Fálkinn - 22.05.1953, Síða 10
10
FÁLKINN
Hróar og Helgi
Framhaldsmyndasaga
fyrir unglinga.
17. En konungurinn ógnaði spákon-
unni svo að hún þorði ekki að þegja,
og nú sagði hún: „Eg get nefnt ])ér
tvo sem liata þig. Þeir eru Hróar og
Helgi. Þeir vilja hefna föður síns.“
Og svo hrópaði hún: Hamur og Rani
verða þinn bani og brenna þig inni!“
— Þegar Hróar og Helgi lieyrðu þessi
orð tókust þeir í hendur og hlupu út
úr höllinni. Reginn fóstri þeirra hafði
þekkt þá aftur. Hann 'flýtti sér að
slökkva öll ljós, svo að drengirnir
skyldu komast undan í myrkrinu.
Þegar kveikt hafði verið aftur voru
drengirnir komnir eitthvað út í busk-
ann. Engan langaði til að elta þá, því
að flestir í liöllinni voru á þeirra
bandi. „Nú munaði minnstu að ég
nœði í þá,“ sagði konungur, „en nú
munum við setjast að drykkju, því aS
nálta tekur.“ Og svo hófst veislan
aftur.
18. Reginn og ýmsir vinir Hálfdans
konungs gengu á miíli og báru öl á
borð. En ekki drukku þeir sjálfir. En
menn Fróða konungs druk'ku uns þeir
sofnuðu. Sjálfur fór konungurinn að
hátta.
En drengirnir sátu úti í skógi. Um
miðja nótt sáu þeir mann koma ríð-
andi. ÞaS var Reginn. Hann lét sem
liann þekkti þá ekki. Undir eins og
hann sá þá sneri liann hestinum og
reið heim á bæinn án þess að segja
eitt einasta orð. Drengirnir botnuðu
ekkert i þessu undarlega háttalagi.
En meðan þeir voru að tala um hvað
gera skyldi kom Reginn aftur. Nú var
hann reiðilegur og ógnaði þeim og
lét sem hann vildi berja þá.
garðurinn
okkar
Gleymið ekki grænkálinu.
Grænkál getur þrifist á hverju
byggðu bóli á íslandi. Það þolir frost
betur en aðrar káltegundir og er nær-
ingarmeira og auðugra af C-fjörefni
en annað kál og þolir auk þess nag
kálmaðka mun betur. Ennþá vita of
fáir hvilik kostajurt grænkálið er. Það
er jafnvel næringarmeira en kartöfl-
ur og ætti að rækta það i hvers manns
garði. Hin fallegu, venjulegu hrokknu
blöð grænkálsins eru holl og ljúffeng
bæði hrá og soðin. Krakkar verða
fljótt sólgin í hrá grænkálsblöð, líkt
og í hráar rófur. Þau finna á sér holl-
ustu þess. Grænkál vex vel í allri
gróðurmold. Hægt er að fá það til
matar mestan hluta sumarsins.
Þroskamest verður grænkálið ef sáð
er til þess inni eða i sólreit og jurt-
irnar siðan gróðursettar í garðinn
þegar tíð er orðin góð. Grænkáls-
jurtir fást líka keyptar til gróður-
setningar hér í Reykjavík og víðar.
Ef fræinu er dreifsáð i beð í garðinum,
er komin þétt breiða af grænu blöð-
um sjö eða átta vikum eftir sáningu
— og má þá fara að skera blöð af til
matar. Til síðari reynslu má sá til
þess í raðir með um 50 cm. millibili
milli raða og 25—30 cm. milli jurtanna
í röð hverri.
Berið vel í garðinn. Einkum þarf
kálið mikið af kalí og köfnunarefnis-
áburði. Áburðarlögur hleypir vexti í
það. Tinið fyrst af kálinu neðstu
blöðin til daglegrar notkunar. Getur
]>að þá samt haldið áfram að vaxa
fram á vetur. Munið að grænkálið er
bæði næringarmest og harðgerast
allra káltegunda. Borðað hrátt eða
haft í súpu, jafning eða stöppu. Ágætt
með kjöti og fiski. Ljúffengt saxað
hrátt út í skyr og einnig sem salat.
Ræktið grænkál.
Ingólfur Davíðsson.
Sáið til silfurblöðku.
Silfurblaðka (Sölvbede) þrífst vel
í görðum hér á landi og er góð til
matar. En of fáir þekkja liana enn-
þá. Silfurblaðkan er allstórvaxin.
BlaSleggirnir eru Iivitir á lit, langir
og breiðir. Bæði leggirnir og aðal-
strengir blaðanna eru ljúffengir í
súpu, jafning, ídýfu o. fl. Ungu blöðin
eru matreidd sem salat eða spínat.
Silfurblaðkan vex vel i frjórri, frem-
ur rakri garðmold. Þarf mikinn köfn-
unarefnisáburð líkt og kál. Er best að
bera hana á i tvennu eða þrennu
lagi. Fræið er stórt, likt og spínatfræ.
19. „Eg held hann vilji að við för-
um með honum,“ sagði Helgi, „kom
þú, við skulum reyna.“ Þegar Reginn
sneri hestinum sinum aftur hlupu
drengirnir á eftir honum. Skömmu
siðar sagði Helgi: „Reginn vill ekki
tala neitt við okkur, því að ef hann
gerði það þá ryfi hann eið sinn við
Fróða konung. En hann reynir að
hjálpa okkur samt.“
Skógur var kringum liöll Fróða.
Þegar þeir komu þangað nam Reginn
Því er sáð í raðir, um 50 gr. fræs í
100 m. röð. Síðar er grisjað. Hæfilegt
er um 30 cm. milli raða og 20 cm.
milli jurta í röð hverri. Má oft nota
jurtirnar sem teknar eru burt við
grisjunina. Blaðleggirnir verða stórir
og góðir í ágúst til september og eru
þá teknir af jafnóðum niður við rót.
Silfurblöðkur þola dálitið frost. Þær
gcta tekið við af spinatinu þegar lið-
ur á sumarið og staðið fram á haust.
Aukið fjölbreytnina í matjurtarrækt-
inni. Reynið silfurblöðkuna i sumar.
Ingólfur Davíðsson.
staðar. Hann lét sem hann væri að
tala við sjálfan sig. „Ef ég vildi gera
FróSa konungi illt, mundi ég bera
eld að trjánum þarna,“ sagði hann.
„Hann meinar víst að við eigum að
kveikja i skóginum og höllinni,"
sagði Helgi. „Hvað stoðar það, við
erum hér aðeins tveir sveinstaular en
fjöldi af berserkjum inni,“ sagði Hró-
ar. „Við skulum nú reyna samt,“ svar-
aði Helgi, „tinii er til kominn að við
hefnum föður okkar. Við getum haft
opna leið fyrir vini okkar.“
Vilið þér...?
að amerískir ferðamenn eyddu er-
lendis samtals 733 milljónum dollara
árið 1951?
— Biddu við — það er ekki komið
á krókinn ennþá!
Hefnd bjarnarfeldarins við rúm-
stokkinn.
Rakarasveinninn kom of seint i
vinnuna og meistarinn vitti hann og
sþurði um ástæðuna.^
— Eg var að raka mig, og áður en
ég vissi af hafði ég talið sjálfan mig
á að taka klippingu og hárþvott um
leið.
LEIÐRÉTTING
við greinina Nokkur sumarblóm (i 1.
maí blaðinu): Á eftir maríngull konii:
BrúSarskál (Venidium) er allhávax-
in jurt með mjög skrautlega, ihvolfa,
rauðgula og svartgljáandi körfu með
dökkpurpuralitan liring. Kjólkróna
les hjólkróna, Linnsu, les Linum.
Ilmbaunir — Lathyrus.