Fálkinn - 15.03.1957, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
0
stan í fyrrasumar.
Ava Qnrdner í Pnkistnn
Lék með Stewart Granger.
Sxlar-Björn og Jsveinn skotti
Siðustu 10 árin liafa amerísk kvik-
myndafélög tekið f jölda dýrra og
stórra kvikmynda i fjarlægum heims-
álfum. Einkum hefir Metro-Goldwyn-
Mayer gert mikið að jjessu, og mað-
urinn sem stjórnar ferðalögunum og
liýr allt i haginn heitir Samuel
Göldsmitli. En ekki skiptir hánn sér
neitt af leikstjórninni. Síðustu 4 árin
hefir Goldsmith ferðast um 300.000
km. fljúgandi, akandi eða riðandi fil
eða úlfalda, til þess að undirbúa þess-
ar farir. Og árangurinn er góður.
Myndir eins og „Mogambo" og „Nám-
ur Salómons“ sem teknar voru í Af-
riku, vöktu mikla athygli, sömuleiðis
„Quo Vadis?“ (tekin i Róm) og
„Rim“ Kiplings, öll tekin í Indlandi.
í Pakistan hefir nýlega verið tekin
mynd sem heitir „Bhowani Junction"
eftir mikið lesinni sögu Johns Master.
Myndin segir frá kynblendingskonu,
sem á i sálarstríði, en er um leið
lýsing á sköpun nýrrar þjóðar. Ava
Gardncr og Stewart Granger voru
valin í aðalhlutverkin; þau höfðu
ieikið i Afrikumyndunum áður. Leik-
endurriir voru sendir flugleiðis til
Pakistan, en útbúnaðurinn allur var
fjórir skipsfarmar, ]). á. m. 24 hús,
sem hægt var að setja saman á einum
klukkutíma. Þau voru handa leik-
endunum og öðru starfsfólki, því að
hvergi var liægt að fá leigt húsnæði.
Af öðrum útbúnaði má nefna 130.000
pappadiska og bolla, 137 vagna og
margar smálestir af nöglum, því að
lítið er um nagla i Pakistan.
Landið varð sjáifsiætt riki 1947
eftir viðskilnaðinn frá Indlandi og
Bretlandi, og var amerísku gestunum
tekið mjög vel. Leikstjórinn bað um
að fá léða járnbrautarstöð til að leika
nokkur atriði, og virtist vandkvæði
á því, vegna þess að litið næði yrði
að kvikmynda, vegna umferðarinnar
og forvitinna áliorfenda. En Mo-
hammed Ali forsætisráðherra kunni
ráð. Hann lét allar lestir fara fram-
hjá járnbrautarstöðinni í Lahore!
Svo að George Cukor leikstjóri gat
kvikmyndað í næði, eins lengi og
hann vildi. Landslýðurinn möglaði
ckki — orð forsætisráðherrans eru
lög i Pakistan.
En svo kom það á daginn að erfitt
var að ljósmynda á stöðinni vegna
þess hve lágt var undir loft. Hann
hafði orð á þvi — og daginn el'tir
kom hópur af smiðum og tóku þakið
af stöðinni!
Aðeins einu sinni varð leikstjórinn
að liætta myndatökunni. Það var
þegar Hussein Jórdanskonungur kom
í heimsókn til Pakistan, fyrirvaralít-
ið. Þá varð að skreyta brautarstöðina
— þaklgusa, og hengja upp flögg.
Samucl Goldsmith varð góðvinur
forsætisráðherrans, sem bauð honum
i veisluna, þegar hann var að giftast
konu nr. 2 (hann má eiga fjórar).
Goldsmith gat ekki afþakkað boðið,
þó að ferðin í brúðkaupið væri 400
km. löng. Ráðherrann giftist sem sé
á óðalssetri sinu.
Mohammed Ali vildi allt fyrir
Amerikumennina gera. Þegar George
Cukor bað hann um að lána sér 250
hermenn í eitt leikatriðið, scndi hann
500. í annað skipti bað hann um 50
lögregluþjóna til að bægja umferð frá
ákveðnum götum i Lahore, en Ali
sendi hundrað.
Eitt veigamesta atriðið í „Bhowani
Junction“ er brúðkaup, haldið að ind-
verskum sið. Faðir brúðarinnar sér
um brúðkaupið, og brúðguminn hefir
aidrei séð brúðina, vegna þess að hún
liefir gengið með andlitið hjúpað síð
an hún varð 12 ára. Brúðguminn fær
ekki að sjá hana fyrr en þegar hún
stendur frammi fyrir spegli heima
hjá foreldrum sinum á giftingardag-
inn, og sviptir af sér slæðunni. En þó
er ekki svo að skilja, að þau Ava og
Stewart sjáist ekki þarna í ástarleik
í ekta Hollywoodstil lika. Eitt slikt
atriði var leikið á járnbrautarstöð-
inni i viðurvist innfæddra statista,
sem ætluðu að ærast og mótmæltu
harðlega svona atferli, svo að hætta
varð við myndatökuna.
Eigi að síður kannaðist Pakistan-
fólk vel við amerisku kvikmyndadís-
irnar og Ava Gardner hafði ekki frið
fyrir fólki, sem vildi fá eiginhandar-
Björn Pétursson á Öxl á Snæfells-
nesi er vcrsti morðinginn, sem frá
segir í íslenskri sögu. Espolín segir
ítarlega frá honum í Árbókum og
löng frásögn er af honum i Þjóðsögum
Jóns Árnasonar. Þar segir að þegar
móður hans gekk með hann setti að
henni „Fáleika mikinn með þeim
hætti, að henni fannst hún gæti ekki
komist af, nema hún bergði manns-
blóði“ en bóndi hennar „Pétur mátti
ekkert á móti henni láta, sem hann
gat veitt henni, vökvaði blóð á fæti,
og lét hana bergja.“
í Setbergsannál er löng frásögn af
Axlar-Birni, hryðjuverkum hans og
afdrifum, árið sem hann var liflát-
inn, 1596:
„Urðu hljóðbær og uppvís morð-
verk og manndráp Björns í Öxl vest-
ur. Lá nokkra stund sá orðrómur á
honum, en enginn vogaði að koma
upp með svoddan ódæði, en fólkið
hvarf oft snögglega og spurðist ekki
til. Eitt sinn kom þar til hans föru-
kona með þremur börnum, nokkuð
til ára komin. Hún beiddist húsa og
fékk þau, en sem hún var um kyrrt
setzt, lokkaði þessi skálkur frá henni
börnin, sitt í hvert sinn, og fyrirfór
þeim, en sem liann ætlaði að sækja
Iiana, var hún komin þar í skot eður
afkima einn, er í þeim kofa var, er
hann leyfði henni, og duldist þar,
því hana grunaði, hverju gegna mundi,
en sem Björn sá hana ekki, varð hon-
um illa við það mjög og rak upp hljóð,
gekk siðan. Kona þessi komst svo í
brunnhús, er þar var nærri, og sat
þar, rneðan Björn leitaði hennar með
ljósi um bæinn, því þetta var á kvöld-
tima. Komst þessi fátæka kona svo
þaðan um nóttina og til sama bæjar
og liún hafði næstu nótt á verið. Sagði
hún þá frá, að hún hefði mis,st frá
sér börn sín öll. Siðan var eftir þessu
gengið, meðkenndist hann, að 9 menn
líflátið hefði. Hafði hann suma drep-
ið til fjár, en 'hina aðra fátæka drap
hann þá, sem i nánd voru, þegar hann
myrti aðra til fjárins, en þegar hon-
um varð aflskortur, þá veitti kona
hans honum lið. Hún hafði brugðið
snæri um liáls þeim og rotað þá með
sleggju, stundum kyrkt þá með háls-
klæði sínu. Þessa dauða hafði hann
grafið i heygarði og fjósi, og fundust
þó að sönnu fleira manna bein, en
hann meðkenndi að drepið hefði, en
hann sagðist hafa fundið þá dauða,
og ekki nennt þá til kirkju að flytja.
Hefur um það margrætt verið, hve
skrift hennar. Jafnvel tollvörðurinn
í flughöfninni hætti ekki fyrr en hún
hafði skrifað nafnið sitt i vasabók-
ina lians. *
marga hann myrt hafði. Sumir hafa
sagt að þeir hafi 18 verið með ungum
og gömlum, sumir segja 14, en þá
liann var aðspurður, hvað gamall
hann hefði verið, þá hann fyrst tók
til þessa ,hafði hann sagt sig þá 14
velra, er hann drap pilt einn í fjár-
liúsi og hann þar grafið hefði. Björn
var dæmdur á Laugarbrekkuþingi.
Var hann fyrst limamarinn með
sleggju, sundur stykkjaður og síðan
afhöfðaður og festur upp á stengur.
Jón Jónsson lögmaður var yfirdóm-
ari, og þessi morðingi skal hafa dáið
iðrunarlaust. Kona hans var þá með
barni, og því var hún ekki réttuð,
en sem hún var léttari orðin, var hún
höfð á alþing og dæmd þrjú húðlát
og þar gengið næst lífi hennar og
síðan sleppt ...“
Sagan segir, að það liafi verið
Sveirin skotti, sem kona Axlar-Björns
gekk með er hann var tckinn af lífi.
Ekki var hann nein fyrirmynd held
ur, þvi að um hann segir í Seiluannál
1646:
„Dæmdur undir hæsta luiðlát á al-
þingi sá áráðvendisstrákur Sveinn
skotti; hafði það nafn af sífelldri rás
og róli, illri breytni og djarffærni
við kvenfólk, en þó raunar ragur og
duglaus, fyrir vanrækt sinnar sálu-
hjálpar og mörg önnur guðlöstunar-
orð, er liann hafði talað og fram kom;
urðu þó ei betri afdrifin, því litlu
eftir refsinguna kom hann fram í
Barðastrandarsýslu með sömu breytni,
og þaðan af verri; var hengdur þar
ög dó illum dauða.“
Setbergsannáll segir um barnið,
sem kona Axlar-Bjarnar gekk með:
„Þetta hennar barn var Sveinn skotti;
hans son Gísli lirókur, liengdur á
Dyrhólum; hans son Magnús; hans
dóttir Þuríður og liennar dóttir Þura,
lifandi 1730“. *
Kessler-tviburarnir eru frægir fyr
ir hve líkir þeir séu. Þessar tvær
stúlkur komu fyrir nokkru inn á vín-
stofu i París og fengu sér hressingu.
Þegar ]>ær höfðu setið nokkra stund
kom gestgjafinn til þeirra, ofur vand-
ræðalegur. — Ég er ekki að amast
við ykkur, sagði hann, — cn þó verð
ég að biðja ykkur um að fara út.
Gestirnir lialda nefnilega að þeir
sjái tvöfalt.
Þýska bifreiðeigendafélagið valdi
í haust 19 ára stúlku frá Miinchen
sem „fegurstu stúlku við stýrið".
Daginn eftir var hún kölluð fyrir rétt.
Ilún liafði ekið bíl en hafði aldrei
fengið skirteini.