Fálkinn - 15.03.1957, Page 11
FÁLKINN
11
LITLA SAGAN
RU ZIC KA :
Drnumur rmtist
í mörg ár hafði það verið óska-
draumur Hrólfs að komast í ferðalag
með heillandi, ljóshærðri stúlku, sem
eigi aðeins væri falleg heldur líka
glæsileg og andrik.
Þvi að í fimm ár hafði Hrólfur ver-
ið sölumaður hjá Meyer & Co., og <>11
þau ár hafði þcssi draumur aldrei
rætst, þó að liann fa'ri fjörutíu sölu-
fcrðir á ári. Hann liafði alltaf rækt
erindi sin þannig, að luisbændurnir
voru vel ánægðir með það, en ævin-
týrið langþráða hafði hann ekki lifað
enn. Það voru nær undantekningar-
laust konur af gömlum árgöngum, sem
hann lenti með í járnbrautarklefun-
um, og kæmi það fyrir að ung stúlka
lenti í sama kiefa og hann, var hún
ávallt í umsjá móður sinnar eða ann-
arra athugalla verndara.
Enn einu sinni sat Hrólfur í klef-
anum og þráði að ævintýrið mikla
gerðist, undrið, sem einhvern tíma
lilaut að ske.
Og i þetta skipti gerðist það, að
ævintýrið kom inn í klefann, i mynd
töfrandi, ljóshærðrar stúlku. Hún leit
rannsóknaraugum á Hrólf, sem sat
við gluggann, brosti ginnandi og tísti
svo: „Afsakið þér, lierra minn — er
þetta sæti laust?"
Hrólfur spratt upp eins og raf-
straumur hefði farið uin hann.
„Auðvitað, kæra ungfrú!“ stamaði
hann og flýtti sér að taka við tösk-
unni hennar og setja hana upp á
hilluna.
„Hérna eru öll plássin laus ennþá,“
sagði liann.
Sú ljóshærða brosli:
„Þakka yður fyrir, herra minn. En
ég þarf nú ekki nema eitt sæti. Ef
þér vilduð hins vegar eftirláta mér
]>etta gluggapláss, þá þarf ég ekki
að snúa bakinu við áttinni sem við
förum i.“
„Alveg sjálfsagt!“ Hrólfur var að-
dáanlega stimamjúkur. „Mig gildir
alvcg einu í hvora áttina ég sný. Það
er útsýnið, sem mér er fyrir mestu.“
Og um leið og hann sagði ]>essi orð
leit hann íbygginn á ljóshærðu feg-
urðardrottninguna. Og þá varð bros
hennar enn meira töfrandi en áður.
„Kannske þér vilduð gera svo vel
að draga rúðuna upp til hálfs? Það
er vegna dragsúgsins."
Hrólfur svaraði um hæl:
„Vitanlega! Svona fallegt hár gæti
aflagast í roki.“
„Þér reykið vonandi ekki, herra
minn?“ hélt hin fagra og ókunna
áfram.
„Ég er æstur and-reykingamaður,
kæra ungfrú," sagði Hrólfur og fleygði
fullum vindlingapakka út um glugg-
ann, og dró svo upp rúðuna eins og
ungfrúin hafði óskað.
Hin fagra ókunna hrosti til Hrólfs,
svo að hitabylgja fór um endilanga
hrygglengjuna á lionum.
„Þakka yður innilega fyrir hvað
þér liafið verið lipur við mig,“ sagði
hún blitt. Svo sneri hún sér út að
dyrunum og kallaði fram á ganginn:
„Komdu hingað inn, afi! Hér er
ágætt að veral Þér er'alveg óhætt að
vera einum í klefa með þessum manni
hérna!“
Og svo kom gamall maður með mik-
ið skegg lialtrandi inn í klefann. *
★ Tískuittgifdir ★
----------------------1
í SKÍÐAFERÐINA og einnig til ann-
arra nota þegar kalt er hefir Mikael-
hansen útbúið þenna jakka úr þykku
klæði, fóðraðan með gæruskinni. Og
þó að við stundum aldrei vetrar-
íþróttir er svona jakki góð og nauð-
synteg flík.
KRAGINN ER LAUS. — Það er Grés,
sem fundið hefir upp á því að nota
stóran lausan kraga við dragtina eða
frakkann og er það vel til fundið,
því þá má breyta eftir vild. Sjálf
dragtin er þess verð að veita henni
athygli. Jakkinn er með rennilás og
saumarnir í mittið enda að neðan
með vösum í fallinu en að ofan opn-
ast þeir fyrir brjóstunum. Kragalaus
er kjóllinn ágætur undir pels.
NÝTT PELSVERK FRÁ PARÍS.
Maggy Rouffs kemur með þennan
pelsfóðraða jakka sem notaður er
yfir ermastuttum kvöldkjól. Spælar á
hliðunum og' stórir vasar í mittishæð.
Kraginn uppstandandi. Kjóllinn er
úr kastaníbrúnu cheviot.
Það er alltaf hressandi að sjá það
sem fallegt er. Þessi kjóll frá Victor
Stiebels (London) er úr kanellitu
tafti með samlitu slöri yfir. Á herð-
unum er tafttrefill og jakkinn er lagð-
ur með nertz. Þetta er óhóf en það
er gaman að sjá það.
Vitid þér...?
að nú er barist gegn útvarpstrufl-
unum meira en nokkurn tíma
áður?
í sambandi við alþjóðlega eSlis-
fræði árið 1957 verða viðsvegar um
heim —- meðal annars kringum heim-
skautin — settar upp stöðvar til að
rannsaka truflanir í loftinu, sem
valda vandræðum fyrir útvarpssend-
ingar. Stofnanir þessar hafa miklu
nákvæmari tæki en áður hafa verið
notuð. — Er talið víst að með þess-
ari rannsókn fáist vitneskja, sem
komið geti að haldi til að bæta út-
varpssendingarnar.
vo
að krían flýgur á hverju ári
vegalengd, sem svarar til þess að
hún færi kringum jörðina?
Merking á krium hefir sannað að
hún flýgur yfir 4..000 kílómetra,
nefnilega norðan úr kuldabelti og
suður í kuldabelti — og til baka —
á hverju ári.
að hægt er að fá gcrvieyru?
Ameriskur læknir, sem er sérfræð-
ingur í „plastiskum skurðaðgcrðum,
hefir hal't til meðferðar 00 sjúklinga,
sem vantaði frá fæðingu annað eða
bæði eyrun, og sctt á þá eyru, sem
sýnast vera ekta. Efnið sem læknir-
inn notar í eyrun, er brjósk úr rifj-
»um sjúklingsins og bjór af maga
hans.