Fálkinn - 15.03.1957, Síða 6
6
FÁLKINN
Tyrkland
Tyrkland er á stærð við Noreg og
Svíþjóð samanlagt, 770.000 ferkm. —
og 'liefir um 19 milljón íbúa. Aðeins
24.000 ferkm. landsins ern vestan
Bosporus — í Evrópu, en liitt i Ásíu.
Langflestir íbúarnir eru Tyrkir. Næst
landmærunum að íran og írak búa
fast að því ein milljón Kúrdar, en
auk þeirra er slæðingur af Armenum
og Grikkjum. Flestum Armenum i
landinu var útrýmt i fyrri heirns-
styrjöldinni, og eftir 1920 urðu 1.5
miiljón Grikkir að flýja land. Lang-
flestir landsbúar eru Múhameðssinn-
ar, en ríki og kirkja eru aðskilin.
Um tveir þriðjungar landsbúa lifa
aí' jarðyrkju. Landið getur framfleitt
nægilegt af korni handa þjóðinni, en
þó eru mikil landsvæði óræktuð.
Helstu korntegundirnar eru hveiti og
bygg. Ennfremur er ræktað tóbak,
mórberjatré, suðræn aldin og bómull.
Búpening liafa Tyrkir mikinn, og fer
honum fjölgandi. Árið 1945 voru i
Tyrklandi milljón hestar, 10 miltjón
nautgripir, 23 milljón kindur og 12
milljón geitur. Aðal útflutningsvörur
landbúnaðarins eru tóbak, heslihnet-
ur, rúsínur, fíkjur, ull og bómull.
AlJmikið af málmum er til i Tyrk-
landi, en lítt liafa þeir verið unnir
t'd þessa, og iðnaður er litill þar enn.
Kolaframleiðslan hefir nálega fer-
faldast á síðustu 20 árum og er nú
nær 4 milljón smálestir. Járn- og stál-
vinnsla er á byrjunarstigi, og fram-
leiðslan um 200.000 smál. á ári. Tyrk-
land framleiðir um fimmtung alls
króms, sem framleitt er í heiminum,
en það er mikilsvert efni í hergagna-
iðnaðinum. Á fyrstu stríðsárunum fór
verulegur hluti þess til Þýskalands.
Einnig er unnið blý, zink og kopar.
í Tyrklandi eru skógar miklir og
á ríkið mest af þeim. Járnbrautirnar
eru um 7000 km. á lengd, en eru óð-
um að lengjast. Akvegirnir eru litlir
og lélegir.
Tyrkland nútímans hefir risið á
rústum gamla Tyrkjaveldisins eftir
lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Tyrk-
land missti þá öll lönd sín utan
Þrakíu og Litlu-Asíu og virtist mundu
iiðast sundur. En 1920 myndaði
Mustafa Kemal fyrstu stjórn sina í
Ankara og tókst að sameina þau lönd,
scm byggð voru óblönduðum Tyrkj-
um. Siðdn gersigraði hann Grikki i
Litlu-Asiu og skömmu siðar hröklað-
ist siðasti Tyrkjasoldán frá völdum,
en Tyrkland varð lýðveldi og Must-
afa Kemal forseti þess, 1922. Ankara
varð liöfuðborg ríkisins.
í orði kveðnu er Tyrkland lýðveldi
með þjóðkjörnu þingi, sem velur for-
setann. En í raun réttri er forsetinn
einvaldur, og flokkur hans, lýðveldis-
fiokkurinn, var til 194(5 eini flokkur-
inn, sem Jeyfður var í landinu. Kem-
al kom ótrúlega miklum framförum
á í landinu. Hann braut á bak aftur
vald kirkjunnar, gerði stóreignirnar
upptækar og skipti landinu milli
bænda. Skógar og namur urðu ríkis-
eign. Iðnaður sá, sem er að myndast,
er ýmist ríkisfyrirtæki eða undir
eftirliti ríkisins. Kemal dó 1938 og
varð Inönn ráðherra, samverkamaður
hans, þá forseti. Nýi forsetinn gerði
■hermálasamning við Breta og Frakka
1939, en tókst samt að halda Tyrk-
landi utan við ófriðinn þangað til
Þjóðverjar liöfðu verið reknir af
Balkanskaga. Árið 1940 var eins-
flokks-fyrirkomulagið afnumið að
nafninu til, og við næstu kosningar
fékk andstöðuflokkur stjórnarinnar
um 10% af þingfulltrúunum. En i
raun réttri ræður lýðveldisflokkurinn
öllu. Þar bryddir hins vegar á nokkr-
um klofningi.
Fyrir síðustu heimsstyrjöld var
gott samkomulag milli Tyrkja og
Rússa, en síðan hefir það versnað.
Sovét-samveldið krefst hlutdeildar í
hernaðarlegu eftirliti Dardanella-
sunds inn í Svartahaf, og vill enn-
freniur fá aftur landsvæði við
Iíákasuslandamærin, sem Tyrkir tóku
er byltingin var i Rússlandi. Vegna
þessa ósamkomulags hafa Tyrkir liaft
her sinn viðbúinn síðan stríðinu Jauk.
Brctar og Bandaríkjamenn styðja
Tyrlri gegn Rússum, og nýlega fékk
Tyrkland 100 milljón dollara hjá
Bandaríkjunum til hervarna. Tyrkir
verja svo miklu fé til þeirra, að fjár-
hagur þeirra er erfiður, og nauðsyn-
legar framkvæmdir hafa orðið að
sitja á hakanum hjá þeim.
HEFIRÐU HEYRT —?
að árið 1955 fórust 38.000 manns af
umfcrðarslysum í Bandaríkjunum.
Það er 2000 fleira en árið áður og
yfir 2500 fleira en allir Banda-
ríkjamennirnir, sem fórust í Kór-
eu-stríðinu.
að skipasmíðastöðvarnar í Bretlandi
hafa samninga um skipasmiðar
fyrir næstu þrjú árin, og geta ekki
afgreitt nýjar pantanir fyrr en eft-
ir þann tíma. Sumar stöðvarnar,
sem smíða eingöngu tankskip, hafa
nóg verkefni til 1961.
að í Finnmerknrfylki í Noregi er
Jireindýrastofninn kringum 100.000
dýr. Eru þau talin 19.4 milljón
króna virði.
að mannshjartað dælir kringum 11
þúsund lítrum af blóði út í líkam-
ann á hverjum sólarhring.
að kanadisku Avro-flugvélasmiðjurn-
ar í Montreal eru að smíða flug-
vél, sem á að komast milli London
og Montreal á 2% tíma.
að ferðamannakomur til Noregs hafa
aukist um 260 prósent siðan árið
fyrir siðari heimsstyrjöldina.
að áætlað er að mannfjöldinn í
Bandaríkjunum vaxi um 55 mill-
jónir á næstu tuttugu árum.
KISA f ÆVINTÝRI, — Þessi kisa
hefir lent í ævintýri. Járnbrautar-
þjónar fundu hana í .,harmoníkunni“
milli tveggja brautarvagna í rafknúnu
lestinni milli London og Chelmsford.
Það varð sannað, að hún hafði verið
þarna í þrjá daga, svo að furðulegt
má heita að hún skyldi ekki merjast
til bana eða drepast af rafstraumi. —
Kattargreyið var löðrandi í felti og
olíu, en eftir vandlegan þvott og góða
aðhlynningu náði hann sér aftur.
BALLETTSKÓR PAVLOVU. — f til-
efni af því að 25 ár eru liðin síðan
hin heimsfræga dís dansins, Anna
Pavlova dó, hefir minningarsýning
verið haldin í London. —• Hér sjást
tvær dansmeyjar skoða skó, sem
I’avlova dansaði á, en mynd af henni
sést á bak við.
BILL IIALEY í LONDON. — Iíock ’n roll kóngurinn Bilt Haley hefir að undanförnu sett London á annan
endann. Dansandi hópar unglinga hafa gert lögregluþjónunum lífið grátt, og fullorðna fólkið er farið að
vagga sér eftir hljóðfalli hljómsveitarinnar líka. Myndin er af hinni víðkunnu hljómsveit Bill Haleys.
MEINLEG ÖRLÖG. — Eini kvenþátt-
takandi Indlands í Olympíuleikjunum,
spretthlauparinn Leela Rae, fór „illa
út úr því“. í fyrstu undanrásinni datt
hún er hún hafði hlaupið 20 metra,
og Rauðakrossliðið varð að bera hana
á burt.