverð afstaða fyrir
bankastarfsemina, óvæntir örðugleik-
ar koma i ljós í fjárliagsmálunum og
tekjur munu minnka. — Satúrn og
Neptún í 5. liúsi. Leiklist, leikhús og"
leikarar undir athugaverðum áhrifum,
tafir og baktjaldamakk mun koma i
ljós. Plútó i 4. liúsi. Saknæmir verkn-
aðir koma í Ijós í landbúnaðinum og
áróður gegn ríkisstjórninni.
Móskóva. — Nýja tunglið í 12. lhisi,
ásamt Mars og Júpíter. Er þetta í
ýmsu falli slæm afstaða og mætti bú-
ast við að ýmislegt kæmi upp úr kaf-
inu í sambandi við vinnuhæli og
rekstur þeirra sem nú er hulið al-
menningi. — Úran í 1. húsi. Óánægja
meðal almennings, mótþrói gegn vald-
höfum, saknæmir verknaðir, ikveikj-
ur og spi'engingar og jafnvel dauðs-
föll af þeim ástæðum. — Satúrn og
Neptún í 5. húsi. Slæm afstaða fyrir
leikliús og rekstur þeirra, leikara og
leiklist. Tafir og bakmakk reliið í
þcim greinum. — Venus í 11. húsi.
Hefir allar afstöður slæmar. Örðug-
leikar koma i ljós innan æðsta róðs-
ins, sem eiga rætur sínar að mörgum
leiðum.
Tókíó. — Nýja tunglið er i 9. Jiúsi.
Utanrikissiglingar og verslun er mjög
á dagskrá og veitt mikil athygli. Örð-
ugleikar nokkrir koma til greina, sem
koma frá fjárhagsafkomunni og
bankarekstri, þó gæti stjórnin ef til
vill lagfært eittlivað. — Úran i 10.
'húsi. Þetta er slæm afstaða fyrir
stjórnina og hugsast gæti að hún færi
frá eða hreyting yrði gerð á henni.
— Satúrn og Neptún í 2. liúsi. Slæm
áhrif á bankastarfsemina, peninga og
verðbréfaverslun yfir höfuð. Tafir og
spellvirki koma í ljós. Venus í 8. liúsi.
Áberandi dauðsföll meðal háttsettra
kvenna og listamanna.
Washington. — Nýja tunglið í 4.
húsi. Líklegt að andstaðan gegn
stjórninni færist í aukana og að liún
missi álit. Ætti að vera sæmileg af-
staða fyrir landeigendur og búrekstur.
Mál þessi munu mjög á dagskrá. Jarð-
skjálfti gæti átt sér stað á þessari
lengdarlínu. — Úran í 6. húsi. Urgur
á meðal verkamanna og verlvföll og
uppivaðsla gegn ráðendum, spreng-
ingar gætu átt sér stað. Heilbrigði
atliugaverð. — Satúrn og Neptún i 9.
húsi. Mjög slæin afstaða til utanrikis-
siglanga og viðskipta. Tafir og sak-
næmir verknaðir koma í ljós í þeim
greinum. — Venus i 2. húsi. Hefir
allar afstöður slæmar. Dregur úr
fjárhreyfingum og tekjur munu
minnka og útgjöld vaxa að mun. —
Merkúr í 3. húsi. Fréttaflutningur,
samgöngur, útgáfa blaða og bóka und-
ir góðum áhrifum og nýjar aðferðir
geta komið til greina í þeim starfs-
greinum.
í s 1 a n d .
12. hús. — Nýja tunglið i því Jiúsi.
Vinnuhæli, góðgerðastarfsemi, betr-
unarhús og sjúkraliús mjög á dag-
skrá og veitt athygli. Koma margvís-
leg áhrif til greina i þeim efnum og
sum athugaverð.
1. hús. — Merkúr ræður liúsi þessu.
— Heildaráhrifin ættu að vera sæmi-
leg í mörgum greinum, jafnvel þó
að þau séu fremur veik, einkum út
á við. Umræður miklar um ýms atriði
og blaðadeilur áberandi.
2. hús. — Merkúr ræður húsi þessu.
— Umræður miklar um fjárhagsmál-
in og blaðaskrif mikil um þau. Fjár-
hreyfingar veikar og óábyggilegar.
3. hús. — Tungl ræður liúsi þessu.
— Flutningur og samgöngur ættu að
vera sæmilegar og þó háðar nokkrum
breytingum. Útgáfa blaða og bóka
sæmileg, en þó eru áhrifin fremur
dreifandi.
4. hús. — Úran er i húsi þessu. —
þetta er ekki lieppileg afstaða fyrir
bændur og stjórnin verður fyrir al-
varlegum aðköstum. Sprenging gæti
komið í opinberri byggingu.
5. hús. — Tungl ræður húsi þessu.
— Áhrifin munu ekki verulega áber-
andi og þvi mun deyfð i framkvæmd-
um koma í ljós. Tafir vegna flutninga
gætu átt sér stað.
6. hús. — Satúrn, Neptún og Plútó
í húsi þessu. — Heilbrigði athugaverð
og vissara að fara gætilega og forðast
kælingu. Aðstaða verkamanna ekki
góð. Óvænt atvik gætu komið til
greina sem vektu athygli.
7. hús. — Júpiter ræður húsi þessu.
— Þetta er sæmilega góð afstaða fyrir
utanríkismálin. Þau munu þó ef til
vill undir nokkurrri gagnrýni og bar-
átta mun koma i ljós i sambandi við
þau.
8. hús. — Júpiter ræður liúsi þessu.
— Rlkið gæti eignast fé að erfðum eða
vegna fráfalls embættismanns eða
prests.
9. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
Órðugleikar i sambandi við utan-
landssiglingar og viðskipti. Verlcfall
gæti átt sér stað.
10. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— Mjög örðug afstaða fyrir stjórnina.
Hún á í vök að verjast og mun tapa
fylgi og tafir á vegi hennar.
11. hús. — Satúrn ræður liúsi þessu.
— Hætta á hindrunum í meðferð þing-
mála og áróður gegn stjórninni og
fráfall þingmanns gæti átt sér stað.
Áhrifin koma úr ýmsum áttum.
Ritað 7. maí 1953.