Fálkinn - 15.03.1957, Page 15
FÁLKINN
15
IUX heldur góðum fatnaði
sem n/jum
Notið ávallt LUX SPÆNI,
þegar þér þvoið viðkvœman vefnað! X-LX 694-814
Presturinn syngjandi
Síra Sidncy MacEwan í skoska
þorpinu Lochgilphead i Argyle hefir
lilotið miklar vinsældir í prestakall-
inu sínu, og er vel að þeim kominn.
Þó að hann liafi ekki meira að bítn
og brenna en sveitaprestar yfirleitt,
hefir hann reist nýja kirkju og borg-
að hana algerlega úr eigin vasa. Síra
Sidney hefir nefnilega drjúgar tekjur
af öðru en prestsembættinu. Hann
l'er í ferðir — hann hefir jafnvel kom-
ist alla leið til Ástraliu — og öfugt
við það, sem um flesta gerist, kemur
hann jafnan „múraður" úr ferðalög-
um sinum, en peningana gefur hann
kirkjunni. Presturinn er nefnilega
safbragðs tenórsöngvari og rakar sam-
an peningum á söngskemmtunum
sínum.
Sidney MacEwan er fæddur i
Glasgow og var faðir hans skoskur
en móðirin írsk. Þess vegna hefir
aonn sérstaklega áhuga á kelt-
neskri tónlist og geliskri tungu, sem
er sameiginleg nokkrum hluta íra og
Skota. í Skotlandi varð hann einkum
vinsæll fyrir keltneska söngva, sem
hann flutti. Og bæði í Ameríku og
Ástralíu er fólk af írsku og skosku
bregi brotið, og það fjölmennir á
söngskemmtanir hans til að heyra
ættjarðarlög sín. Sidney Ewan var
farinn að syngja á skólaárum sínum
og hélt áfram að menntast í söng ,
meðan hann gekk á háskólann. En
þjóðfrægur varð hann ekki fyrr en
á stríðsárunum, er hann söng í fyrsta
skipti i breska útvarpið. Siðan hefir
hann verið fastur gestur þar.
Er hann liafði lokið guðfræðiprófi
gekk hann á tónlistarháskólann í
London, og stóð honum opin leið til
að gerast atvinnusöngvari. En hann
mat meira að verða prestur. En
kirkjumálastjórnin hefir fyrir löngu
viðurkennt söngvaraköllun hans, og
veitir honum ieyfi til söngferða
hvenær sem hann biður um. Fyrir
skömmu söng hann tíu keltnesk lög
á „long-playing“ plötu, og liefir hún
selst afar mikið. *
30.000 FEGURÐARDROTTNINGAR
í BANDARÍKJUNUM.
Fegurðardrottningarfarganið er upp-
runnið í Bandaríkjunum, og hvílik
plága það er orðið þar í landi, má
marka af því að fegurðardrottning-
arnar eru nú orðnar 30.000 talsins.
Auk allsherjarkeppnanna fyrir öll
ríkin, kýs hvert fylki sína fegurðar-
drottningu, auk jjess eru kjörnar ótal
„missur“ í alls konar greinum, svo
sem „miss Locomotiv", „Miss Ritvél“,
„Miss Heilbrigði“, „Miss kyssivör",
„Miss Kínín“, „Miss Ostur“ og þar
fram eftir götunum, og í skólunum
eru kosnar „Miss Stíll“, „Miss Al-
gebra“ o. s. frv. Og fjöldaihörg iðn-
aðarfyrirtæki, félög og stofnanir velja
sina „miss“ á hverju ári, svo að engin
furða er, þótt talan 'hækki.
En það hefir komið á daginn, að
þctta „missa-fár“ hefir sínar skugga-
hliðar. Rannsókn sem gerð hefir ver-
ið, hefir leitt i ljós, að 20.000 af þess-
um „missum" lifa við bág kjör. Þær
hafa látið sig dreyma um ævintýri,
gull og græna skóga, en þessar vonir
hafa brugðist oftast nær, og ýmsar
slúlkurnar hafa lent í saurlifnaði og
standa svo uppi yfirgefnar og ein-
mana.
„Miss Illinois 1928“ hefir hafist
handa um að koma upp styrktarsjóði,
sem sjái fyrrverandi „missum“ fyrir
ellistyrk. Biður hún þá, sem gangast
fyrir fegurðarsamkeppni að greiða
lduta af tekjunum i þennan styrktar-
sjóð. Fegurðardrottningarnar eiga
lika að greiða iðgjald, og fer það
hækkandi því breiðari sem þær voru
um brjóstin, er þær voru kjörnar.
Það verður þvi dýrt gjaldið, sem
Anita Ekeberg og Marilyn Monroe
verða að greiða í sjóðinn.
Ungar stúlkur, sem eru skotnar í
Daniel Gelin, hafa beðið blaðið um
upplýsingar um hann. Daniel er
fæddur i Angers í Frakklandi 15. mai
1921. Hann var einstakur tossi i
barnaskólanum en hafði mikinn
áhuga á leiklist og fór að leika
á „hrylli-leikhúsinu" Grand Guignol
i París, og þar „uppgötuðu" kvik-
riyndamenn hann. „Parisaræska liét
fyrsta kvikmynd hans, en siðast lék
hann í „Napoleon". Heimilisfang:
Unifrance, 77 Champs Elysées, París.
í Svíþjóð er súkkulaðiát 65% meira
en í Noregi, og í Englandi þrisvar
sinnum meira.
Trúlofunarhringir
ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Damas, Tissot, Certina, Eterna.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
V
\r
\r
v r
\r
> f
>r
> r
> r
> r
'r
> r
> f
> r
> r
> r
> r
> r
> r
'r
> r
> r
> r
> r
»»
Brunatryggingar
Eru eigur yðar nægilega hátt brunatryggðar.
Ef ekki, þá talið við oss sem fyrst.
Vátryggingarskrifstofa
Sigfúsar Sighvatssonar h.f.
Lækjargötu 2A, Reykjavík.
Símar: 3171 & 82931.
J\
J\
J\
J<
J\
J\
J\
J\
JA
J\
j\
J\
J\
J\
j\
J\
j\
Kveiltjnror
eins og myndin sýnir kosta sama
og 70 eldspýtustokkar.
Sendið kr. 30.00 og þið fáið
kveikjara sendan um hæl.
ffilutdrninn við Arnarhól
Reykjavík.
Pietro Nenni, hinn kunni ítalski
stjórnmálamaður, fékk Stalinverð-
launin 1951 og keypti sér fallegt hús
fyrir peningana. Nú hefir hann selt
húsið og gefið peningana til Ung-
verjalandssöfnunarinnar.
Angela Smith heitir 19 ára sýni-
stúlka í London, sem stóð dag eftir
dag á tískusýningu í Albert Hall og
lél gestina skjóta á sig úr skamm-
byssu. Að vísu skutu þeir ekki kúlum,
heldur ýmsu fljótandi, svo sem kaffi,
rauðvíni, steikarsósum og bleki. Ang-
ela var nefnilega i fötum, sem hafa
það til sins ágætis að ekki festir bletti
á þeim.
Akvegirnir í Svíþjóð eru samtals
91.000 kílómctra langir, og þar af eru
7.750 með varanlegu slitlagi. í Noregi
er lengd allra akvega 46.800 km. —
Þar af 2.600 með slitlagi, en það er
einkum asfaltlímd grjótmylsna, eða á
rúmum 2.400 km. En 105 km. eru
steinlagðir og 106 km. með stein-
steyptu slitlagi, 16 sentimetra þyklui
og ójárnbentu. Steinsteypulagið kost-
ar 2—3 sinnum meira en asfaltlag.
Danmörk er, næst eftir Bandarikj-
unum, það land sem hefir hlutfalls-
lega flestar mjaltavélar. Tveir þriðju
allra bændabýla hafa rafknúðar
mjaltavélar og yfir 90% af öllum kúm
Dana eru mjólkaðar með vélum.
Sparisjóður einn í Ruhr hefir —
sennilega til að hvetja til sparnaðar
— tekið upp það nýmæli að gefa
hverjum þeim, sem kemur og leggur
peninga i bókina sina, glas af rinar-
vini. — Einn daginn um lokunartima
var blindfullur náungi í bankanum.
Hann hafði komið um morguninn til
að leggja inn 100 mörk, en í stað þess
að afhenda þau öll i einu hafði hann
lagt inn aðeins tvö í hvert skipti, og
fékk þannig 50 glös af rínarvini
bankans.